Tíminn - 20.05.1979, Page 20
20
Sunnudagur 20. mal 1979.
Rækjuvinnsla
Óskum eftir viðskiptum við nokkra rækju-
báta nú i sumar.
Frekari upplýsingar veittar á skrifstof-
unni eða i sima 96-71189.
Lagmetisiðjan Siglósild, Siglufirði.
Laxveiðibændur
Kaupum ferskan lax til útflutnings á
komandi sumri. Hagstætt verð. Sækjum
heim. Upplýsingar i simum 92-2797 og 92-
3096.
Verkstjóri
Okkur vantar verkstjóra fyrir 1. júli n.k.
Æskilegt að viðkomandi hafi próf frá fisk-
vinnsluskóla og/eða reynslu af verkstjórn
i matvælaiðnaði. Upplýsingar veittar á
skrifstofunni eða i sima 96-71189.
Lagmetisiðjan Siglósild, Siglufirði.
®Félagsstarf eldri borgara
í Reykjavík
Yfirlits- og sölusýning
Efnt verður til yfirlits- og sölusýningar á
þeim fjölbreyttu munum, sem unnir hafa
verið i félagsstarfi eldri borgara á s.l.
starfsvetri.
Sýningin verður haldin að Norðurbrún 1,
dagana 26., 27. og 28. mai 1979 og er opin
frá kl. 13.00 til 18.00 alla dagana.
Enginn aðgangseyrir.
Félagsmálastofnun Reykjavikurborgar.
Laus staða
Staða ritara við embætti rikisskattstjóra,
rannsóknardeild, er hér með auglýst laus
til umsóknar frá 5. júni n.k. Góð vélrit-
unarkunnátta áskilin.
Umsóknir með upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist rann-
sóknardeild riicisskattstjóra, Skúlagötu
57, Reykjavik, fyrir 31. mai n.k.
Reykjavik 16. maí 1979.
Skattrannsóknarstjóri.
Útboð
Rafmagnsveitur rikisins óska eftir tilboð-
um i byggingu aðveitustöðvar við Mjólk-
árvirkjun i Arnarfirði. tJtboðið nær til
byggingarhluta stöðvarinnar, þ.e. jarð-
vinnu, undirstaða fyrir stálvirki og girð-
inga.
útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Raf-
magnsveitna rikisins, Laugavegi 118, 105
Reykjavik, frá og með 21. mai 1979, gegn
kr. 20.000,- skilatryggingu.
Tilboðum skal skila á sama stað fyrir kl.
10 miðvikudag 6. júni n.k. og verða þau þá
opnuð.
Tilboð sé i lokuðu umslagi merkt „79030
RARIK”. Verki á að ljúka fyrir 1. okt.
1979.
^ Karólina hefur engu aft tapa nú þegar hún er gift og er alveg sama um nektarmyndir af sér. Vin-
* kona hennar Maria Niarchos virðist aftur á móti sæmilega klædd.
F"‘kM“1 Mesrine
og Karólína af
Mónakó
Vinsæiustu pcrsónur ársins
1978 i Frakklandi, þ.e.a.s. af
„konungum Ieinn dag,” ef svo
má oröa þaö, eru Mesrine,
óvinur lýftveldisins númer eitt
og Karólína af Mónakó.
Glæpamaöurinn sigrafti prins-
essuna i þessari könnun meft
yfirburftum, en hann fer nú
huldu höffti á ltaliu og gefur
yf irvöldum i Frakklandi langt
nef þaftan. Hans stærsta rán i
fyrra. var þaftað ræna hugum
fólksins algjörlega.
Stúlkan, sem hann býr með
á Italiu heitirSilvia ogstendur
hún nú i bréfaskriftum við
frönsk blöð tilþess að afsanna
að hún hafi nokkurn tima
stundað skækjulifnað . Sagan
segir hins vegar, að þau
Mesrine hafi hitst skömmu
eftir aö hann strauk úr fang-
elsi i Frakklandi, og hafi hún
þá gert það gott sem gleðikona
iÞýskalandi.Húnber Mesrine
vel söguna og segir hann blíð-
an, þrátt fyrir nokkur
Giæsikvendift og glæpamafturinn
Mesrine. Ef þau finnast þýftir
þaft sjálfsagt daufta fyrir bæfti.
hræðileg reiðiköst, og muni
hún fylgja honum fram i rauð-
an dauðann.
Andrúmsloftið kringum
Karóiinu er heldur af-
slappaðra, en hún og Philippe
eru nýkomin úr annarri brúð-
kaupsferð sinni á sex mánuð-
um, ogiþettasinnvar ferðinni
heitið til Antillueyja. Karólina
hefur náö vinsældum fyrir það
hve hún er náttúruleg og eðli-
stjörnur
ársins
1978
leg. Gifting hennar i júni sl.
vakti geysilega athygli og
þótti mörgum hún taka all
hressilega niður fyrir sig.
Vondar spákonur segja, að
Phiiip muniað lokum yfirgefa
hana og skilja hana eftir
einstæöa móður. Hjónakornin
búa i stórri Ibuft á sjöttu hæð á
Avenue Bosquet i Paris en eru
. á stöðugum ferðalögum.
t ferð með þeim á
Antilla-eyjum voru Maria
Niarchos dóttir Niarchosar
milljónera i Grikklandi og
kærasti hennar Alix Chevass-
ie. Þarna sóluðu þau sig og
syntu i sjónum á miðjum
vetri. Karólina segist vilja
eignast fjölda barna, og séu
þau Philippe aöeins að nota
timann meðan þau séu enn tvö
ein.
/
® Karólina stingur sér glæsilega tii sunds.