Fréttablaðið - 18.01.2007, Side 10
18. janúar 2007 FIMMTUDAGUR
DóMsMál Ákæra í 28 liðum á hend-
ur sex ungmennum sem fóru ráns-
hendi um landið síðastliðið haust
var tekin til aðalmeðferðar í gær.
Hluti hópsins vakti mikla athygli
eftir að hafa verið handtekinn í
kjölfar innbrots í félagsheimilið
Árnes í Gnúpverjahreppi um mið-
bik september. Sú handtaka var
endahnúturinn á ferðalagi þeirra
sem hófst á höfuðborgarsvæðinu
nokkrum dögum áður, teygði sig
norður til Húsavíkur og endaði á
Suðurlandi.
Alls eru sex manns, þrír menn
og þrjár stúlkur, ákærð í málinu
vegna brota sem framin voru frá
byrjun júlí og fram yfir miðjan
september á síðasta ári, í ellefu
mismunandi byggðarlögum.
Flestir ákæruliðirnir beinast að
tveimur mannanna, Davíð Þór
Gunnarssyni fæddum 1988 og
Sigurbirni Adam Baldvinssyni
fæddum 1985. Þeir eiga báðir lang-
an sakaferil að baki þrátt fyrir
ungan aldur. Ásamt þriðja mannin-
um, sem er 24 ára, er þeim gefið að
hafa, ýmist einir eða í slagtogi við
hina, framið fimmtán þjófnaði og
innbrot, fjölmarga bílstuldi, fíkni-
efnabrot, umferðarlagabrot, fjár-
svik, eignaspjöll og umboðssvik.
Þá er lögregla höfuðborgar-
svæðisins enn að rannsaka mál sem
Davíð Þór og Sigurbjörn Adam eru
grunaðir um. Í því er þeim gefið að
hafa brotist inn í hús í Breiðholti,
stolið þaðan lyklum að rándýrri
jeppabifreið og klesst hana á flótta
undan lögreglu. Auk þess veittu
þeir talsverðan mótþróa við hand-
töku. Varðstjóri hjá lögreglunni í
Borgarnesi staðfesti einnig að verið
væri að leggja lokahönd á ákæru
vegna alls kyns brota mannanna í
umdæmi hennar, meðal annars
vegna fjölda innbrota í sumarhús.
Davíð Þór hefur ítrekað komist í
kast við lögin á síðustu vikum og
mánuðum. Hann var handtekinn í
Kópavogi síðastliðinn föstudag
vegna hrinu innbrota undanfarna
daga og í kjölfarið úrskurðaður í
gæsluvarðhald til 23. febrúar. Hann
á þess utan ýmis ókláruð mál hjá
lögregluembættum víðs vegar um
landið.
Stúlkurnar eru á aldrinum 16-22
ára. Sú elsta er ákærð fyrir að
hylma yfir með mönnunum með því
að geyma ránsfeng þeirra úr nokkr-
um innbrotanna. Þá fannst einnig
lítilræði af amfetamíni á henni við
handtöku.
Hinar yngri fóru með höfuð-
paurunum tveimur í ferðalag þeirra
um landið. Þær eru fæddar 1990 og
1988. Stúlkurnar eru báðar ákærð-
ar fyrir að taka þátt í þeim fjöl-
mörgu bílstuldum sem hópurinn er
grunaður um á ferðalaginu, auk
þess sem sú yngri er sögð hafa
verið þátttakandi í innbrotinu í
Árnes. Þá var hún með 14,4 grömm
af kannabisefnum í fórum sínum
við handtöku. thordur@frettabladid.is
Árnesgengið ákært
vegna fjölda glæpa
Sex manna hópur ungmenna er fyrir rétti um þessar mundir vegna afbrota-
hrinu sem stóð yfir frá byrjun júlí og fram yfir miðjan september. Hluti hópsins
hefur framið fjöldamörg afbrot síðan þá. 16 ára gömul stúlka á meðal ákærðu.
Félagsheimilið Árnes Hluti hópsins
var handtekinn eftir innbrot í félags-
heimilið um miðjan september á
síðasta ári. Afbrotahrina þeirra teygði sig
yfir ellefu byggðarlög.
6. júlí: Davíð Þór Gunnarsson stelur varningi úr verslun-
inni Samkaupum í Reykjanesbæ.
8. júlí: Davíð Þór handtekinn á Akranesi vegna ölvunar-
aksturs án ökuréttinda.
14. júlí: Davíð Þór stelur flösku af áfengi úr verslun
ÁTVR í Reykjanesbæ.
9. áGúsT: Davíð Þór stelur bifreið á Akureyri og ekur
henni til Hafnarfjarðar.
10. áGúsT: Davíð Þór gerir tilraun til að brjótast inn í
fyrirtæki í Reykjavík.
11. áGúsT: Sigurbjörn Adam Baldvinsson ekur bifreið
án ökuréttinda að bensínstöð Í Sandgerði, dælir á hana
eldsneyti og hverfur af vettvangi án þess að greiða fyrir.
Síðar sama dag brýst hann inn í hús í Reykjanesbæ í
slagtogi við annan þar sem þeir stela miklu magni af
raftækjum, um 118.000 krónum í peningum, armbands-
úrum og ýmsu fleira smálegu. Elsta stúlkan sem ákærð
er í málinu tekur við hluta þýfisins til geymslu.
