Fréttablaðið - 18.01.2007, Side 67
FIMMTUDAGUR 18. janúar 2007 31
Sendið okkur línu
Við hvetjum lesendur til að
senda okkur línu og leggja orð
í belg um málefni líðandi stund
ar. Greinar og bréf skulu vera
stutt og gagnorð. Eingöngu er
tekið á móti efni sem sent er
frá Skoðanasíðunni á visir.is.
Þar eru nánari leiðbeiningar. Rit
stjórn ákveður hvort efni birtist
í Fréttablaðinu eða Vísi eða í
báðum miðlunum að hluta eða
í heild. Áskilinn er réttur til leið
réttinga og til að stytta efni.
umræðan
Gróska
Eftir kosningarnar árið 1995, þar sem vinstri flokkarnir
gengu til kosninga í fjórum stjórn-
málaflokkum og tryggðu þar með
eigið valdaleysi með sundrungu
sinni, kom upp sterk umræða um
stöðu vinstri manna. Var það mat
margra að nú skyldu jafnaðar-
menn sameina kraftana líkt og
gert hafði verið með Reykjavíkur-
listanum árið 1994. Þá að vísu
með fulltingi framsóknarmanna
sem duttu út úr umræðunni eftir
að hafa gengið til samstarfs við
hægri menn í ríkisstjórn árið
1995. Þetta var mikil deigla og
náði djúpt inn í flokkana alla.
Ekki síst til unga fólksins sem sá
ekki ástæðuna fyrir sundrung-
unni eða réttlætinguna fyrir hinni
pólitísku skiptingu til vinstri.
Samið skyldi vopnahlé í villta
vinstrinu og hreyfingar samein-
aðar.
Í október árið 1996 hélt á
fimmta tug ungs fólks af vinstri
væng stjórnmálanna til Bifrastar
í Borgarfirði til að funda um
hvernig við gætum flýtt fyrir og
ýtt á eftir sameiningu jafnaðar-
manna. Ungir jafnaðarmenn og -
konur úr öllum flokkum og utan
þeirra. Flest vorum við starfandi
í einhverjum flokkanna fjögurra
sem runnu síðar inn í Samfylk-
inguna en nokkur fjöldi utan
flokka meðal annars vegna van-
trúar á þeim máttlitlu flokkum
sem þarna voru á ferð. Vistin á
Bifröst fór vel í fólk og ákveðið
var að halda áfram samstarfi og
gera tilraun til þess að brjóta
niður flokkamúranna og ná sam-
stöðu um helstu mál.
Við höfnuðum flokkakerfinu
og því afkáralega ástandi sem
ríkti á vinstri vængnum. Jafnað-
armenn sundraðir og áhrifalausir
að mestu. Sjálfstæðisflokkurinn
drottnaði og deildi og Framsókn
sat þversum á fjósbitanum og
hallaði sér í þá átt sem betur var
boðið hverju sinni. Kunnugleg
staða?
Við mynduðum óformlegan
undirbúningshóp að stofnfundi
samtaka sem skyldu taka við hlut-
verki ungliðahreyfinganna og
vinna að sameiningu flokkanna.
Við leigðum hæð á Laugavegi 103,
opnuðum félagsmiðstöð, og skipu-
lögðum af miklum krafti stofnun
samtakanna sem hlutu nafnið
Gróska. Fundurinn var haldinn
þann 18. janúar í Loftkastalanum
árið 1997. Í aðdraganda þess réð-
umst við í mikla fjölmiðlaútrás.
Skrifuðum fjölda greina í blöðin
sem þá voru; Alþýðublaðið, DV,
Mogginn, Helgarpósturinn,
Dagur/Tíminn og Vikublaðið.
Fundurinn tókst feykivel.
Troðfullur kastali og hundruð
manna mættu til að sýna sam-
stöðu í því að sameina flokkanna í
einn. Teningunum er kastað voru
vígorð okkar. Prentuðum þau á
plaköt og dreifimiða sem við
fórum með í skóla landsins og á
marga vinnustaði og kaffihús,
kappið var mikið.
Mikil stemning myndaðist í
kringum stofnun Grósku, fundað
var nær hvern dag vikunnar, við
opnuðum einn fyrsta bloggvef
landsins groska.is og skrifuðum
Hina opnu bók Grósku, sem rit-
stýrt var af Helga Hjörvar og
Flosa Eiríkssyni, sem var okkar
framlag til málefnasamstöðu
jafnaðarmanna. Nokkur hópur
fór síðan til London og vann með
Verkamannaflokknum í kosning-
unum 1997 og er stundin þegar
Tony Blair lýsti yfir sigri í Royal
Festival Hall okkur öllum ógleym-
anleg. Að þekkja sigurstemmingu
er öllum mikilvægt.
Hápunkti náði starf Grósku
með fundaherferð um allt land í
október 1997 undir slagorðinu
Gróska um land allt - sameigin-
legt framboð 1999. Við fengum
lánaðan jeppa hjá Ingvari Helga-
syni og héldum á annan tug funda
hringinn í kringum landið.
Umræðan var mjög hávær og
mikil pressa var á forystumönn-
um flokkanna.
Þar var ríkur vilji fyrir hendi.
Margrét Frímannsdóttir orðin
formaður Alþýðubandalags, Sig-
hvatur Björgvinsson formaður
Alþýðuflokks, Össur Skarphéð-
insson þingmaður og ritstjóri var
ákafur sameiningarsinni og ekki
stóð á Jóhönnu Sigurðardóttur og
Þjóðvaka eða Kvennalista. Þá var
sætur sigur Reykjavíkurlistans
og öflug staða Ingibjargar Sól-
rúnar í bakgrunni tíðarandans
sem tákn fyrir árangurinn sem
hægt var að ná legðum við jafnað-
armenn í fjórum flokkum kraft-
ana saman. Hennar framlag var
mikilvægt á þessum tíma.
Þetta er rifjað upp hér í tilefni
af því að nú eru tíu ár liðin frá
stofnun Grósku. Þeim tímamót-
um ber að fagna enda merkur
áfangi í stjórnmálasögunni. Af
því tilefni höldum við sem að
stofnun Grósku stóðum ráðstefnu
laugardaginn 20. janúar þar sem
fjallað verður um stöðu jafnaðar-
manna í dag.
Er ferlinu lokið eða á eftir að
sameina meira? Vörpum því upp
og mörgu öðru laugardaginn 20.
janúar á ráðstefnu sem hefst kl.
13.00 og verður haldin á
Hallveigarstígnum, húsi Sam-
fylkingarinnar.
Við hvetjum allt Gróskufólk
sem og alla áhugamenn um efl-
ingu jafnaðarstefnunnar að líta
við. Það hefur alltaf verið gaman
á Gróskufundum.
Höfundar eru stofnfélagar í
Grósku - samtökum jafnaðar-
manna, félagshyggjufólks og
kvenfrelsissinna.
Gróska í stjórnmálum – Uppreisn ungliðanna 1997
Hreinn
HreinSSon
Björgvin g.
SigurðSSon
Þetta er rifjað upp hér í tilefni
af því að nú eru tíu ár liðin frá
stofnun Grósku. Þeim tímamót-
um ber að fagna enda merkur
áfangi í stjórnmálasögunni.