Fréttablaðið - 16.02.2007, Side 2
Opið: Alla virka daga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00. Sími: 525 8020.
NOTAÐIR BÍLAR
BÍLL DAGSINS
NISSAN TERRANO LUXURY 33”
Nýskr. 12.03 - Sjálfskiptur - Ekinn 46 þús. km. - Allt að 100% lán.
Verð
2.870
.000.
-
Kveðinn verður upp
dómur í dag í skaðabótamáli
Sigurður Hreinssonar, trésmiðs
frá Húsavík, gegn olíufélaginu
Keri, áður Olíufélaginu.
Sigurður telur sig hafa orðið
fyrir tjóni vegna verðsamráðs
olíufélaganna árin 1995 til 2001.
Ker var sýknað af kröfu og
varakröfu Sigurðar hinn 6.
desember síðastliðinn. Sigurður
fór fram á 180.000 króna skaða-
bætur vegna samráðsins.
Hæstiréttur Íslands kvað upp
dóm þess efnis að héraðsdómur
ætti einnig að taka ýtrustu kröfu
Sigurðar til efnislegrar meðferð-
ar, en staðfesti héraðsdóminn að
öðru leyti.
Héraðsdómur Reykjavíkur
kveður upp dóm um þessa ýtrustu
kröfu í dag.
Dómur kveð-
inn upp í dag
Heiðar, var þetta ekki bara
þorramatur?
„Við erum að tala
um framtíðina og hún er vörðuð
með þessari samgönguáætlun,“
sagði Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra þegar hann mælti
fyrir tillögu til þingsályktunar um
samgönguáætlun á Alþingi í gær.
Þingmenn stjórnarandstöðuflokk-
anna gagnrýna áætlunina hart og
segja hana ótrúverðuga og ólík-
legt að við hana verði staðið. Sturla
svaraði því til að ekkert í efna-
hagsmálum þjóðarinnar gæfi
ástæðu til að efast um að mark-
miðum áætlunarinnar yrði náð á
þeim tíma sem áætlunin gerir ráð
fyrir.
Jón Bjarnason, Vinstri græn-
um, vildi að samgönguráðherra
liti til baka og rifjaði upp fortíð
sína. „Skar ráðherra ekki niður
vegaáætlun sem gilti fyrir síðast-
liðin þrjú eða fjögur ár um sex eða
sjö milljarða króna. Hvernig
eigum við nú að trúa honum
núna?“ Sturla sagði Jón tala mikið
um niðurskurð. „Hann talar minna
um það sem við höfum verið að
gera, þessar stórkostlegu fram-
kvæmdir um allt land.“
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstri grænum, gagnrýndi
harðlega lið í áætluninni sem kall-
aður er sérstök fjármögnun.
„Stærstu loforðin eru í lausu lofti,“
sagði Steingrímur og sagði enga
afstöðu tekna til þess hvernig fjár
verði aflað til framkvæmda eins
og breikkun hringvegarins.
Kristinn H. Gunnarsson, Frjáls-
lynda flokknum, er þeirrar skoð-
unar að taka eigi alla símapening-
ana og verja þeim til samgöngumála
á næstu árum enda vanti 80 millj-
arða upp á áætlunina til að koma
til móts við þær óskir sem liggja
fyrir. „Ég tel að það eigi að vera
pólitískt markmið að verja því fé
sem fékkst fyrir Landssímann til
samgöngumála á næstu fjórum
árum.“ Hann sagði jafnframt að
380 milljarða króna samgöngu-
áætlun væri með öllu ósamræm-
anleg þeim áætlunum ríkisstjórn-
arinnar að verja 400 milljörðum
króna til uppbyggingar virkjana
og stóriðju á tímabilinu.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
formaður Samfylkingarinnar,
sagði að áætlunin sýndi hve mikið
verk væri óunnið í samgöngumál-
um og liti svo á að það væri hið
stóra fjárfestingarverkefni næstu
ára. Hins vegar yrði það ekki gert
nema slegið yrði af í í virkjana- og
stóriðjumálum. Hún segir að nálg-
ast þurfi samgöngumál á nýjan
hátt eða sem mál velferðar-,
atvinnu-, og byggðamál. „Það er
brýnasta velferðarverkefni 21.
aldarinnar að byggja upp veru-
lega góðar samgöngur.“
Samgönguáætlun
harðlega gagnrýnd
Stjórnarandstaðan gefur ekki mikið fyrir samgönguáætlun Sturlu Böðvarssonar
og telur ólíklegt að við hana verði staðið. Efndir fyrri áætlana sýni að einungis
sé um orðagjálfur og atkvæðaveiðar að ræða. Skýr framtíðarsýn, segir Sturla.
Hæstiréttur staðfesti í
gær tólf
mánaða
fangelsisdóm
yfir karlmanni
vegna kyn-
ferðisbrota
hans gagnvart
systurdóttur sinni. Brotin áttu sér
stað sumarið 2003 þegar stúlkan
gisti nokkrar nætur á heimili
mannsins. Stúlkan var þá 10 ára
gömul.
Hann var fundinn sekur um að
hafa káfað innan klæða á rassi og
kynfærum stúlkurnar, sett fingur
inn í kynfæri hennar og nuddað
getnaðarlim sínum við þau.
Framburður stúlkunnar þótti
trúverðugur og var studdur af
vottorðum frá ýmsum læknum.
Auk fangelsisvistarinnar var
manninum gert að greiða
stúlkunni 600.000 krónur í
miskabætur.