UM MIðjAn áGúsT: Sigurbjörn Adam og sami vitorðs-
maður brjótast inn á heimili í Grindavík og stela miklu
magni af raftækjum, peningum, skartgripum, bankakort-
um, miklu af fatnaði og peningabauk með ótilgreindri
upphæð. Elsta stúlkan tekur aftur við hluta þýfisins til
geymslu.
13. áGúsT: Davíð Þór og annar maður brjótast inn í
hús í Vogum þar sem lögregla stendur þá að verki og
handtekur.
22. áGúsT: Yngsta stúlkan, sem er 16 ára gömul, er
handtekin í Reykjanesbæ og er þá með í vörslu sinni
14,4 grömm af kannabisefnum.
27. áGúsT: Davíð Þór stelur kvenveski í Garði sem í var
farsími, töluvert af reiðufé og ýmis bankakort. Fór síðan
með óþekktum aðila í hraðbanka í Sandgerði og notaði
kortin til að taka út 22.000 krónur.
28. áGúsT: Davíð Þór og Sigurbjörn Adam brjótast inn
í hús í Reykjanesbæ og stela þaðan peningum, skart-
gripum, skólatösku, raftækjum, áfengisflöskum og ýmsu
öðru smálegu. Yngsta stúlkan tekur við ýmsum munum
úr innbrotinu og geymir.
4. sepTeMbeR: Sigurbjörn Adam vinnur skemmdir á
jeppabifreið í Reykjanesbæ og stelur úr henni nokkrum
bankakortum. Yngri höfuðpaurinn notar síðan hluta
kortanna til að kaupa ýmsan varning.
5. sepTeMbeR: Davíð Þór brýst inn í íbúð í Reykjanes-
bæ og stelur þaðan fatnaði og síma, metið á tæplega
200.000 krónur. Stelur auk þess lyklum af bifreið og ekur
um á henni án ökuréttinda í þrjá daga þar til lögregla
handtekur hann.
10. sepTeMbeR: Sigurbjörn Adam stelur stafrænni
myndavél og tveimur kreditkortum.
11. sepTeMbeR: Sigurbjörn Adam notar annað kortanna
sem hann stal deginum áður og kaupir vörur að andvirði
rúmlega 16.000 krónur í verslunum í Reykjavík.
15. sepTeMbeR: Davíð Þór og Sigurbjörn Adam ásamt
yngri stúlkunum tveimur stela bifreið í Reykjavík og keyra
til Húsavíkur.
16. sepTeMbeR: Sami hópur stelur bifreið á Húsavík og
keyrir aftur suður. Eru grunuð um að hafa brotist inn í
fjölmarga sumarbústaði í Borgarfirði á leiðinni og unnið
á þeim eignarspjöll.
19. sepTeMbeR: Hópurinn brýst inn í félagsheimilið
Árnes í Gnúpverjahreppi og stelur peningaskáp með
hundruðum þúsunda króna í, veski með kortum, ara-
grúa raftækja, miklu magni af áfengi, 12 strengja gítar,
sígarettum, kúrekahöttum, töskum, gosi, vindlum og
vasaljósum.
20. sepTeMbeR: Davíð Þór og Sigurbjörn Adam hand-
teknir á stolnum jeppa í Reykjavík nokkrum klukkustund-
um eftir að þeim var sleppt úr haldi. Klessa jeppann og
veita mótspyrnu við handtöku.
21. sepTeMbeR: Davíð Þór og Sigurbjörn Adam
úrskurðaðir í síbrotagæslu til 20. október.
22. sepTeMbeR: 5 grömm af kannabisefnum tekin af
Sigurbirni Adam við komu hans á Litla-Hraun.
jAnúARbyRjUn: Davíð Þór brýst inn í fjölda sumarbú-
staða í Borgarfirði í slagtogi við aðra.
12. jAnúAR 2007: Davíð Þór handtekinn í Kópavogi
vegna hrinu innbrota undanfarna daga. Úrskurðaður í
gæsluvarðhald til 23. febrúar. Á önnur ókláruð mál hjá
lögregluembættum víðs vegar um landið.
15. jAnúAR 2007: Aðalmeðferð vegna hluta ákæranna
sem beinast gegn ungmennunum hefst.
aFbrotahrina hópsins Árið 2006
FIlIppseyjAR Einn af helstu
leiðtogum uppreisnarhópsins Abu
Sayyaf á Filippseyjum, sem staðið
hefur fyrir fjölmörgum hryðju-
verkaárásum, féll í bardaga við
stjórnarherinn á þriðjudaginn.
Jainal Antel Sali hafði árum saman
verið eftirlýstur af bæði banda-
rískum og filippseyskum stjórn-
völdum og fall hans þykir mikið
áfall fyrir Abu Sayyaf samtökin.
Frá Afganistan bárust síðan í
gær þær fréttir að hermenn á
vegum Atlantshafsbandalagsins
hefðu ásamt afgönskum hermönn-
um haft hendur í hárinu á háttsett-
um talíbana í Helmand-héraði
seint á þriðjudaginn. - gb
Fækkar um einn Filippseyski herforinginn Hermogenes Esperon krossar yfir Abu
Sulaiman á myndaspjaldi eftirlýstra glæpamanna. FRéTTABLAðið/AFP
Uppreisnarmaður fallinn á Filippseyjum og annar handtekinn í Afganistan:
Leiðtogi í Abu Sayyaf skotinn