Fréttablaðið - 10.12.2006, Síða 94
Arsene Wenger, knatt-
spyrnustjóri Arsenal, hefur biðlað
því til stuðningsmanna liðsins að
þeir sýni bakverðinum Ashley
Cole virðingu þegar Arsenal heim-
sækir Chelsea í dag. Það má búast
við rafmögnuðu andrúmslofti á
Stamford Bridge í dag enda er um
að ræða toppslag milli tveggja
Lundúnaliða.
„Það er mín ósk að þessi leikur
verði frábær skemmtun og góð
auglýsing fyrir fótboltann. Það er
eitt af mínum hlutverkum að
reyna mitt besta til að sú verði
raunin. Fótbolti skiptir Englend-
inga miklu máli en við viljum við-
halda virðingu Arsenal. Cole vann
frábæra vinnu fyrir okkur en
ákvað síðan að spila fyrir Chelsea.
Í mínum augum er það ekkert
vandamál. Mikilvægast í okkar
huga er að ná sigri gegn Chelsea
og til að það takist þurfum við að
hugsa um fleiri en einn leikmann,“
sagði Wenger.
Ef Chelsea tapar leiknum í dag
nær Manchester United níu stiga
forystu á toppi deildarinnar með
leik meira en ríkjandi Englands-
meistarar.
Ólíklegt er að markvörðurinn
Carlo Cudicini geti spilað vegna
meiðsla. Hjá Arsenal er William
Gallas meiddur og getur ekki
mætt fyrrum samherjum sínum
og þá tekur Kolo Toure út leik-
bann. Þeirra frægasti leikmaður,
Thierry Henry, er áfram á meiðsl-
alistanum.
Michael Ballack, leikmaður
Chelsea, segir að sitt lið þurfi að
vinna leikinn. „Það er mjög mikil-
vægt fyrir okkur að fá öll stigin úr
leiknum og við megum ekki sætta
okkur við jafntefli. Vonandi náum
við á komandi vikum að vinna upp
þetta forskot sem Manchester
United hefur náð í deildinni,“
sagði Ballack.
Leikur Chelsea og Arsenal í
dag hefst klukkan 16.00 á Stam-
ford Bridge.
Biður fólk um að sýna Ashley Cole virðingu
Manchester United
tryggði stöðu sína á toppi ensku
úrvalsdeildarinnar í gær þegar
liðið lagði nágranna sína í
Manchester City á Old Trafford, 3-
1. Ronaldo innsiglaði sigur United
en markið var umdeilt því ekki
fékkst betur séð en að hann hafi
verið rangstæður.
Ljóst var frá fyrstu mínútu að
von væri á mikilli barátta því það
tók Joey Barton, leikmann City,
ekki nema tíu sekúndur að sparka
Ronaldo gróflega niður.
Ronaldo lét það þó ekki á sig fá
því hann lagði upp fyrsta mark
leiksins þegar hann átti frábæra
sendingu inn á teiginn og þar var
Wayne Rooney mættur til að stýra
boltanum í netið. 1-0 fyrir
Manchester United eftir fimm
mínútna leik.
Eftir þetta náði Manchester
United yfirhöndinni. Annað mark
United-liðsins kom svo á síðustu
mínútu fyrri hálfleiks þegar
Frakkinn Louis Saha skoraði af
stuttu færi eftir sendingu frá
Gabriel Heinze.
United hélt yfirhöndinni í síð-
ari hálfleik og City-liðið fékk fá
marktækifæri framan af hálf-
leiknum en á 72 mínútu dró til tíð-
inda. Steven Ireland, leikmaður
Manchester City, lék þá laglega
upp hægri kantinn, renndi boltan-
um út á Túnisbúann Hatem Trab-
elsi sem skoraði með góðu skoti
frá vítateigslínu og minnkaði mun-
inn í 2-1.
Manchester City sótti töluvert í
sig veðrið eftir þetta en rothöggið
kom á 84. mínútu þegar Ronaldo
skoraði þriðja mark United af
stuttu færi. Það var rangstöðufn-
ykur af markinu en flagg línu-
varðarins fór ekki á loft og markið
því gott og gilt.