Misnotaði syst-
urdóttur sína
Borgarráð Reykjavík-
ur segist harma „þau vinnubrögð
og þær óleyfisframkvæmdir sem
unnar hafa verið af verktökum
Kópavogsbæjar í Heiðmörk“
vegna lagningar vatnsveituæðar.
Reykjavíkurborg stöðvaði
framkvæmdirnar á skógræktar-
svæðinu á föstudag fyrir viku því
framkvæmdaleyfi skorti.
„Borgarráð áréttar nauðsyn
þess að um þetta mikilvæga
útivistarsvæði sé farið með
sérstakri gætni og virðingu. Það
virðist því miður ekki hafa verið
gert í þessu tilviki og er borgarráð
sammála um að leita, í samráði við
Skógrækt Reykjavíkur, allra leiða
til að lágmarka þann skaða sem
unninn hefur verið á svæðinu,“
segir borgarráð.
Harma jarðrask
í Heiðmörkinni
Velferðarsvið Reykja-
víkur segist harma að niðurstöður
úttektar á rekstri Samhjálpar á
stuðningsheimilinu Miklubraut 18
hafi komist til fjölmiðla.
Úttektin er dagsett í september
síðastliðnum en var fyrst lögð
fram í velferðarráði borgarinnar í
fyrradag. Þar segir meðal annars
að heimilismenn telji að þeim hafi
verið borinn skemmdur matur og
að starfsfólk hafi illa sinnt skyld-
um sínum. Reykjavíkurborgar
greiðir Samhjálp fyrir rekstur
Miklubrautar 18. Nú í janúar
samdi borgin við Samhjálp um
rekstur gistiskýlis á Þingholts-
stræti 25. Björk Vilhelmsdóttir.
fulltrúi Samfylkingarinnar í vel-
ferðarráði, segir ótrúlegt að
starfsmenn velferðarsviðs hafi
setið fundi ráðsins þar sem rætt
hafi verið um nýjan samning við
Samhjálp án þess að geta um hina
neikvæðu úttekt varðandi Miklu-
braut 18.
„Ég þykist vita að ef þessar
upplýsingar hefðu verið opinber-
ar hefði ekki verið samið við Sam-
hjálp um enn eitt úrræðið nema
velferðarráð væri þess algerlega
fullvisst að það væri búið að
bregðast við á fullnægjandi hátt,”
segir Björk.
Að sögn Bjarkar telur hún ein-
kennilegt að starfsmenn velferð-
arsviðs skuli segjast harma að
úttektin hafi verið gerð opinber:
„Opinberar úttektir á þjónustu
sem er greitt fyrir af opinberu fé
eru opinbert mál. Mér finnst að
velferðarsviðið eigi að biðjast
afsökunar á því að þessi gögn skuli
ekki hafa verið kynnt velferðar-
ráði fyrr.”
Biðjist afsökunar á leyndinni
Egypti, sem sakaður er um að vera
einn af höfuðpaurum lestarsprengjuárásanna í
Madríd í mars 2004 sem bönuðu 191 manni og
slösuðu 1.800, hélt því fram við yfirheyrslu í
gær, á fyrsta degi réttarhalda yfir 29 sakborn-
ingum í málinu, að hann hefði þar hvergi komið
nærri.
Rabei Osman tjáði dóminum að hann hefði
„aldrei með nokkrum hætti tengst atburðunum
sem áttu sér stað í Madríd,“ þrátt fyrir að
ítalskir saksóknarar hafi hlerað símasamtal
þar sem Osman stærir sig af því að árásirnar í
Madríd hafi verið „hans verk“.
Ströng öryggisgæsla setti mark á upphaf
réttarhaldsins í Madríd í gær. Sakborningar
eru flestir frá Marokkó en aðrir arabar með
ýmis ríkisföng, spænskt þar á meðal. Osman
var fyrstur í vitnastúkuna, en hann svaraði ein-
ungis spurningum verjanda síns.
Tilræðin í Madríd eru mannskæðustu
hryðjuverk sem rakin eru til öfgasinnaðra
múslima sem framin hafa verið í Evrópu. Sak-
sóknarar telja gerendur þá sem vildu hlýða
kalli Osama bin Ladens að refsa skyldi þjóðum
sem áttu aðild að innrásunum í Afganistan og
Írak. Tíu sprengjur í bakpokum voru sprengd-
ar með farsíma-fjarstýringu og voru í fjórum
grenndarlestum troðfullum af fólki á leið til
vinnu snemma að morgni 11. mars 2004.
Sjötíu voru handteknir í rannsókninni, en
tuttugu og níu ákærðir, sjö þeirra meintir
höfuðpaurar. Gert er ráð fyrir að réttarhaldið
taki marga mánuði.
Meintur forsprakki hryðjuverka neitar sök
Farþegaflugvél Air
Mauritania sem var rænt stuttu
eftir flugtak frá Nouakchott,
höfuðborgar Máritaníu, lenti
heilu og höldnu á herflugvelli í
Las Palmas á Kanaríeyjum seinni
partinn í gær. Einn maður var
handtekinn við lendingu en
samkvæmt BBC er ekki vitað
hvað honum gekk til.
Um sjötíu farþegar voru um
borð í vélinni auk átta manna
áhafnar. Talið er að flugræning-
inn hafi krafist þess að flogið yrði
með hann til Frakklands.
Einn maður
handtekinn