Fréttablaðið - 10.11.2006, Síða 75
Hljómsveitin Í svörtum fötum hefur gefið út sína
fjórðu plötu, Orð. Á plötunni eru tólf ný lög sem eru
öll samin af meðlimum sveitarinnar, þar á meðal
„Þessa nótt“ sem hefur fengið góðar viðtökur að und-
anförnu.
„Við vildum gera þetta sjálfir núna. Við erum ekki
með „pródúsent“ en við höfum áður verið með Haf-
þór Guðmundsson og Þorvald Bjarna,“ segir Einar
Örn Jónsson, hljómborðsleikari Í svörtum fötum.
„Við þykjumst vera orðnir svo reyndir að við treyst-
um okkur í þetta sjálfir. Þessi plata er aðeins meira
„beisík“ og ekki eins mikið „pródúseruð“ og áður,“
segir hann. „Hún er mjög fjölbreytt. Við höfum mjög
ólíkan tónlistarsmekk og leyfum því bara að haldast
svolítið á plötunni. Það er hin og þessi stemning í
gangi. Við höfum stundum reynt að halda okkur við
ákveðna línu en núna var öllum gefinn laus taumur-
inn.“
Í svörtum fötum gaf ekki út plötu í fyrra vegna
þess að söngvarinn Jónsi gaf þá út sína fyrstu sóló-
plötu. „Við hinir vorum orðnir helvíti hressir eftir
pásuna og bandið kom með meira „innpútt“ en venju-
lega. Jónsi hefur átt flest lögin á hinum plötunum en
bandið kom meira inn í þetta núna.“
Síðustu þrjár plötur Í svörtum fötum hafa náð
gullsölu og er engin ástæða til að ætla annað í þetta
skiptið. Næstu stóru tónleikar sveitarinnar verða á
Nasa 2. desember.
Fjölbreytt stemning á nýrri plötu
Miðasala á almennar sýningar í
Smárabíói og Regnboganum er
hafin í fyrsta sinn á netinu á slóð-
inni midi.is/bio. Hingað til hefur
midi.is verið leiðandi í sölu
aðgöngumiða á tónleika, leiksýn-
ingar, íþróttaviðburði eða annað
en nú hafa kvikmyndahúsin loks-
ins bæst við.
Í dag hefst einnig forsala á
heimsfrumsýningu á einni stærstu
mynd ársins, Casino Royale, sem
kemur í bíó föstudaginn 17. nóv-
ember um land allt. Í Casino Roy-
ale er Daniel Craig í hlutverki
James Bond og mega gagnrýnend-
ur vart vatni halda yfir frammi-
stöðu Craigs.
Forsala á
netinu
Fyrstu tónleikarnir í mánaðarlegu
tónleikahaldi Triangle Product-
ions á Barnum verða haldnir í
kvöld. Hiphop verður á efnis-
skránni í kvöld og koma fram
Beatmakin Troopa, Steve Samplin,
Rain og Agzilla.
Annars verða margar fleiri
skemmtilegar og fjölbreyttar
uppákomur í boði á Barnum í
vetur, þar á meðal verður elektró-
og rokktónlistarkvöld auk þess
sem erlendir listamenn munu
mæta til leiks eftir áramót.
Fjörið í kvöld hefst klukkan 22
og stendur yfir til 1.00. Aðgangur
er ókeypis.
Hiphop á
Barnum
Nýjasta plata tónlistarmannsins
Jóhanns Jóhannssonar, IBM 1401
- A User’s Manual, fær ágæta
dóma á hinni virtu bandarísku
tónlistarsíðu Pitchfork, eða 6,9
af 10 mögulegum.
„Platan byrjar mjög fallega
en vegna langdregins miðhlut-
ans er erfitt að mæla með IBM
1401-A User´s Manual sem heil-
steyptu verki,“ segir í dómnum.
„Jóhann er engu að síður heill-
andi tónskáld og bestu tónarnir á
þessari plötu kalla fram gæsa-
húð.“
Gagnrýnandinn segist jafn-
framt fyrst hafa heillast af
Jóhanni í laginu, Odi et Amo, af
plötunni Englabörn sem kom út
árið 2002. Þar hafi hann komið
sterkur inn sem tónskáld með
áhugaverðar hugmyndir um
tækni og tónlist.
Kallar fram gæsahúð