Tíminn - 20.05.1979, Qupperneq 27
27
Sunnudagur 20. mai 1979.
Ifftir reynslu okkar að dcama or Datsun Cherry einmitt
billinn sem fflestir haffa verift a« leita að.
— Bíllinn er fallegur, hannaður með
notagildi að leíðarljósí og innréttingin
er frábær.
— Vegna þess hve DATSUN Cherry er
breiður er leit að öðrum eins þægind-
um í minni gerðum bíla.
— DATSUN Cherry er tæknilega full-
kominn og búinn öllum þeim kostum
sem hagsýnt fólk kann að meta.
FRAMHJÓLADRIF
STÓRSKUTHURÐ
2JA EÐA 4 DYRA
52 HESTAFLA VÉL (DIN)
SJALFSTÆÐ FJÖÐRUN A
ÖLLUM HJÓLUM
LITAÐAR RuÐUR
HALOGEN LJÓS
SPARNEYTNI OG HATT
ENDURSÖLU- VERÐ
.
Og þegar verðið er tekið með i reikn-
inginn, — þá eru flestir sammála okk-
ur um að DATSUN CHERRY verði
enn einn metsölubíllinn frá DATSUN.
INGVAR HELGASON
Vonarlandi v/Sogaveg — Simar 84510 og 8451 1
Dálkahöfundar eru vlöa er-
lendis þeir blaöamenn, er mest
erulesnir, mestan frama hljóta,
og þykja mest ómissandi i
pressunni. Þeir rita yfirleitt
smágreinar og greinar þeirra
frægustu koma í f jölda blaöa og
á mörgum tungumálum.
Essayistar eru sllkir höfundar
nefndir á útlendu máli en oröiö
er af latneskum og frönskum
uppruna og þýöir aö rannsaka:
brjóta til mergjar.
t blaðaheiminum eru þetta
stuttar greinar — og helst
snjailar um ákveöiö afmarkað
viðfangsefni, sem ofarlega er á
baugi.
Þessi listgrein hefur ekki ver-
ið mikiö stunduö á íslandi, þvi
það er heldur dapurleg iöja aö
skrifa dag eftir dag stuttar,
snjallar greinar. Eru leiðara-
höfundar dagblaöanna besta
dæmið um þaö. I dagleg skrif
þarf slikt úthald og daglegan
innblástur, ef vel á aö vera aö
meöólikindum veröur aöteljast
enda veröa leiöarahöfundar
með timanum oft dapurleikan-
um og sauöalitunum að bráð,
þótt auðvitaö eigi þeir allir sinar
stóru stundir. Leiöarahöfundar
eru þó ekki almennt taldir
essayistar i blaðaheiminum, en
þeirra framlag, þegar þeim
tekst best upp, er llkast þessari
bókmenntagrein.
Svarthöfði
Þetar rætt er um innlenda
dálkahöfunda þá koma manni
Hannes á horninu og Austri
einna fyrsti hug. Vilhjálmur S.
Vilhjálmsson ritaöi Hannes á
horninu i Alþýðublaðið áratug-
um saman og var mikið lesinn
að ég held, en menn skrifuöu
honum lika ef ég man rétt, og
hann lagöi oft túlkandi mat á
innihald bréfanna, tók undir eða
lagðist á móti.
Austri var (eða er) Magnús
Kjartansson sem iengi ritaði
svakalegar greinar i Þjóövilj-
ann,sem sumar voruhættulegri
og máttugri en allt annaö efiii i
blaðinu samanlagtog ég veit að
margir lásu Þjóðviljann ein-
vörðungu til þess aö missa ekki
hina daglegu útvigtun Austra i
blaðinu.
Ég segi Austri var (eöa er)
vegna þess aö þriöji dálka-
höfundurinn virðist hafa lifað
tvisvar. Svarthöfðagreinar
komu á sinum tima i Timanum,
en eftir nokkurra ára þögn fóru
þær skyndilega aðbirtast i dag-
blaöinu Visi.
Ég hyggaðégfari rétt meðað
aðrir menn en VSV hafi ekki
ritaö Hannes á horninu og ég
held aö Magnús Kjartansson
hafi einn ritað undir Austra
nafiiinu. Það geröi Indriöi G.
Þorsteinsson vist lika er hann
reit Svarthöfðagreinar I Timann
en Svarthöföi Visis er að þvi
leyti til óh'kur hinum tveim, aö
það eru ekkí nema 99 prósent
likur á að Indriöi G. Þorsteins-
son riti allar Svarthöfðagrein-
arnar og reyndar allt að þvi
sannað. að svo getur naumast
verið, þvi' svæsnar skamma-
greinar um Framsókn komu
þegar kunnugir vissu að Indriöi
var skorinn upp á sjúkrahúsi og
hafa skurðlæknarnir þá oröið að
finna þessar skammir I iörum
hans og senda blöðunum, ef þær
komu frá honum.
