Fréttablaðið - 10.12.2006, Side 6
Að undirbúningi sölu á
hlut ríkisins í Íslenskum aðalverk-
tökum (ÍAV) komu, auk einkavæð-
ingarnefndar og Landsbankans,
Stefán Friðfinnsson, þáverandi
forstjóri ÍAV, aðrir helstu stjórn-
endur félagsins og endurskoðandi
þess, Benoný T. Eggertsson. Þess-
ir aðilar undirbjuggu meðal ann-
ars öll þau kynningargögn sem
aðrir bjóðendur í félagið fengu
afhent og stjórnuðu upplýsinga-
flæði til þeirra. Með öðrum orðum
réðu þeir hvaða upplýsingar lágu
fyrir um ÍAV. Aðrir bjóðendur
ákvörðuðu síðan tilboð sín út frá
þeim upplýsingum.
Samkvæmt fundargerðum
einkavæðingarnefndar frá fundi
hennar 6. mars 2003 voru kynn-
ingargögn fyrir útboðið unnin í
samráði við og eftir upplýsingum
stjórnenda ÍAV. Á sama fundi til-
kynntu stjórnendurnir, með Stef-
án Friðfinnsson, þáverandi for-
stjóra í forsvari, að þeir ætluðu
sér að bjóða í hlut ríkisins í félag-
inu. Þar var einnig fært til bókar í
fundargerð að skýrt væri í kynn-
ingargögnum að allar upplýsingar
sem veittar væru um fyrirtækið
til annarra bjóðenda myndu tak-
markast við þær upplýsingar sem
kynntar hefðu verið í Kauphöll
Íslands. Þar eru ekki birtar tæm-
andi upplýsingar um félagið. Því
höfðu stjórnendurnir aðgang að
miklum upplýsingum um innviði
ÍAV og eignir sem aðrir bjóðend-
ur höfðu ekki.
Í reglum ÍAV um meðferð trún-
aðarupplýsinga segir að „trúnað-
arupplýsingar séu aldrei birtar án
þess að forstjóri eða sá sem hann
tilnefnir hafi samþykkt það“. Því
var upplýsingagjöf til annarra
bjóðenda, keppinauta Stefáns
Friðfinnssonar og hinna stjórn-
endanna, háð samþykki forstjóra
ÍAV, Stefáns Friðfinnssonar.
Í samningi einkavæðingar-
nefndar við Landsbankann um
umsjón með sölunni var hlutverk
bankans meðal annars það að ann-
ast samskipti við stjórnendur ÍAV
og eftirfylgni gagnvart tilboðs-
gjöfum og stjórnendum ÍAV vegna
upplýsingagjafar. Þegar um þetta
var samið var þegar vitað að þess-
ir stjórnendur, sem samkvæmt
samningnum áttu að veita bjóð-
endum upplýsingar um félagið,
voru sjálfir keppinautar þeirra
um hlutinn. Stefnendur í málinu á
hendur íslenska ríkinu vilja meina
að þetta hafi gert stöðu bjóðenda
mjög ójafna, enda stjórnuðu
keppinautar þeirra því hvernig
félagið var kynnt fyrir þeim.
Líkt og sagt var frá í Frétta-
blaðinu í gær annaðist síðan Jón
Sveinsson, fulltrúi Framsóknar-
flokksins í einkavæðingarnefnd,
formaður hennar og þáverandi
stjórnarformaður ÍAV, kynning-
una fyrir öðrum bjóðendum vegna
forfalla stjórnendanna. Þeir voru
þá komnir hinum megin við borð-
ið sem mögulegir kaupendur. Sú
kynning dró upp fremur dökka
mynd af rekstri félagsins að sögn
stefnenda.
www.IKEA.is
1.590,-
GLÄNSA
ljósakrans Ø40 cm
Opið til 22:00
fram að jólum
Samkvæmt nýrri DNA-
rannsókn var Henri Paul,
ökumaður Díönu prinsessu,
ölvaður nóttina
sem hann ók
með hana á
steinstólpa í
París með
þeim afleiðing-
um að hún lést.
BBC-sjón-
varpsstöðin
sýnir heimild-
armynd í dag
þar sem þetta
kemur fram.
