Fréttablaðið - 10.12.2006, Blaðsíða 59
Lýsisreitur –Kynningarfundur
að Aflagranda 40
um tillögu að deiliskipulagi
á svæðinu
Í samvinnu við hverfisráð Vesturbæjar verður
haldinn kynningarfundur
þriðjudaginn 12. desember 2006 kl. 17.
í sal félags- og þjónustumiðstöðar,
Aflagranda 40.
Skipulags- og byggingarsvið hefur nú auglýst
deiliskipulag svonefnds Lýsisreits, sem markast
af Grandavegi, Eiðsgranda, Hringbraut og
Framnesvegi. Gert er ráð fyrir stækkun gömlu
Lýsislóðarinnar, sem skipt verður í tvær lóðir,
fjölbýlishúsalóð með u.þ.b. 100 íbúðum og lóð
undir hjúkrunarheimili fyrir allt að 90 vistmenn.
Deiliskipulag Bráðræðisholts sem er innan þessa
reits er að mestu leyti óbreytt, en þar verða leyfðar
minniháttar breytingar og viðbyggingar.
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur
Þjónustumiðstöð Vesturbæjar
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið
OPIÐ ÚTBOÐ
Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf.
Vararafstöð
Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf. (FLE hf.) óskar eftir
áhugasömum aðilum til að taka þátt í opnu útboði
vegna útvegunar og uppsetningar á vararafstöð í nýrri
dreifistöð fyrir flugstöðina á Keflavíkurflugvelli.
Verkið felst í efnisútvegun og uppsetningu á
vararafstöð í nýrri dreifistöð fyrir Flugstöð Leifs
Eiríkssonar. Vararafstöðin tengist háspennubúnaði
sem settur verður upp í sömu byggingu.
Helstu kennitölur eru:
1. Vararafstöð 400V, 2250 kVA
2. Samfösunarbúnaður og lágspennudreifing
3. Olíutankar, niðurgrafinn 20.000L (50h) tankur
og 3.500L (8h) dagtankur.
Afhending útboðsgagna: 05. desember 2006
Áætlað upphaf verks: 12. janúar 2007
Verklok: 01. júní 2007
Útboðsgögnin liggja frammi á skrifstofu Flugstöðvar
Leifs Eiríkssonar hf. á 3.hæð í flugstöðinni á
Keflavíkurflugvelli svo og hjá VSÓ Ráðgjöf,
Borgartúni 20, 105 Reykjavík, frá og með
þriðjudeginum 05. desember 2006. Gögnin eru á
rafrænu formi og verða seld á 10.000 kr.
Tilboðum skal skilað á skrifstofu FLE hf. eigi síðar en
fimmtudaginn 21. desember 2006, kl.: 11:00.
Útboðið er auglýst á evrópska efnahagssvæðinu.
OPIÐ ÚTBOÐ
Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf.
Háspennubúnaður
Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf. (FLE hf.) óskar eftir
áhugasömum aðilum til að taka þátt í opnu útboði
vegna útvegunar og uppsetningar á háspennubúnaði
í nýrri dreifistöð fyrir flugstöðina á Keflavíkurflugvelli.
Verkið felst í efnisútvegun og uppsetningu á
háspennubúnaði í nýrri dreifistöð fyrir Flugstöð Leifs
Eiríkssonar. Háspennubúnaðurinn tengist vararafstöð
sem sett verður upp í sömu byggingu.
Helstu kennitölur eru:
1. Spennir 11/0.4kV, 2500kVA
2. Rofabúnaður 11kV, 6 stk með skápum, mæla-
og varnarbúnaði