Fréttablaðið - 24.12.2006, Side 51
Tónlistarmaðurinn Moby hefur
hvatt aðdáendur sína til að gleyma
ekki tilgangi jólanna og láta ekki
auglýsingamennskuna sem fylgir
hátíðinni glepja sig.
„Ég vona að einhvern veginn
getum við gleymt öllu glysinu í
kringum jólin og minnst þess að á
jólunum fögnum við afmæli manns
sem vildi að við hefðum fyrirgefn-
ingu, samúð og frið að leiðarljósi.
Jólin snúast um að fagna afmæli
manns sem vildi að við elskuðum
hvert annað og pössuðum upp á
náungann, án þess að láta trúar-
brögð, pólitík eða kynþátta- eða
kynjamismun hafa áhrif á okkur,“
sagði Moby í jólakveðju sinni.
Vill frið og
ást um jólin
Leikstjórinn og leikarinn Clint
Eastwood segist aldrei hafa haft
áhuga á að gerast ríkisstjóri Kali-
forníu eftir að hann hætti sem
bæjarstjóri í Carmel, þrátt fyrir
að hafa verið hvattur til þess.
Eastwood, sem tók upp myndina
Flags of Our Fathers hér á landi í
sumar, er ánægður með frammi-
stöðu kollega síns Arnolds Schwarz-
enegger í embættinu. „Hann er
klár og agaður náungi. Hann mætti
alveg fá meiri völd. Það reyndu
margir að fá mig til að bjóða mig
fram sem ríkisstjóra áður en hann
bauð sig fram en ég sagði: „ekki
möguleiki“,“ sagði Eastwood.
Neitaði
framboði
Elizabeth Hurley er án efa ein
glæsilegasta konan í Hollywood.
Hún er þekkt fyrir að ganga í
glæsilegum kjólum með dýrindis
skartgripi, en nú hefur hún misst
áhugann á glingrinu og stungið
sér á kaf í annað áhugamál. „Þegar
ég átti 41 árs afmæli var mér boðið
skartgripir eða haglabyssur, ég
valdi byssurnar,“ segir Elizabet
Hurley sem er nýtur sín vel í skot-
veiðinni. Haglabyssurnar sem Liz
fékk að gjöf voru handgerðar í
Spáni og er sagt að þær kostuðu
drjúgan skildingiinn.
Fékk tvær
haglabyssur
Poppgoðið Michael Jackson hefur
beðið hiphop ofurupptökustjórann
Will I. Am að vera sér til halds og
traust á næstu breiðskífu sinni, en
Michael hefur ekki tekið upp plötu
síðan 2001. Will I. Am er þekktast-
ur fyrir störf sín með hip-pop
grúbbunni Black Eyed Peas, en
hann hefur einnig unnið með lista-
mönnum á borð við Nas og The
Game upp á síðkastið. „Þegar
Michael hringdi í mig, þá datt mér
ekki hug að þetta væri hann. Ég
hélt að einhver væri að gera grín
að mér,“ segir Will. I. Am. Sam-
starfið hefur gengið vel að sögn
Wills, þrátt fyrir ólíkan bakgrunn,
en hann segir tónlistina sem þeir
skapa saman vera hvetjandi og
jákvæða.
Jackson snýr aftur
með stælUngfrú Bandaríkin, Tara Conner, sem hefur verið gagnrýnd fyrir að
hafa sótt bari þegar hún var undir
lögaldri, mun ekki missa titilinn
að sögn Miss Universe-stofnunar-
innar.
Eigandi stofnunarinnar er við-
skiptajöfurinn Donald Trump og
sjónvarpsstöðin NBC. „Ég hef allt-
af trúað á það að gefa fólki annað
tækifæri,“ sagði Trump.
Conner, sem er frá Kentucky,
vann titilinn í apríl. Hún hefur
búið í New York að undanförnu og
þykir hafa stundað skemmtistað-
ina grimmt þrátt fyrir að hafa
verið undir lögaldri, eða tvítug.
Hún varð 21 árs síðastliðinn
mánudag og má þar með drekka
áfengi.
Missir ekki titilinn