Þannig getum viö sannað svo
ekki verður i móti mælt, að
höfundar Svarthöfðagreina eru
fleiri en einn.
Ritað undir vörumerki
Þetta gerir Svarthöfða að
dularfullri persónu. Ýmsir hafa
verið nefndir sem ræöarar hjá
honum Svarthöfða en skips-
hafnarskráin ervendilega falin.
Að rita undir dulnefni hefur
Uka á sér annan blæ. Yfirleitt
eru nafnlausar niðgreinar
heldur léttvægt blaðaefni, en
Svarthöfði, Austri og Hannes á
horninu eru öðruvisi þvi greinar
þeirra eru ritaöar undir sér-
stöku vörumerki sem gefá þeim
ákveðið siðfræðilegt gildi.
Austri talaði ekkert tæpi-
tungumál og Hannes á Jiorninu
var fyrst og fremst talsmaður
einhvers konarréttlætis og hann
var málsvari litilmagnans en
Svarthöfði lætur sér fátt mann-
JONAS GUÐMUNDSSON:
SUMARBÖK FRÁ SVARTHÖFÐA
legt óviökomandi. Um skoðanir
hans er það helst að segja að
hann er mjög andvigur Fram-
sókn, óspar á lygar um flokkinn
og segir svo satt um hann á
vondum stöðum, sem er hálfu
verra.
Þó er þetta ekki einu sinni
klárt mál, þvi stundum hefur
Ólafur Jóhannesson verið haf-
inn til skýjanna hjá Svarthöfða
og sömuleiðis Þórarinn
Þórarinsson. En segja má að
flestir stjórnmálamenn eigi um
sárt að binda.
Hér að framan var frá þvi
greint að skrif góðra dálkahöf-
unda færu viöa um heim, væru
keypt af mörgum blöðum reglu-
lega.
Forsenda þess er auðvitað að
greinarnar verða að loga af
snilli og verða að vera um al-
þjóðlegt efni eða sameiginlegan
vanda sem flokkast undir al-
menna skynsemi, fremur en
utanrikismál.
Bókin um Svarthöfða
Svarthöfði, Austri og Hannes
á horninu hafa einkum og sér I
lagi skipt sér af innlendum mál-
um. Það er ekki minnsti vafi á
þvi,að þessar greinar hafa haft
áhrif á skoöanamyndun i land-
inu. Svarthöfði er áhrifamaður,
þótt um þaö sé á hinn bóginn
deilt.hvortþar sé á ferðinni sið-
bótarmaður og verndari rétt-
lætis, fremur en leyniskytta
sem fellir mennogmálefni með
fóstu skoti án réttarhalda. Um
það verður ekki fjallað hér, en
nýmæli er það, aö nú er i fyrsta
sinn gerö tilraun til að selja
þessiskrifoftareneinu sinni,að
visu ekki eins og i útlöndum,
heldur með bókarkomi.
Þarna er farið aö þeirri for-
skrift að dægurþrasi og pólitík
er aö mestu sleppt en það tekið
úr greinum Svarthöfða.er hefur
eilift gildi ef svo hátiölega má
að orði komast.
Þarna er að finna margar
snjallar og skemmtilegar grein-
ar, greinar þar sem þessum höf-
undi hefur tekist vel upp.
Meöal annars eru þarna
greinar er heita Skaupin þurfa
að skemmta okkur, Krosstré
holdsins og andans, Fjögurra
megavatta hundur a Akureyri,
Aðeins i Þjóðviljanum, CIA yfir
og alit um kring, Daðason
kveður plötusnúðana, Bændur
búa viö markaðslega innilokun
og Var brotthlaupið gjaldþrot
eða rán? en alls eru greinarnar
um 60 talsins.
Þarna er farið inn á nýja bók-
menntagrein. Aö visu hafa áður
verið gefnar út i bók greinar
sem upphaflega hafa verið
ritaðar i' blöð.en þarna er aug-
sýnilega veriðað reyna aö gefa
út blaöaefni i sumarbækur,
handa fólki til aö lesa i tjaldi og
öðrum sumarlegum fristundum
á landinu kalda.
Þvi veröur ekki á móti mælt
að oft ritar Svarthöfði snjallar
greinar.ogalvegeins án tillits til
þesshvort menngeta verið hon-
um sammála eða ekki.
Kannski fáum við siðar úrval
úr Austra en úrval úr forystu-
greinum dagblaðanna litist mér
ekki á.
bókmenntir