Tíminn - 01.04.1979, Qupperneq 25
Sunnudagur 1. apríl 1979
25
Gróður og garðar
Ingólfur Davíösson:
Suður í löndum
og séð í stofu
MALLORCA - LA LONJA
Snarrótarpuntur (Ljósm. Tim-
inn Tryggvi)
Pálm asunnudagur, hver
stendur nú með pálmann i hönd-
unum? Margir Islendingar hafa
séð tignarleg pálmatré suður i
löndum, séð hina háu,grönnu,
spengilegu stofna og laukkrón-
una biakta hátt uppi. Virðing
fyrir pálmum er ævaforn i
Miðjarðarhafslöndum. Pálma-
blöð voru sigurmerki meö
Grikkjum og Rómverjum, og
tákn frjósemi i Egyptalandi,
þegar á dögum Faraóanna.
Fylgismenn Krists hylltu hann
meö pálmablööum, sem siðan
urðu tákn trúar og friðar. Það
munu aðallega hafa verið blöð
döðlupálmans sem vegsemdar
nutu, enda hefur hann frá fornu
fari veriö hið mesta nytjatré
áþurrviðrasvæðum i Norð-
ur-Afriku og Suövesturasíu.
Hann er einkennistré i eyði-
merkurvinjunum. „Konungur
eyðimerkurinnar stendur með
fæturna í vatni en höfuðið i glóð
sólarinnar”, segir gamalt mál-
tæki. Svipmikill er 10-20 m hár
döðlupálmi sannarlega. Ná-
frændi hans,
„Kanarieyja-döðlupálminn”, er
viða ræktaður til prýðis I
Miðjarðarhafslöndum og hafa
margir séö hann, t.d. á
Mallorca, en döðlurhans eru lit-
ils virði. Norðar i Evrópu hafa
blöð köngulpálma (Cycas) veriö
notuð á sama hátt og ekta
pálmablöð, enda tilkomumikil,
stinn og leðurkennd 1-2 m löng.
Kanarieyjadöölupálmar
Hefur könguipálmi verið rækt-
aður i gróðurhúsum vegna blað-
anna.
Bæjarnafnið Pálmholt i
Arnarneshreppi við Eyjafjörð
er sérkennilegt, og til er nafnið
pálmaviðir á gulviði.bæði hér og
i Færeyjum. Benda nöfnin lik-
lega tilgamallar venju i ýmsum
norðlægum löndum að kalla
sumar trjátegundir með löng og
mjó blöð pálma. Mun það
standa I sambandi við skreyt-
Melgras, rósakollur o.fl. tgulker
úr tsafjarðardjúpi (Ljósm.
Timinn Tryggvi)
ingar á pálmasunnudag við
kirkjulegar athafnir.
Blöð köngulpálma hafa verið
seld undir nafninu pálmablöð,
sem þau likjast mjög en raunar
er köngulpálmi skyldur barr-
trjám. Aðeins ein pálmategund
— dvergpálminn— vex villtur i
Evrópu, þ.e. i vestanverðum
Miðjaröarhafslöndum. Fáeinar
fremur smávaxnar pálmateg-
undir eru ræktaöar til skrauts
innanhússi norðlægum löndum,
þ.á.m. hér á landi. Veröur e.t.v.
vikið að þvi efni siöar.
Hverfum nú frá suðrænu sviði
og litum á þurrkaöa blómvendi
frá siðasta sumri inni i stofu,
þar sem þeir enn eru augna-
yndi. Allmargir rækta eiliföar-
blóm i görðum sinum til blóma-
vandagerðar. Elifðarblómin
draga nafn sitt af þvi að þau
haida þurrkuð afar lengi fógr-
um blómlitum sinum gulum,
hvitum og rauðum.
Hér gefuraðlita á svarthvitri
mynd, sýnishorn i veggvasa, en
vitanlega njóta litirnir sin ekki
vel nema á litmynd. Nokkra
hugmyndum fegurð og endingu
eilifðarblóma gefur þó myndin.
Þurrkaðar starir eru festar á
þilið við hlið veggvasans og
mynda litinn blævæng, en til
vinstri sést móasef I litlum
vasa.
Myndin i' rammanum er af
gamla bænum á Stóru-Hámund-
arstöðum á Árskógsströnd sum-
arið 1933.
Á litlu boröi skartar snarrót-
arpuntsvöndur og heldur enn
prýðilega sinum blágráa gljáa.
1 spanskri hunangskrukku
standa melgras og rósakollur,
en hirtir stökkva á ofnu teppi
bakvið. Stórt igulker úr Isa-
fjarðardjúpi i forgrunni.
Úti eru allar jurtir og tré i
dvala en nú tekst vel að taka
aukagreinar af viði, ribsi o.fl.
tegundum ogfá þær til aö laufg-
ast inni i stofu. Skal setja
greinarnar i vatn eins og
afskorin blóm og laufgast þær
þá fljótlega. Þið munuð hafa
gaman af að reyna þetta.
Blómamyndirnar hefur
Tryggvi ljósmyndari Timans
tekiö.
Stóru-Hámundarstaðir 1933. Eiliföarblóm t.h. Móasef neöst t.v.
Starir fyrir miöju (Liósm. Timinn Tryggvi) 20/3 1979
Verslunarhúsnæði
Til sölu er Blómaskáli minn i Hveragerði
ásamt ibúðarhúsi, gróðurhúsum, sjoppu
með öllu tilheyrandi.
Blómaskáli með eða án sjoppu. Blóma-
skáli með eða án gróðurhúsa. Blóma-
skáli með eða án ibúðarhúss.
Ræktun i fullum gangi. Laust hvenær sem
er. Semja ber við Frank Michelsen Hvera-
gerði c/o Blómaskáli Michelsen. Uppl.
ekki gefnar i sima.
Paul V. Michelsen.
Aðalfundur
Flugleiða h.f.
verður haldinn þriðjudaginn 10. april 1979
i Kristalsal Hótels Loftleiða og hefst kl.
13.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 10. gr.
samþykktar félagsins.
2. Önnur mál.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða
afhentir hluthöfum á aðalskrifstofu fé-
lagsins, Reykjavikurflugvelli frá og með
2. april n.k. til hádegis fundardag.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á
aðalfundi, skulu vera komnar i hendur
stjórnarinnar eigi siðar en 7 dögum fyrir
aðalfund.
Stjórnin.
» mm wm
Hjólbarðasólun, hjólbarðasala
og öll hjólbarða-þjónusta
Mjög
gott
verö
Nú er rétti tíminn til
að senda okkur
hjólbarða til
sólningar
t'iíium fyrirliggjandi
flcstar stœrdir
hjólbarda.
sólaóa ofi
nýja
pjonusia
POSTSENDUM UM LAND ALLT
Hf
Skiphott 35
105 REYKJAVÍK
slmi 31055