3-1 urðu lokatölur leiksins og til
að strá salti í sárið þá fékk Ítalinn
Bernardo Corradi sitt annað gula
spjald á síðustu mínútu leiksins
þegar hann reyndi að fiska víta-
spyrnu fyrir City.
„Við höfum átt erfiða leiki upp
á síðkastið. Ég er viss um að fólk
hefur búist við að við myndum
tapa stigum í þessari viku en leik-
mennirnir eiga hrós skilið,“ sagði
Sir Alex Ferguson, knattspyrnu-
stjóri Manchester United.
„Við áttum að gera út um leik-
inn í síðari hálfleik en því miður
nýttum við ekki tækifærin okkar
og það hefði getað farið illa,“ bætti
Ferguson við.
Stuart Pearce gat lítið mótmælt
rauða spjaldinu sem Corradi fékk
undir lokinn. „Corradi féll full
auðveldlega og ég er ekki eins og
hinir 19 stjórarnir í deildinni sem
myndu sitja hérna og bulla ein-
hverja vitleysu um þetta atvik. Ég
vil frekar að hann standi í lappirn-
ar og ég mun ræða þetta við hann
í vikunni.“
Manchester United lagði nágranna sína í Manchester City á heimavelli sínum,
Old Trafford. Með sigrinum tryggði United stöðu sína á toppi deildarinnar.
Werder Bremen heldur
efsta sætinu í úrvalsdeildinni í
Þýskalandi eftir að hafa unnið
stórsigur 6-2 á útivelli gegn
Eintracht Frankfurt í gær. Naldo
skoraði tvö mörk fyrir liðið en
Jensen, Vranjes, Fritz og Diego
skoruðu allir eitt mark hver.
Stuttgart skaust upp í annað
sætið með sigri á Bochum 1-0 en
það var Streller sem skoraði
markið undir lok leiksins.
Stuttgart er tveimur stigum á
eftir toppliði Bremen en stigi á
eftir Stuttgart koma Bayern
München og Schalke.
Bayern vann 2-1 sigur Energie
Cottbus í gær en Schalke á leik
inni gegn Borussia Dortmund og
með sigri í honum kemst liðið upp
að hlið Werder Bremen á toppi
deildarinnar. Hinn leikur dagsins
verður botnbaráttuslagur milli
Wolfsburg og Alemannia Aachen.
Werder Bremen hefur tveggja
stiga forskot á toppi deildarinnar,
en Stuttgart er í öðru sæti.
Schalke getur þó jafnað Bremen
að stigum í dag þegar liðið mætir
Dortmund á heimavelli sínum.
Bremen er þó með mun hagstæð-
ari markatölu en liðið hefur nú
skorað 45 mörk í 16 leikjum það
sem af er leiktíðarinni.
Werder Bremen
í toppsætinu
Nígeríski sóknarmaður-
inn Nwankwo Kanu trónir á
toppnum yfir markahæstu
leikmenn ensku úrvalsdeildarinn-
ar en hann skoraði síðara mark
Portsmouth í 2-0 sigri á Everton í
gær. Kanu hefur ekki leynt því að
hann stefnir ótrauður á að verða
markakóngur ensku úrvalsdeild-
arinnar og hljóta þar með gull-
skóinn en ljóst er að Portsmouth
gerði góða hluti með því að fá
leikmanninn á frjálsri sölu í
sumar. Þessi fyrrum leikmaður
Arsenal var leystur undan
samningi við WBA eftir síðasta
tímabil.
Kanu hefur skorað níu mörk í
deildinni en á eftir honum koma
fjórir leikmenn sem skorað hafa
átta mörk. Það eru þeir Wayne
Rooney og Louis Saha hjá
Manchester United auk Didiers
Drogba hjá Chelsea og Kevins
Doyle hjá Reading. Sá síðast-
nefndi var nánast óþekkt nafn
fyrir tímabilið en hefur svo
sannarlega slegið í gegn og er
hann undir smásjánni hjá stærri
liðum Englands.
