Tíminn - 01.04.1979, Page 33
Sunnudagur 1. aprll 1979
frMiííiíiT
33
Þessi tæki kostuðu
300-400
búsund
BUÐIN
/
Skipholti 19 Simi 29800
Verð frá kr.
154.714
175"980
Æskulýðsráð
Styrkir
1. NÝJUNGAR í STARFI
ÆSKULÝÐSFÉLAGA
Æskulýðsráð Reykjavikur veitir nokkra
styrki til þeirra æskulýðsfélaga, er hyggja
á nýjungar i starfi sinu i ár. Umsóknir um
slika styrki, með itarlegri greinargerð um
hina fyrirhuguðu tilraun eða nýbreytni,
óskast sendar framkvæmdastjóra ráðs-
ins, Frikirkjuvegi 11, fyrir 27. april næst-
komandi.
2. UNGLINGASKIPTI.
Æskulýðsráð Reykjavikur mun i ár veita
nokkurn fjárstyrk til félagahópa, er
fyrirhuga unglingaskipti við útlönd sum-
arið 1979. Slikur styrkur er bundinn þvi
skilyrði, að um gagnkvæma starfsemi sé
að ræða, þ.e. samvinna við erlend samtök,
er siðan senda unglinga til Reykjavikur.
Upphæð fer eftir fjölda umsókna.
Umsóknir með nákvæmum upplýsingum
um þátttakendur, erlendan samstarfs-
aðila og ferðaáætlun, sendist skrifstofu
Æskulýðsráðs Reykjavikur fyrir 27. april
1979.
Æskulýðsráð Reykjavikur,
Sími 15937.
Asgeir 0
verkinu san ég er að vinna við.
Það er ósköp óþægilegt að þurfa
sifellt að aka þessum stól aftur á
bak og áfram, en geta ekki
staðið viö málverkið og stágið
eitt eða tvö skref afturábak ef
maður vill virða eitthvað sér-
stakt fyrir sér.
— Hefur þii nokkra hugmynd
um hversu margar myndir þd
hefur málað um dagana?
— Nei, Drottinn minn dýri!
Það veit ég ekkert um. Framan
af ævi eyðilagði ég fjöldann all-
an af myndum, sem ég var ekki
ánægður með. Ég haföi lengi
þann sið, að ef mér likuðu ekki
myndir mi'nar, þá eyöilagði ég
þær hreinlega.
— Var þér ekki sárt um
myndir þfnar, þótt þær væru
kannski tilraunir, margar
hverjar?
— Nei, mér var hreint ekkert
sárt um þær. Éghélt þeim sið i
mörg herrans ár að henda
myndum, sem ég var óánægður
með. Þá komu reyndar stundum
til min menn sem hirtu það sem
ég var búinn að fleygja og
þannig er eitthvað til af mynd-
um eftir mig frá þessum árum, i
eigu einstakra manna, —
myndir sem ég hafði verið búinn
að henda.
og þar með var
abstraktdellan
hafin...”
— Nú stendur þú á áttræöu,
Asgeir. Hvernig er þér nú inn-
anbrjósts, þegar þú litur yfir
þessi áttatiu ár?
Þau hafa satt að segja verið
ákaflega misjöfn. Fyrstu árin
voru óneitanlega býsna erfið.
Ég var fátækur námsmaður, og
það voruerfiðir timar. Þegar ég
kom fyrst til útlanda, var
expressionisminn að ryðja sér
tilrúms, en ég ánetjaöisthonum
aldrei. Siðan reið yfir hver ald-
an á fætur annarri, — ein
hringavitleysan annarri verri,
þar á meðal vitleysan sem
Spánverjinn Picasso er talinn
upphafsmaður að. Picasso tók
einu sinni strigatusku sem hann
hafði notað til þess að þurrka af
penslunum sinum á henni. Hann
setti tuskuna i ramma og lét
hana á málverkasýningu, sem
hann hélt I Paris. Þessi sýning
hans fékk ekkert sérlega góöa
dóma en einn spekinganna sem
skrifuðu um sýninguna sagði
samt aðþar væri ein mynd mjög
athyglisverð og nýstárleg . —
Það var strigatuskan sem
Picasso hafði þurrkaö penslana
með. Svona á maður að mála,
sagði Picasso og þar með var
abstraktdellan hafin.
Nú er þessi abstraktdella að
ganga sér til húðar. Nú eru
Amerikumenn að taka for-
ystuna á þessu sviði, — og þá
stend ég allt i einu inni i miöri
Uskunni — á gamals aldri!
Gerði grín að erfið-
leikunum
Ég spurði áðan hvernig þér
væri innanbrjósts, en nú vil ég
vera enn berorðari og spyrja:
Ert þú sáttur við heiminn og lif-
ið eins og það varð?
— Já, ég er sáttur við allt. Ég
hef alltaf veriö glaðlyndur og
hef gjarna gert grin að erfið-
leikunum, þegar þeir hafa sótt
mig heim. Þegar ég sá ekki
fram úr peningavandræðum i
gamla daga, hafði ég þann sið
að fara út á götu, ganga þar
fram og aftur og raula eitthvert
lag fyrir munni mér. Ég fékk
svo innblástur af öllu saman og
hætti ekki fyrr en ég hafði búið
til alls konar tilbrigöi af laginu,
sem ég var að raula — heilt tón-
verk! Að þessum gönguferöum
loknum fór ég heim til min og
var þá hinn rólegasti.
