Fréttablaðið - 10.12.2006, Blaðsíða 80
Það er alltaf jafn æðis-
legt að flytja sig um
set, hvort sem það er
til langs tíma eða
styttri. Breytingar eru
af hinu góða og það
hafa allir gott af því að
vera ekki alltaf á sama
staðnum og skipta um
umhverfi af og til.
En eins og það er gaman að flytja
á nýjan stað eða fara til útlanda er
alveg jafn leiðinlegt að pakka. Eða
það finnst mér, sama hvort verið sé
að pakka nokkrum fatalufsum niður
í ferðatösku fyrir nokkurra daga
ferðalag eða pakka allri búslóðinni
inn í dagblöð og kassa.
Þessi athöfn er alltaf jafn skelfi-
lega leiðinleg svo ekki sé talað um
að pakka upp úr töskum og kössum.
Það er einn af mínum veikleikum
því ég er skelfilega löt við að taka
upp úr ferðatöskunni þegar heim er
komið aftur. Ríf alltaf fyrst upp
þetta nýja „flotta“ en svo er hitt
„gamla“ skilið eftir í nokkra daga
þangað til ferðataskan fer að verða
fyrir.
Þessa dagana er ég að flytja í
fjórða skiptið á tveimur árum og því
ætti ég að vera búin að venjast þess-
ari athöfn og kannski vera orðin vel
þjálfuð í henni en þetta er mér alltaf
ofviða.
Nú er málið einnig flóknara því í
þetta skiptið er stefnan tekin út
fyrir landsteinana og þarf því að
ígrunda vel hvað skal taka með og
hvað ekki. Einnig er ekki nóg að
setja bollastellið í kassa og út í bíl til
að keyra með það í nokkrar mínútur
eins og hefur verið gert í undanförn-
um flutningum. Nei nú þarf að nota
dagblöðin og kassana óspart því
ekki hef ég áhuga á því að taka á
móti búslóð minni í öreindum þegar
að því kemur.
Ég er því að hugsa um að treysta á
góða ættingja og reyndari einstakl-
inga í að hjálpa mér í þessum efnum
því annars á ég örugglega eftir að
lenda í ofangreindu. Sem hins vegar
leysir vandamálið að pakka upp úr
kössum, ef allt kemur brotið og bram-
lað eftir langtímadvöl á hafi úti hef
ég enga kassa að pakka upp úr. Nei,
það væri samt sem áður ekki nógu
góð byrjun á annars bráðskemmti-
legu ævintýri sem í vændum er.
Allt þetta slím og
rusl er af háruga
bakinu á sokka-
minknum!
Æi hættu þessu, það er nógu
ógeðslegt að þurfa að þrífa
þetta. En það eru ekki til þeir
vasapeningar í heiminum sem
fá mig til að hlusta á þetta bull!
Huh .. Hva’?
Þetta getur
ekki verið
jákvætt.
Velkominn
til framtíðar-
innar!
Bíddu ert þú ég í
framtíð-
inni?
Ekki
séns!
Jamm ... eftir
20 ár til að vera
nákvæmur!
Kona, börn,
skutbíll,
slæmt hné,
einbýlishús
í Grafarvogi
og tann-
lækna-
stofa!
En .. en .. ég skil
ekki, þú átt að vera
rokkstjarna ekki
tannlæknir!
Svona
er þetta
Jamm, varðandi það,
veistu vinur það gerist
ýmislegt! Byrjar þannig
að maður hliðrar örlítið
til, svo fylgir atkvæði
til XB og eftir það er
ekkert sem maður
getur gert til að stoppa
þetta ...
Svo áður en maður veit er
maður kominn í 9 - 5 vinnu
og yfirgreiðslu á skallan!
Jáhá! Aldeilis að við erum
menningalegir í dag
Ég lít frekar
á þetta sem
sjálfsvörn
fyrir
framtíðina!