Fréttablaðið - 16.02.2007, Side 17
Efnahags- og framfara-
stofnunin, OECD, segir í nýrri
skýrslu að það borgi sig ekki að
stunda launavinnu í Danmörku.
Danska dagblaðið Politiken skýrir
frá þessu á fréttavef sínum.
Í skýrslunni eru danskir
ráðamenn gagnrýndir harkalega.
Í skýrslunni er sagt nauðsynlegt
að gera breytingar á skattkerfinu,
menntakerfinu og lífeyriskerfinu.
Að öðrum kosti sé vart hægt að
búast við miklum hagvexti í
náinni framtíð.
Meðal annars leggur stofnunin
það til að eignaskattur verði
hækkaður svo lækka megi
tekjuskatt.
Launavinna
borgar sig ekki
Einn af ráðgjöfum
forsætisráðherra Íraks sagði í
gær að Muktada al-Sadr, herskár
leiðtogi sjía í Bagdad, væri í Íran,
en vísaði því á bug að hann væri á
flótta til að forðast handtöku.
Sami al-Askari sagði al-Sadr
hafa haldið yfir landamærin
„fyrir nokkrum dögum“ en gaf
ekkert nánar upp um ferðir hans.
Al-Sadr á skyldmenni í Teheran.
„Ég staðfesti að Muktada al-Sadr
sé í heimsókn í Íran. En ég vísa
því á bug að heimsókn hans sé
flótti,“ sagði al-Askari.
Talsmenn Bandaríkjahers
fullyrtu á miðvikudag að al-Sadr
væri í Íran, en stuðningsmenn
hans sögðu það ekki rétt.
Sagður vera far-
inn til Írans
Björgólfur Thor Björg-
ólfsson, aðaleigandi finnska
fjarskiptafyrirtækisins Elisu,
hafnar þeim fréttum sem birtust
nýlega í Helsingin Sanomat,
stærsta dagblaði Finnlands, og hjá
bandarískum fréttastofum, að hann
ætlaði að selja hlut sinn í Elisu.
Fjárfestingafélags Björgólfs Thors,
Novator, á 10,3 prósent í Elisu.
„Við erum ekki að fara að selja
hlut okkar í Elisu,“ hefur finnska
viðskiptablaðið Kauppalehti eftir
Björgólfi Thor. Gengi Elisu hefur
lækkað um nærri sjö prósent
síðustu daga vegna fréttanna,
sem birtust meðal annars í The
Wall Street Journal.
Ætlar ekki að
selja í Elisu
ASKJA · Laugavegi 170 · 105 Reykjavík · Sími 590 2100 · www.askja.is · ASKJA er eini viðurkenndi sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz á Íslandi.
Fjölhæfur eins og þú
Það þarf töluverða fjölhæfni til að vera framkvæmda-
stjórinn á heimilinu, útsjónarsami uppalandinn og
meistarinn í hvers kyns útréttingum. Mercedes-Benz
B-Class er hinn fullkomni fjölskyldubíll og býr yfir
sveigjanleika sem fáir aðrir bílar geta státað af. Hann
er ótrúlega rúmgóður miðað við hversu nettur og
lipur hann er auk þess að vera kraftmikill, þægilegur
og sportlegur, allt í senn.
Þessi glæsilegi meðlimur Mercedes-Benz fjölskyld-
unnar hefur náð frábærum árangri í öryggisprófum og
hlaut m.a. 5 stjörnur í EURO-NCAP. Há staða sætanna
eykur öryggi farþega verulega og gerir allt aðgengi að
bílnum þægilegra. Þá er B-Class frægur fyrir að vera
eyðslugrannur og hefur dísilknúni CDI bíllinn unnið til
verðlauna í sparaksturskeppnum bæði hér heima og
erlendis. Komdu í sýningarsal okkar að Laugavegi 170
og mátaðu bíl sem er fjölhæfur eins og þú.
Verð frá 2.680.000 kr.*
*miðað við tollgengi evru í febrúar 2007
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI