Tíminn - 01.04.1979, Qupperneq 15

Tíminn - 01.04.1979, Qupperneq 15
15 i Sunnudagur 1. aprfl 1979 Afturhvarf í Sellótónum Kristján Guðmundsson frá Amsterdam opnaði málverka- sýningu i vinnustofu Guðmund- ar Arnasonar að Bergstaða- stræti 15 nú i vikunni, en Kristján hefur veriö bdsettur i Amsterdam siðan árið 1969 og býr þar enn. Kristján Guömundsson, sem er 37 ára gamall, hefur fengist við myndlistarstörf nær alla ævi: var einn af stofnendum GalleriSúm sem núna er tiu ára gamalt, þótt þaö rísi æ sjaidnar úr körinni nú orðiö en æskilegt væri. Sýning uppi í sveit Það er ekki mikiö um það að listmálarar haldi málverkasýn- ingar uppi I sveit, jafnvel þótt komin séu menningarhús viða þar sem kórar geta æft sig, hægt er að setja upp leikrit og hvað eina, sem áður var svo örðugt I sveitunum, það er að segja áður en félagsheimilin og skólarnir komu tii skjalanna. GIsli Guömann Undirritaður átti nýverið leið um Ljósavatnsskarð þar sem Stórutjarnaskóli er, en þar stóð þá yfir myndlistarsýning Gisla Guðmanns frá Akureyri, en hann hefur sinnt myndlist lengi þrátt fyrir heilsuleysi. Gisli Guðmann er fæddur á Akureyri árið 1927 og byrjaði snemma aö fást við myndlist, en eiginlegt myndlistarnám hóf hann ekki fyrr en árið 1950, og þá hjá Jónasi Jakobssyni, myndhöggvara, en áður hafði Gisli lokið stúdentsprófi. Gisli nam myndlist hjá Jónasi i fjög- ur ár, en nam þar aöallega höggmyndlist, en að þvi loknu hóf hann nám i myndlist við þýskan bréfaskóla „Fernaka- demi Karlsruhe Paul Linke” en þar nam hann i fjögur ár, en þvi má skjóta hér inn, að bréfaskól- ar eru mikið notaðir til myndlistarkennslu og þykja gefast vel. Gisli Guömann hefur tekið þátt I mörgum samsýningum, og áriö 1976 hélt hann yfirlits- sýningu á verkum sium á Akur- eyri og hefur upp frá þvi stundað my ndlistarstörf einvörðungu. Gisli sýndi alls um það bil 60 verk á sýningunni i Stórutjarna- skóla. Mest pastelmyndir, en auk þess skúlptúra og vangamyndir af fðlki, eða lágmyndir. Pastel og leir Plattar Gisla Guðmanns virt- ust mér óvenju vel gerðir og mynd hans af Steindóri Steindórssyni, fyrrv. skóla- meistara, er hreinasta afbragð. Það sem helst má að þessum myndum finna, er að andlitin eru of sléttog felld, færri drættir hæfa stundum betur og skap- ferli þeirra er fyrir sitja mætti vera meira i fyrirrúmi. Gisli vinnur i plastleir, sem er slæmt efni, en tjáði undirrituð- um að hann væri nú að breyta til. Pastelmyndir Gisla eru eink- um af landslagi og sveitasælu, sem var einkar kærkomið, þvi þennan dag var snjór á jörðu og fjöllunum var kalt. Ég skoðaði þessa sýningu Gisla af mikilli ánægju og eink- um og sér I lagi hlýtur maður að meta þann metnað og kjark sem i þvi felst að ferðast með margar myndir handa börnum i fásinnið og mættu fleiri mynd- listarmenn taka hann til fyrir- myndar. Myndir Gisla voru allar innrammaðar, en þaö er annars mesti óþarfi og umstang og ger- ir — auk kostnaðarins — slikar sýningar dýrari en ella hefði orðið, en slfkt verða menn auð- vitað að meta sjálfir. Jónas Guömundsson. ! t Ford Brenco," ; Maverick, Chevroiet Neva, Blaser, Dodge Dart, Playmouth. Wagoneer Land-Rover, Ford Cortina, Sunheam, Fiat, Datsun, Toyota, VW, ofl. ofl. Verð frá kr. 17.500.-. 'Einnig: Startarar, Cut-Out, Anker, Bendixar, Segulrofar, Miðstöðvamótorar ofl. i margar teg. bifreiða. Póstsendum, Bílaraf h.f. S. 24700. Borgartúni 19. Auglýsið iTimanum Kristján sýnir að þessu sinni um það bil 15 oliumálverk af venjulegri gerð, svona fyrir þá sem byggjust fremur við einkennilegum hlutum frammúrstefnumannsins þarna, en svo er ekki. Þetta eru ljóðrænar abstraktmyndir, sem minna meira á landslag, islenska náttúru en annað, og tónar eru mildir og dálítiö dökk- ir. Ef þeim væri likt við hljóð- færi kæmi manni cellóið fyrst i hug. Það dylst engum, sem sýning- una skoðar, að þarna málar maður með styrka hönd, skilur málfar og takmörk efnisins út i ystu æsar, hann skerpir lit, hann tónar og brýtur formin mjúk- lega. Samt eru þetta ekki sætar myndir, eða skrautlegar.ær hafa fulla vigt, standast mál er við gerum til slikra hluta. Kristján Guðmundsson listmálari Hefur fengist við aðra hluti Kristján mun sjálfmenntaöur i myndlistum, þvi þeir hlutir sem hann hefur verið að fást við eru svo nærri okkur i tiðinni að þeir hafaekki komistinn i lista- skólanaennþá en hafasamt haft viðtæk áhrif á heimslistina. Ljóðið hefur færst inn i mál- verkið og menn eru að reyna að segja eitthvað, sem aðeins verður sagt i einni einustu mynd. Það kemur því dálitiö á óvart, þegar Kristján Guðmundsson leggurfram venjulegar myndir, minnir á þá tfma i bókmenntun- um, þegar skáld urðu aö geta sent frá sér hringhendur, sléttubönd, eða aldýran kveðskap, áður en unnt var að meta frá þeim órimuð ljóð og i nýjum arkitektdr, eða búningi, og þegar abstraktmálarar urðu að sanna þaö fyrst að þeir gætu málað raunverulegar myndir, eftirlikingar af Þingvöllum eða Dimmuborgum tíl þess aö ekki væri um þá sagt að þeir máluðu abstrakt af þvi einu, að þeir kynnu ekkert að mála. Já, og nú syngur óstjrilátur listamaður allt i einu ljúflings- lag, — og kemur sem fyrr á óvart. Ég hvetþáerunna tónfögrum myndum að skoða sýningu Kristjáns Guðmundssonar, en sýningunni lýkur nú um helgina þvi hann er á förum utan til að gera þar allt aðra hluti. Jónas Guömundsson fólk í listum Nú er okkur loksins óhætt að auglýsa SELKO - fataskápana SELKO — fataskáparnir uppfylla allar kröfur um góða fataskápa. Þeir eru settir saman úr einingum sem þú getur auðveldlega skeytt saman og tekið sundur aftur og aftur. Þeir eru ódýrir. Sterklegar lamir og læsingar gera þá traustari. Allt frá því að við hófum framleiðslu á SELKO-fataskápunum, höfum við ekki haft undan. Nú höfum við aukið afköstin með bættum vélakosti og því er okkur óhætt að auglýsa þá. Með öðrum orðum, ef þú telur að SELKO gaeti verið þér lausn, komdu þá og líttu nánar á SELKO-fata- skápana. Þeir eru góð hugmynd og heimilisprýði hvernig sem á þá er litið. SIGURÐUR W ELÍASSON HE AUÐBREKKU 52, KÓPAVOGI, SÍMI 41380

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.