Fréttablaðið - 24.12.2006, Page 14
Laganemar á fyrsta ári í Háskóla
Íslands þreyttu próf í hinni víðfrægu
Almennu lögfræði á fimmtudaginn.
„Almennan“, eins og hún er kölluð, er
prófsteinninn á námsferli lögfræði-
nema og er löngu orðin alræmd fyrir
erfitt námsefni og miskunnarlaus
próf.
„Þetta hefur verið í svínslegri kant-
inum í ár,“ segir Friðrik Árni Friðriks-
son laganemi. „‚Það var mikið um and-
vörp og stunur í prófstofunum og
margir voru hreinlega stjarfir við
komuna út.“
Friðrik telur að prófið hafi verið
erfiðara en undanfarin ár. „Maður
mætir ekki í próf í Almennunni til að
brillera, heldur reynir maður bara að
troða marvaðann og halda sér á floti.
Ég er ánægður með að klára þetta og
þetta er þá allavega að baki eftir lang-
ar og erfiðar vikur. Maður reynir að
njóta jólanna og svo kemur bara í ljós
hvernig mér gekk,“ segir Friðrik.
Í fyrra féll rúmur helmingur nem-
enda að sögn Friðriks, en hann býst við
meira falli í ár. „Það er verið að reyna
að sigta út, enda óvenju margir skráðir
í námskeiðið í ár. Það er gott mál að
kröfur séu gerðar og það er til marks
um gæði lagadeildar HÍ. En það má
náttúrulega deila um hversu langt á að
ganga í því,“ segir Friðrik.
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og
útfarir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á
netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysin-
gar@frettabladid.is eða hringja í
síma 550 5000.
„Ég hef náttúrulega aldrei
átt afmæli á neinum öðrum
degi þannig að ég þekki
ekkert annað.“
Bretar og Bandaríkjamenn slíðra sverðin
„Þetta leggst bara mjög vel í mig, ég
hlakka til,“ segir séra Guðbjörg Arnar-
dóttir, sóknarprestur í Oddasókn, sem
mun sjá um sína fyrstu jólamessu í ár.
Guðbjörg var vígð á árinu og tók við
sókninni 1. júlí síðastliðinn.
„Mætingin hefur verið nokkuð góð
síðan ég byrjaði,“ segi Guðbjörg. „Það
er mjög vel mætt þegar unglinga- eða
barnakórinn er að syngja. Guðsþjón-
usturnar hafa verið sérstaklega vel
sóttar á aðventunni.“
Guðbjörg verður önnum kafin í dag,
aðfangadag. „Ég verð á Lundi, hjúkr-
unar- og dvalarheimili á Hellu klukkan
fjögur og messu klukkan sex í Þykkva-
bæjarkirkju. Loks er messa klukkan
ellefu í kvöld í Odda,“ segir Guðbjörg.
Í Oddaprestakalli eru þrjár kirkjur,
sem eru allar í umsjón Guðbjargar. „Á
jóladag klukkan tvö er aftur messa í
Odda og á sama tíma á öðrum í jólum á
Keldum,“ segir Guðbjörg. „Þetta er
nokkuð þétt dagskrá. Það verður nóg
að gera í helgihaldinu.“
Guðbjörg segir að kirkjustarfið sé
kannski meira sýnileg í desember en á
öðrum tímum ársins. „Prestar fara og
tala á samkomum, í skólum og hjá
félagasamtökum og ég er þakklát fyrir
að fá að taka þátt í þannig starfi,“ segir
hún.
Aðspurð segist hún ekki þurfa að
leggja Lúkasarguðspjallið á minnið.
„Líklega kann ég jólaguðspjallið frá
því í barnæsku. Það er að sjálfsögðu
hápunkturinn á messunni. Það er
gaman að fá að takast á við að lesa það
og krefjandi að flytja þessa sögu sem
öllu máli skiptir. Það verður spennandi
að fá að boða fagnaðarerindið nákvæm-
lega eins og það er,“ segir Guðbjörg.
Samveran með fjölskyldunni rask-
ast þó lítillega vegna jólavertíðarinnar.
„Við fjölskyldan borðum ásamt tengda-
föður mínum heima í Odda á milli
messunnar í Þykkvabæ og messunnar
í Odda. Þá tökum við upp eitthvað af
pökkunum og gefum börnunum sinn
tíma. Það verður smá flakk á okkur,“
segir Guðbjörg.
Gullbrúðkaup
Á jóladag 25. desember 2006 eiga
gullbrúðkaup hjónin:
Dagrún Kristjánsdóttir
og Þorbjörn Gissurarson.
Þau giftu sig í kirkjunni á Suðureyri við
Súgandafjörð. Vegna ungs aldurs þurftu
þau forsetaleyfi til þess.
Þau senda öllum ætting jum sínum og vinum
sínar bestu jóla- og nýárskveðjur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
Þórunn Ágústsdóttir
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn
27. desember kl. 13.30.
Hulda Eggertsdóttir
Guðrún Eggertsdóttir Klemenz Gunnlaugsson
Dýrleif Eggertsdóttir
ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Þórunn Sólbjört
Friðjónsdóttir
Hjúkrunarheimilinu Eir, áður að Fannafold 158a,
lést á Hjúkrunarheimilinu Eir 21. desember.
Útförin auglýst síðar.
Björn Ingi Þorvaldsson
Þorvaldur Björnsson Guðrún P. Björnsdóttir
Ingi Þór Björnsson Helga Þóra Þórsdóttir
Bjarni Björnsson Brynja Þorkelsdóttir
Kristinn Björnsson Ampon
barnabörn og barnabarnabörn.
Laganemar í öngum sínum
Tónlistarsíðan Rjóminn
hefur birt lista sinn yfir
bestu plötur ársins, annars
vegar erlendar og hins
vegar innlendar. Af erlend-
um plötum þótti The Life
Pursuit með Íslandsvinun-
um í Belle & Sebastian
skara fram úr, en hljóm-
sveitin hélt tónleika á Nasa
og í Bræðslunni á Borgar-
firði eystri í sumar. Return
to the Sea með Islands, sem
einnig hélt hljómleika á
Íslandi á árinu, er í öðru
sæti árslistans.
Wine For My Weakness,
frumraun Péturs Ben þótti
besta íslenska plata ársins
að mati Rjómans. Please
Don‘t Hate Me með Lay
Low fylgdi fast á hæla henn-
ar.
Pétur Ben á toppinn
Safnplatan 100 íslensk jólalög
fyrir alla fjölskylduna á fimm
geislaplötum er orðin söluhæsta
platan á þessu ári og eru seld 19
þúsund eintök frá útgefanda plöt-
unnar, Senu.
Á plötunum fimm er að finna
samtals hundrað jólalög með
íslenskum flytjendum. Á tveimur
plötum er að finna vinsælustu
jólalögin síðustu tvo áratugina, á
einni er að finna öll gömlu góðu
jólalögin með eldri flytjendum, á
einni er að finna vinsælustu jólabarnalögin og á síðustu eru
hátíðlegri jólalögin.
Jólalög í 19 þúsund