Fréttablaðið - 10.12.2006, Page 40
Elísabet Alba Valdi-
marsdóttir er vínþjónn
á veitingastaðnum
VOX á Nordica hótel
og hefur náð góðum
árangri í keppnum
erlendis.
Vínþjónninn semur vínseð-
ilinn með tilliti til innflytj-
enda víns, þrúgu, framleið-
enda og framleiðslulands.
Síðan aðstoðar vínþjónn-
inn gestina við að velja við-
eigandi vín með matnum.
Vínþjónninn parar saman
vín við matseðil þannig að
vínið fari vel við matinn og
líka að það sé rétt hrynj-
andi í þeim vínum sem eru
í sömu máltíð þannig að
ekkert vín yfirgnæfi
annað. En þó segir Elísabet
að reglur séu til þess að
brjóta þær og gerir gjarn-
an skemmtilegar tilraunir
í vali í víni.
Framleiðslunámið, eða
fyrsta gráða þjóns, er
undirstaðan. Síðan er
haldið áfram í sérmenntun
erlendis, oft með sjálfs-
nám. Þjónsnámið er
þriggja ára samningsbund-
ið iðnnám og er kennt í
Menntaskólanum í Kópa-
vogi. Grunnnám er líka
hægt að taka í Verkmennta-
skólanum á Akureyri.
Erlendis er í boði fram-
haldsnám fyrir vínþjóna
og í vínfræðum. Elísabet
Alba er lærður þjónn og
sjálflærður vínþjónn. Hún
hefur langa reynslu að
baki í heimi vínsins og en
hefur sótt fjölda nám-
skeiða bæði hjá Vínþjóna-
samtökum Íslands og
erlendis. „Þetta er aðallega
heimalestur og nördaskap-
ur. Maður þarf að hafa
brennandi áhuga á þessu,“
segir Elísabet. Í mars á
næsta ári keppir hún fyrir
hönd Íslands í heimsmeist-
arakeppninni í Barcelona á
Spáni og hlakkar mikið til.
Hún stefnir á að taka
næstu gráðu í vínþjónafag-
inu erlendis og tekur þá
stöðupróf byggt á þekking-
unni sem hún nú þegar
hefur öðlast út af reynslu í
starfi og af lestri. Hún
segir að vínáhuginn sé
ákveðin köllun sem þróast.
„Það besta og versta við
starfið er að vita aldrei allt
um vín,“ segir Elísabet.
Nánar: Vínþjónasamtök
Íslands, www.vin.is.
Aldrei hægt að
vita allt um vín
Að undirbúa sig andlega
fyrir atvinnuviðtal getur
skipt sköpum.
Áður en haldið er í atvinnu-
viðtal er mikilvægt að hafa
rétta hugarfarið. Til að ná
því má reyna að sjá fyrir
sér hvernig viðtalið muni
fara. Settu þér fyrir sjónir
að þú lítir vel út og sért í
góðu jafnvægi. Þér á ekki
eftir að fipast og atvinnu-
veitandinn á eftir að taka
þér vel og líta þig jákvæð-
um augum. Hugsaðu um
þetta annað slagið og lifðu
þig inn í hugsunina eins vel
og þér er unnt.
Í raun er þetta svipað og
þegar maður hlakkar til
þess að fara til útlanda; Þú
ert búinn að kaupa flugmið-
ann og þegar farin/n að sjá
það fyrir þér hvernig þú
liggur á heitum sandi og
sólar þig við Miðjarðarhaf-
ið. Þú finnur tilhlökkunina í
maganum og veist að þetta
á eftir að verða skemmti-
legt frí. Á sama hátt áttu að
gera þér í hugarlund hvern-
ig atvinnuviðtalið fer alveg
eins og þú óskar. Og þegar
stóra stundin rennur upp
hefur þú þegar plægt jarð-
veginn og þannig verða
miklu meiri líkur á að þér
gangi vel.
Rétta hugarfarið
» Ráðningarþjónusta
HH Ráðgjöf, Ráðningarþjónusta • Fiskislóð 81 • 107 Reykjavík • Sími: 561 5900 • Fax: 561 5909 • hhr@hhr.is • www.hhr.is
Leitar þú að
starfsmanni?
HH Ráðgjöf hefur vönduð vinnubrögð og fagmennsku að leiðarljósi.
Við leggjum metnað okkar í að veita afburðarþjónustu og finna
réttan einstakling fyrir þá aðila sem leita okkar aðstoðar við
ráðningu starfsfólks.
Kostir þess að nýta sér þjónustu HH Ráðgjafar eru m.a.:
Vinnusparnaður
Við vinnum úr umsóknum, leitum í gagnagrunni okkar,
tökum forviðtöl og öflum umsagna.
Markviss leit
Nýr hugbúnaður gerir leit mjög markvissa og tryggir að við finnum hæfasta
einstaklinginn til starfsins.
Enginn auglýsingakostnaður
Við sjáum um að auglýsa starfið eins og þörf krefur án þess að
til komi aukakostnaður.
Þriggja mánaða ábyrgð
Ef starfsmaður hættir eða er sagt upp störfum innan þriggja mánaða
er ráðning í hans stað án endurgjalds.
Nánari upplýsingar
í síma 561 5900
RÁÐNINGARÞJÓNUSTA