Niðurstaða tveggja ára
rannsóknar franskra yfirvalda
var sú að Paul hefði verið undir
áhrifum áfengis og þunglyndis-
lyfja og ekið of hratt. Ættingjar
Pauls töldu hann hins vegar hafa
verið allsgáðan og fengu því
framgengt að ný rannsókn yrði
gerð en niðurstaðan reyndist vera
sú sama.
Ökumaðurinn
var ölvaður
Greiðir þú afnotagjöld?
Ferðu í jólahlaðborð?
Réðu upplýsingaflæðinu
Stjórnendur Íslenskra aðalverktaka stjórnuðu upplýsingaflæði til annarra bjóðenda í útboði á hlut ríkisins
í félaginu. Kynningargögnin drógu upp fremur dökka mynd af rekstri félagsins. Sömu stjórnendur keyptu
síðan hlut ríkisins í félaginu og að lokum það allt. Upplýsingagjöf var háð samþykki forstjóra ÍAV.
Rjúpnaveiðin haustið 2006
er mun minni en í fyrra, sam-
kvæmt skoðanakönnun sem Skot-
veiðifélag Íslands gerði á meðal
félagsmanna sinna. Líklegt er
talið að veiðin í ár sé á milli þrjá-
tíu þúsund og 37 þúsund fuglar.
Helstu ástæður fyrir lítilli veiði
eru óhagstætt veður, fáir veiði-
dagar og lítill veiðistofn, að mati
Skotvís. Náttúrufræðistofnun
mat veiðiþol stofnsins fyrir
umhverfisráðuneytið og byggðist
matið á þeirri stefnu stjórnvalda
að rjúpnaveiðar væru sjálfbærar.
Stofnunin mat stærð stofnsins
2006 um 500 þúsund fugla og við-
unandi veiði um 45 þúsund fugla.
Sigmar B. Hauksson, formaður
Skotvís, telur að aðeins hafi sex-
tán dagar af 25 nýst til veiða
vegna veðurs og tekur fram að
rjúpan hafi verið dreifð vegna
umhleypinga. Líklega hafi kulda-
hret í maímánuði haft alvarlegar
afleiðingar fyrir stofninn, enda
hafi rjúpnaveiði verið léleg í
öllum landshlutum nema helst á
Austfjörðum.
Könnunin leiddi í ljós að meiri-
hluti félagsmanna er ánægður
með skipulag veiðanna. Nánast
allir virtu veiðibann frá mánu-
degi til miðvikudags og stunduðu
hófsama veiði eins og mælst var
til. Einnig kom í ljós að margir
áttu rjúpu frá fyrra veiðitímabili
eða 2,3 rjúpur að meðaltali.
Margir veiddu ekkert í haust
Húsfundur í Boðagranda 7
hefur veitt Sokol Hoda leyfi fyrir
gervihnattadiski utan á húsinu. Disk-
urinn hefur verið sumum íbúum fjöl-
býlishússins þyrnir í augum frá því að
hann var settur upp í fyrra.
Sokol Hoda er íslenskur ríkisborg-
ari ættaður frá Kosovo. Í samtali við
Fréttablaðið fyrir mánuði sagðist
Sokol nota diskinn til að ná sjónvarps-
útsendingum á móðurmálinu, ekki
síst barna sinna vegna.
Leyfi byggingarfulltrúa fyrir upp-
setningu disksins var afturkallað í
haust eftir að tveir íbúar bentu á að
diskurinn hefði ekki fengið löglegt
samþykki húsfélagsins.
Diskamálið var rætt á húsfundi í
þvottahúsinu á Boðagranda fyrir
tveimur vikum. Í fundargerð Jóns
Viðars Jónssonar leikhúsfræðings
segir að Sokol hafi mætt með umboð
frá 27 öðrum íbúum hússins. Sam-
þykkt hafi verið í leynilegri atkvæða-
greiðslu að diskurinn fengi að vera
áfram á húsvegggnum. Ekki var
hljómgrunnur fyrir málamiðlunartil-
lögu um að koma diskinum upp á þak
hússins á kostnað húsfélagsins.
Lögmæti niðurstöðu húsfundarins
hefur nú verið dregið í efa þar sem
sum umboðanna sem Sokol kom með á
húsfundinn hafi verið óvottuð. Kæra
sé væntanleg til ógildingar á niður-
stöðu húsfundarins.
Leyfa sjónvarpsdisk á húsvegg
„Ég og fjölskylda
mín erum í sjokki,“ segir Sokol
Hoda, íbúi á Boðagranda 7.