Ég er ósköp feginn að mega
bráðum fara héðan. Þess veröur
heldur ekki svo mjög langt að
biða.þvi að mér fer snöggt aftur
núna á tiltölulega skömmum
tima. Og þeim áfanga kviöi ég
ekki þvi ég veit með vissu að við
lifum, þótt þessari jarövist
ljúki. — Ég er að visu ekki
skyggn, en ég hef orðið fyrir
margvislegum áhrifum og
margoft talað við framliðna
menn, þeirra á meðal Einar
Benediktsson skáld. Hann var
mikið meö mér fyrst eftir að
jarölifi hans lauk, og ég talaði
viö hann eins og ég tala við þig
núna.Ég þurftiekkiannaöen að
hugsa, Einar vissi hugsanir
minar og svaraði mér.
— Þú segist ekki kviða
dauðanum, af þvi að þú vitir að
við lifum áfram. En heldur þú
þá aö næsta lif verði eitthvað
skárra en þetta sem viö erum að
basla við núna?
— Það veit ég ekkert um. En
ég held að það verði bara beint
framhald af þessu lifi og mjög
likt þvi sem viö yfirgefum hér.
Ég held lika, aö þar farnist okk-
ur mest eftir þvi hvernig við er-
um úr garði gerð og að velferöin
byggist aöallega á viðleitni
sjálfra okkar. —VS
Útboð
Byggingarnefnd Félagsheimilisins Hlaðir
á Hvalfjarðarströnd óskar eftir tilboðum i
eftirtalda verkhluta, allt efni og vinna
innifalin:
1. Glerullareinangrun, afréttingargrind
og rakavarnarlag i samkomusal.
2. Innréttingar i samkomusal og leiksvið.
3. Afgreiðsluborð, þiljur o.fl.
Útboðsgagna má vitja þriðjudaginn 3.
aprii á Teiknistofuna h.f. Ármúla 6
Reykjavik gegn 20 þús kr. skilatryggingu.
Hjólaskófla til sölu
18 tonna hjólaskófla árg. 1975 til sölu, i
góðu ástandi. Gott verð og greiðsluskil-
málar. Upplýsingar i sima 91-19460 og 91-
32397 (kvöld og helgarsimi)
Hofnotfjóiður°^Uf
Keflovikn “
VII
Fulltrúa
fundur
Landssam
taka
Klúbbana
ORUGGUR AKSTUR
Haldinn að Hótel Sögu
dagana 5. og 6. april 1979.
DAGSKRÁ:
Fimmtudaginn 5. apríl
Kl.
12.00 Sameiginlegur hádegisverður á hótelinu.
Avarp: Hallgrimur Sigurðsson, framkv.
stjóri Samvinnutrygginga.
13.00 Fundarsetning: Hörður Valdimarsson,
form. LKL. ÖRUGGUR AKSTUR. Kosning
fundarstjóra og ritara.
13.30 Avarp: Biskup Islands, herra Sigurbjörn
Einarsson.
13.45 Avarp: Steingrimur Hermannsson,
dómsmálaráðherra.
Fyrirspurnir. Umræður
14.15 Erindi I;: Óli H. Þórðarson. framkvæmda-
. stjori UMFERÐARRAÐS. „Úr réttunum i
réttinn.” Fyrirspuruir. Umræður.
15.00 Erindi II: Jóhannes Bergsveinsson, yfir-
læknir. „Lyfjanotkun og bifreiðaakslur".
Umræður. Fyrirspurnir.
16.00 Kaffihlé.
16.30 Arsskýrsla stjórnar LKL ÖRUGGUR
AKSTUR f. árin 1977-78: Hörður Valdimars-
son. Umræður. Fyrirspurnir.
17.30 Kosning i nefndir fundarins: Umferðar-
öryggisnefnd. Fræðslu- og félagsmálanefnd.
Allsherjarnefnd.
18.00 Kvöldverður á hótelinu. — Veiting
SILFURBILS SAMVINNUTRYGGINGA i
VII. sinn.
20.00 Útbýting tillagna. — Nefndarstörf á hótel-
Föstudaginn 6. april.
09.00 Lok nefndarstarfa. — Frágangur tillagna.
10.00 Fundarframhald. FRÉTTIR AF STARFI í
HEIMAHÖGUM. Arsskýrslur klúbbanna
fluttar af fulltrúum þeirra. — Fyrirspurnir.
12.00 Hádegisverður á hótelinu.
13.30 AREIÐ: Vettvangsganga upp á Reykja-
nesbraut undir leiðsögn frá Vegagerö rlkis-
ins.
14.00 NEFNDIR SKILA STÖRFUM: Formenn
nefndanna eða framsögumenn þeirra.
Umræður.
15.30 Kaffihlé.
16.00 Framhaldsumræða um tillögurnar.
18.00 Endanleg samþykkt tillagna.
19.00 Fundarslit. — Stjórnarkjör. Sameiginlegur
kvöldverður á hótelinu.
Steingrfmur
Óli H.
Jóhannes