Kanu stefnir á
gullskóinn
Það stóð ekki steinn yfir
steini í spilamennsku West Ham í
gær þegar liðið mætti Bolton.
Bolton sigraði 4-0 og var brúnin
þung á þeim Eggerti Magnússyni
og Björgólfi Guðmundssyni í stúk-
unni enda var þetta þriðji tapleik-
ur Hamranna í röð. West Ham er í
fallsæti, þriðja neðsta sæti deild-
arinnar með fjórtán stig. Kevin
Davies kom Bolton yfir eftir und-
irbúning frá El-Hadji Diouf á
sautjándu mínútu og bætti síðan
öðru við eftir hornspyrnu snemma
í þeim síðari.
Þriðja markið kom þegar um
stundarfjórðungur var til leiks-
loka en það skoraði Diouf eftir að
hafa farið illa með varnarmenn
gestana og kom boltanum fram
hjá Robert Green. Nicolas Anelka
skoraði síðan síðasta mark leiks-
ins eftir að hafa fengið sendingu
frá Gary Speed sem var að spila
sinn fimmhundraðasta leik og
stóð sig mjög vel. Undir blálok
leiksins voru síðan heimamenn
líklegri til að bæta við fimmta
markinu en gestirnir að minnka
muninn.
Sumir enskir fjölmiðlar velta
því fyrir sér hvort Eggert Magn-
ússon muni endurskoða traustsyf-
irlýsingu sína til knattspyrnu-
stjóra West Ham, Alans Pardew.
Stuðningsmenn liðsins eru farnir
að ókyrrast og þær raddir að
verða enn háværari að hinn sænski
Sven Göran Eriksson, fyrrum
landsliðsþjálfari Englands, muni
taka við stjórnartaumunum.
„Bolton spilaði þennan leik
mjög vel en því miður var okkar
frammistaða algjörlega andstæð-
an við það. Við börðumst vel og
reyndum að spila, stundum spil-
uðu leikmenn eiginlega of mikið.
Þessi úrslit gefa samt algjörlega
rétta mynd af leiknum. Eftir síð-
ustu úrslit þurfa leikmenn að sýna
úr hverju þeir eru gerðir, við erum
í erfiðri stöðu og sem lið erum við
einfaldlega ekki nógu góðir í dag,“
sagði Pardew.
Erfið staða West Ham eftir tap gegn Bolton
Íslendingaliðið Lemgo
tapaði á útivelli í gær fyrir Kiel,
37-30. Eftir góða byrjun á mótinu
er Lemgo nú komið í áttunda sæti
deildarinnar.
Logi Geirsson skoraði fjögur
mörk fyrir Lemgo en Ásgeir Örn
Hallgrímsson komst ekki á blað
að þessu sinni. Lítið hefur gengið
hjá Lemgo að undanförnu og liðið
datt úr Evrópukeppninni í
vikunni þar sem Lemgo átti titil
að verja.
Í fyrradag var svo tilkynnt að
félagið ætlaði sér ekki að
endurnýja samninginn við
þjálfara liðsins, Volker Mudrow,
en samningur hans rennur út
næsta vor.
Lemgo tapaði
fyrir Kiel
Ringulreiðin hjá skoska
liðinu Hearts heldur áfram en
fyrirliðinn Steven Pressley, einn
helsti leikmaður liðsins undanfar-
in ár, tilkynnti í gær að hann væri
einfaldlega hættur. Samsæris-
kenningar hafa verið uppi um að
eigandi liðsins, Vladimir Roman-
ov frá Litháen, hafi bolað honum í
burtu. Pressley sagði að mórall-
inn innan liðsins væri slæmur
eftir yfirtökuna hjá Romanov
sem vill vera með hendurnar í
öllu og hefur meðal annars haft
áhrif á liðsuppstillinguna.
Leikmenn Hearts náðu þó að
snúa baki við vandræðaganginum
innan félagsins og sigruðu
Motherwell 4-1 í skosku deildinni
í gær. Hearts er nú í fjórða sæti
deildarinnar en er sautján stigum
frá Glasgow Celtic sem er á toppi
deildarinnar.
Fyrirliðinn
horfinn á braut