Í lok september fékk Sokol bréf
frá byggingafulltrúanum í Reykja-
vík. Þar sagði að leyfi sem Sokol
fékk í júní í fyrra fyrir gervi-
hnattadiski utan á blokkinni á
Boðagranda yrði afturkallað. Tveir
íbúðareigendur í blokkinni hefðu
kært diskinn og þeir hefðu réttinn
sín megin þar sem byggingafull-
trúinn hafði heimilað diskinn án
þess að nægjanleg mæting hefði
verið á aðalfund félagsins. Á aðal-
fundinum í þvottahúsinu á Boða-
granda í maí í fyrra samþykktu
fimmtán diskinn en tveir voru á
móti. Alls er sextíu íbúðir í hús-
inu.
Sokol er frá Kosovo en flutti til
Íslands fyrir meira en áratug og er
íslenskur ríkisborgari.
„Þetta er bara útlendingahatur
hjá heimsku fólki. Diskurinn er
bak við hús og ekki fyrir neinum.
Ég setti hann upp til að börnin mín
gætu séð sjónvarp frá föðurlandi
mínu og lært móðurmálið,“ segir
Sokol.
Gunnar H. Sigurgeirsson á tvær
af þremur íbúðum á 10. hæð húss-
ins og Kristín Hinriksdóttir þá
þriðju. Gunnar og Kristín vilja
diskinn burtu þar sem hann spilli
útliti hússins. Þau hafi hins vegar
ekkert á móti því að diskinum yrði
komið fyrir upp á þaki.
Sokol segir að diskur hans sé
einfaldlega of lítill og veikbyggð-
ur til að standast þá vinda sem
leiki um þak hússins á Boða-
granda 7.
Að sögn Sokols hefur hann
þegar fengið undirskriftir allra í
blokkinni nema Gunnars og Krist-
ínar en til þess að fá aftur leyfið
fyrir diskinum þarf að kalla saman
húsfund þar sem tveir þriðju hlut-
ar íbúðareigendanna mæta og
meirihluti þeirra þarf að sam-
þykkja diskinn. En Sokol gengur
illa að fá fund í húsfélaginu. Nýlega
tók annar andstæðinga hans í disk-
amálinu, Kristín Hinriksdóttir, við
formennsku í félaginu.
„Lögfræðingur minn sendi for-
manni húsfélagsins bréf fyrir
nokkrum vikum og óskaði eftir
því að boðað yrði til húsfundar
eins og ég á rétt á. Hún hefur ein-
faldlega ekki svarað bréfinu,“
segir Sokol.
„Ég vil ekki svara þessu,“ svar-
ar Kristín formaður, aðspurð
hvort það væri rétt að hún hefði
ekki svarað beiðni Sokols um hús-
félagsfund.
Hannes Hólmsteinn
Gissurarson segir að málaferlin
gegn sér í Bretlandi hafi kostað
hann um 8 milljónir króna.
Samkvæmt kvöldfréttum Stöðvar
2 í gær á hann á ekki von á því að
fá þá upphæð endurgreidda að
fullu og líklega muni beinn
kostnaður hans vegna málsins
verða um 4 milljónir.
Hannes fagnaði þó því að
dómur yfir honum hefði verið
ógiltur og vonaði að málinu væri
nú endanlega lokið. Jón Ólafsson
höfðaði málið á hendur Hannesi
vegna meiðyrða sem hann lét
falla um Jón og voru birt á ensku
á heimasíðu Hannesar.
Kosta Hannes
átta milljónir
Fimm hangikjöts-
lærum var stolið úr matvöru-
verslun í Reykjavík á fimmtudag.
Á vef lögreglunnar segir að engu
líkara hafi verið en að sjálfur
Kjötkrókur hafi komið snemma
til byggða þótt hann sé ekki
væntanlegur samkvæmt hefðinni
fyrr en á Þorláksmessu.
Þá var tösku stolið í verslunar-
miðstöð í borginni. Hún fannst
skömmu síðar en þjófarnir voru
þá búnir að hirða peninga sem
voru í seðlaveski.
Lögreglan segir fulla ástæðu
fyrir fólk að vera á varðbergi gegn
þjófum þessa dagana því þjófnað-
ur aukist í kringum hátíðarnar.
Bíræfinn þjófur
stal hangikjöti