Fréttablaðið - 24.12.2006, Page 44

Fréttablaðið - 24.12.2006, Page 44
Á jólunum er gleði og gaman, fúmm, fúmm fúmm. Á jólunum rífast mamma og pabbi um sós- una. Svo finnst einni frænk- unni sín rjúpa vera seig. Ég borða ekki rjúpur og enginn skammar mig fyrir það. Einu sinni borðaði ég meira að segja eintómt laufabrauð og öllum var sama. Á jólunum fékk ég einu sinni alltaf að opna einn pakka fyrir mat, en ég tími því ekki lengur. Því með aldrinum fækka jóla- pakkarnir. Jólin, jólin allstaðar. Jólin eru úti í bíl, þar er pabbi með aðventuljós tengt í bíl- kveikjarann. Svo geymir hann stundum gjöfina mína í skottinu, alveg þar til á síðustu stundu. Það eru sem sagt jól í skottinu. Það eru jól líka hjá hundinum, en mamma batt á hann rauðan tób- aksklút og hann datt beint í jóla- skapið. Snjókornin falla á allt og alla. Mömmu finnst það jólalegt, en pabbi segir að nú verðum við öll fennt inni og komumst ekki út fyrr en í apríl. Pabbi segir pabbi segir. Hann segir að bráðum komi dýrðleg jól, en mamma segir að við verðum gjaldþrota ef við hættum ekki að gefa svona dýrar gjafir. Ég fæ í jólagjöf: fjarstýrðan bíl, Ipod, fartölvu og Hyundai 166 mhz PC tölvu og eina ljóta úlpu. Svo sá ég einu sinni mömmu kyssa jólasvein, en það reyndist vera Rúddi frændi, með rautt nef því hann fékk sér of mikið af jólabrennsanum. Jólaísinn, jólagotteríð, jóla- myndirnar í ár og jólakötturinn, þetta allt á sínum stað, en jóla- barnið sjálft er ekki að finna. Það er hátíð í bæ, engin spurn- ing. Bjart er yfir Betlehem, ég sá það í sjónvarpinu, þeir eru byrjaðir að bomba gyðingana með öllu sem þeir eiga. Gleðileg jól Gibson. Og Dís, þú komst með jólin til mín og nóttin verður ágætari en nokkru sinni fyrr. ÞAR SEM ALLT SNÝST UM FÓTBOLTA! NÝTT Á GR AS.IS Fréttir og Íþróttir Leikir Skemmtun NÚ FÆRÐU GRAS.IS FÉTTIR Í SÍMANN! Mikið ertu rólegur þrátt fyrir að þú sért að fara í próf! Ég er með áætlun. Felst þessi áætlun í gríðarlegum próflestri? Alls ekki! Mun skólastjórinn andast á dularfullan máta? Þú ert heitur! Áætlunin fellst í mannráni og pyntingum þar til við fáum okkar kröfur í gegn! Áætlunin er sem sagt að eyða ævinni á hrauninnu, frábært plan félagi!

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.