Fréttablaðið - 24.12.2006, Qupperneq 44
Á jólunum er gleði
og gaman, fúmm,
fúmm fúmm. Á
jólunum rífast
mamma og
pabbi um sós-
una. Svo finnst
einni frænk-
unni sín rjúpa
vera seig. Ég
borða ekki
rjúpur og enginn
skammar mig fyrir
það. Einu sinni borðaði ég meira
að segja eintómt laufabrauð og
öllum var sama.
Á jólunum fékk ég einu sinni
alltaf að opna einn pakka fyrir
mat, en ég tími því ekki lengur.
Því með aldrinum fækka jóla-
pakkarnir. Jólin, jólin allstaðar.
Jólin eru úti í bíl, þar er pabbi
með aðventuljós tengt í bíl-
kveikjarann. Svo geymir hann
stundum gjöfina mína í skottinu,
alveg þar til á síðustu stundu.
Það eru sem sagt jól í skottinu.
Það eru jól líka hjá hundinum, en
mamma batt á hann rauðan tób-
aksklút og hann datt beint í jóla-
skapið.
Snjókornin falla á allt og alla.
Mömmu finnst það jólalegt, en
pabbi segir að nú verðum við öll
fennt inni og komumst ekki út
fyrr en í apríl. Pabbi segir pabbi
segir. Hann segir að bráðum
komi dýrðleg jól, en mamma
segir að við verðum gjaldþrota
ef við hættum ekki að gefa svona
dýrar gjafir. Ég fæ í jólagjöf:
fjarstýrðan bíl, Ipod, fartölvu og
Hyundai 166 mhz PC tölvu og
eina ljóta úlpu. Svo sá ég einu
sinni mömmu kyssa jólasvein, en
það reyndist vera Rúddi frændi,
með rautt nef því hann fékk sér
of mikið af jólabrennsanum.
Jólaísinn, jólagotteríð, jóla-
myndirnar í ár og jólakötturinn,
þetta allt á sínum stað, en jóla-
barnið sjálft er ekki að finna.
Það er hátíð í bæ, engin spurn-
ing. Bjart er yfir Betlehem, ég
sá það í sjónvarpinu, þeir eru
byrjaðir að bomba gyðingana
með öllu sem þeir eiga. Gleðileg
jól Gibson. Og Dís, þú komst með
jólin til mín og nóttin verður
ágætari en nokkru sinni fyrr.
ÞAR SEM ALLT SNÝST
UM FÓTBOLTA!
NÝTT
Á GR
AS.IS
Fréttir og Íþróttir Leikir Skemmtun
NÚ FÆRÐU GRAS.IS
FÉTTIR Í SÍMANN!
Mikið ertu
rólegur þrátt fyrir
að þú sért að fara
í próf!
Ég er
með
áætlun.
Felst þessi
áætlun í
gríðarlegum
próflestri?
Alls
ekki!
Mun
skólastjórinn
andast á
dularfullan
máta?
Þú ert
heitur!
Áætlunin fellst
í mannráni og
pyntingum þar til
við fáum okkar
kröfur í gegn!
Áætlunin
er sem sagt
að eyða
ævinni á
hrauninnu,
frábært
plan félagi!