Fréttablaðið - 10.11.2006, Side 18
nær og fjær
„ORÐRÉTT“ Fánaberi sporðdrekans
Nöturleg staðreynd Nasistar
Íslenski fjölnotendanetspunaleik-
urinn Eve-online hefur slegið í
gegn á heimsvísu. Leikurinn ger-
ist í geimnum í framtíðinni og í
dag eru um 150.000 áskrifendur.
Þegar mest lætur eru um 30.000
manns að spila leikinn í einu. Nú
eru þeir allra hörðustu mættir á
þriðju aðdáendahátíðina sem hófst
í gær á Hotel Nordica – eða Hotel
Nördica eins og réttara væri að
kalla hótelið núna.
„Sá sem kemur lengst að er frá
Nýja-Sjálandi, svo menn leggja
ýmislegt á sig,“ segir Anna Katrín
Ólafsdóttir hjá markaðsdeild CCP,
sem stendur að baki leiknum.
„Þessi hátíð hefur stækkað með
hverju árinu, nú koma um 500
manns á hana, liðlega 350 spilarar
að utan og 30 blaðamenn, bæði frá
tölvublöðunum og danska sjón-
varpinu.“
Anna segir margt í boði fyrir
aðdáendur leiksins. „Menn spila
náttúrulega bæði tölvuleikinn og
safnkortaspil sem nýlega kom á
markaðinn, og svo eru margir fyr-
irlestrar í gangi þar sem framtíð
leiksins verður kynnt og spenn-
andi nýjungar afhjúpaðar. Spilur-
um gefst tækifæri til að segja sína
skoðun. Hönnuðir leiksins sitja
fyrir svörum og dagskráin endar
með fyrirlestri framkvæmda-
stjóra CCP, Hilmari Veigari Pét-
urssyni. Margir gestirnir hafa
þekkst mjög lengi í spilaheimin-
um svo það er gaman fyrir þá að
hittast í eigin persónu.“
Karlmenn eru í miklum meiri-
hluta, um 95 prósent spilara eru
karlkyns, og nördastimpillinn
hefur loðað við tölvuspilara. „Ég
er nú bara mjög hugguleg og
þokkalega ekkert nörd!“ segir
Anna og hlær. „Ég byrjaði að spila
leikinn þegar ég byrjaði hjá CCP
og á þetta flotta geimskip í dag.“
Hátíðin endar á balli þar sem
hljómsveit sem hönnuðirnir stofn-
uðu og vakti mikla lukku í fyrra
leikur fyrir dansi. Hún heitir
Röxör.
Fyrr á tímum var selkjöt
ásamt hreifum og spiki
mikilvæg fæða í mörgum
landshlutum. Selkjötsát
hefur minnkað stórlega
og selaafurðir eru hvergi
sjáanlegar í matvörubúðun-
um í dag. Breiðfirðingurinn
Guðmundur Ragnarsson
hefur boðið til selaveislu
árum saman og segir sel-
kjöt, sé það rétt meðhöndl-
að, vera algjört hnossgæti.
Annað kvöld er komið að
selaveislu ársins.
„Þetta eru allt selir sem ég hef
veitt í Breiðafirði,“ segir Guð-
mundur. Hann starfar við að kokka
ofan í starfsfólk Latabæjar í stúd-
íóinu í Garðabæ en býður þeim þó
ekki upp á sel. „Ég er ættaður úr
Hergilsey og samkvæmt hlunn-
indaréttindum má ég veiða í Herg-
ilseyjarlöndum. Veiðitímibilið er
nú eiginlega einn mánuður, októb-
er. Ég veiði á bilinu 30-60 dýr og
þetta eru allt útselskópar, 3-4 vikna
gamlir. Þá hafa þeir stækkað úr
um 15 kílóum og eru orðnir 80 kíló
bara við það að drekka móður-
mjólkina. Dýrin hafa aldrei borðað
fisk og eru því algjör eðalmatur
sem má líkja við frönsku mjólkur-
kálfana sem þykja það fínasta á
frönskum veitingarhúsum.“
Bragðið segir Guðmundur að það
minni helst á svartfugl og hrein-
dýr í einum bita. „Selkjöt á árum
áður var oft með þráa- eða lýsis-
bragði enda var lítið lagt upp úr
meðhöndlun á kjötinu. Það fá
margir sjokk þegar þeir smakka
kjötið hjá mér því þetta er algjört
lúxuskjöt sem jafnast fyllilega á
við flottustu steikur.“
Guðmundur sér ekki fram á að
selkjöt verði fáanlegt í kjötborð-
um landsins. „Nei, ég held að það
kæri sig enginn um að selveiðar
verði iðnaður. Veiðarnar eru erfið-
ar og veiðimenn bera mikla virð-
ingu fyrir bráðinni og umhverf-
inu. Svo er öll vinnsla eftir
kúnstarinnar reglum og mikil
natni lögð í þetta. Þetta er engin
færibandavinna.“
Fyrsta selaveislan var haldin fyrir
átta árum og þá komu 40 manns.
Nú á Guðmundur von á 250 gest-
um og segir að aðsóknin sé eigin-
lega farin úr böndunum. „Þetta
hefur spurst svona svakalega vel
út og fólk kemur aftur og aftur.
Maður er upp með sér að sjá
kannski ungar stelpur af mölinni
sem finnst þessi gamli matur
algjört æði. Það er einmitt þetta
sem mér er hugleiknast: að koma
aftur með það sem forfeður okkar
borðuðu, en bara í nýtískulegri og
betri útgáfu. Þetta gamla íslenska
er að koma voða mikið inn aftur.
Þegar við erum búin að vera í öllu
öðru förum við að leita upprun-
ans.“
Veislan fer fram annað kvöld,
laugardagskvöld, í nýja Hauka-
húsinu að Ásvöllum í Hafnarfirði
og má panta miða í síma 8486161
(4.900 kr. á mann). Á hlaðborðinu
verður meðal annars boðið upp á
grillaðan, reyktan, saltaðan og
soðinn sel og súrsaða selshreifa-
sultu. Að borðhaldi loknu verður
stiginn dans. Ef þér verður ekki
um sel í selaveislunni má benda á
að selsteikur fást á meðan birgðir
endast í veitingahúsinu Laugaási
sem faðir Guðmundar rekur.
Selkjötið er hin flottasta steik
Pottur brotinn