Fréttablaðið - 16.02.2007, Side 18
Súrir hrútspungar og sviðasulta
runnu ljúflega í maga þeirra 200
gesta sem fjölmenntu á árlegt
þorrablót íslensk/ameríska félags-
ins í Hampton Roads í Norfolk í
Virginíu. Blótið var haldið hinn 3.
febrúar síðastliðinn og var fyrsta
þorrablótið þar vestra í vetur. Síðar
fylgdu önnur félög í kjölfarið.
Boðið var upp á hlaðborð með
ýmsum íslenskum og bandarískum
réttum og að sjálfsögðu var hinn
hefðbundni þorramatur á boðstól-
um. Að sögn viðstaddra vakti
hákarlinn og brennivínið mesta
lukku. Allir fengu sér einn hákarls-
bita og eitt brennivínsstaup og þeir
allra hörðustu báðu um ábót.
Þorrablótið er gríðarlega vinsælt
og á hverju ári komast færri að en
vilja. Gestir frá Íslandi, Flórída og
New York flugu til Virginínu til þess
að komast á blótið og sendiherra
Íslands lét sig ekki vanta.
Þorrinn blótaður í Ameríku
Hreiðar Jónsson er einn
þeirra sem hafa það að
áhugamáli að leysa kross-
gátur. Hann segir auðvelt
að læra þessa kúnst en er
óánægður með það hversu
óvandaðar gáturnar eru
orðnar.
„Ég hef ráðið krossgátur alla ævi
og er nú orðinn 71 árs,“ segir
Hreiðar. „Ég fékk áhuga á þessu
sem strákur enda lá þetta alltaf
fyrir mér. Gallinn er hins vegar sá
að nú til dags er orðið erfitt að
finna góðar krossgátur,“ segir
Hreiðar og útskýrir að í blöðum og
krossgátubókum sé oft að finna
sömu krossgáturnar aftur og aftur.
„Eina krossgátan sem ég kann
ekki utan að er sú sem birtist í
Fréttablaðinu á sunnudögum því
ég fæ blaðið sárasjaldan. Nú til
dags virðist lítill metnaður lagður
í krossgátugerð og það er lítið um
erfiðar krossgátur fyrir fólk eins
og mig sem hefur haft þetta að
áhugamáli lengi. Íslenskan býr
yfir óteljandi orðum en samt eru
sömu orðin notuð aftur og aftur
svo það er orðið allt of auðvelt að
ráða gáturnar,“ segir Hreiðar og
bætir því við að galdurinn við að
búa til góða krossgátu felist fyrst
og fremst í orðaforðanum.
„Það þarf að hafa svolítið fyrir
því að finna orðin. Þetta á að reyna
á hugann og valda manni heila-
brotum,“ segir Hreiðar. „Það sem
mér finnst samt verst við kross-
gáturnar núna er hvað þær eru
óvandaðar. Oft eru þær hreinlega
vitlausar þannig að það er jafnvel
ekki hægt að klára þær. Þetta á
helst við í krossgátubókunum en
þar er oft að finna alls kyns orð-
leysur auk þess sem menn eru
farnir að hundsa hefðbundnar
stafsetningarreglur. Y og I eru oft
orðin að sama stafnum og það er
ekki nógu gott,“ segir Hreiðar.
Sjálfur hefur Hreiðar ekki
spreytt sig í krossgátugerð. „Það
er snúið að gera góða krossgátu og
það er seinlegt nema maður hafi
tölvu og hana á ég ekki til. Mér
skilst að það sé orðið erfitt að fá
fólk til þess að búa til krossgátur
og gáturnar verða óvandaðri fyrir
vikið. Þetta er svolítið ríkjandi
hugarfar hjá íslensku þjóðinni.
Við hugsum svo oft að hlutirnir
séu í lagi svo lengi sem einhver er
tilbúinn til þess að kaupa þá,“
segir Hreiðar.
En hver er galdurinn við það að
ráða krossgátur og verða flinkur í
því? „Minnið skiptir miklu máli og
það er í sálinni sjálfri. Hugurinn
er gleyminn en sálin ekki,“ segir
Hreiðar og bætir því við að orða-
forðinn sé ekki síður mikilvægur.
Hreiðar fær líka hjálp að hand-
an við að leysa krossgáturnar. „Nú
heldur þú kannski að ég sé skrít-
inn en ég er læknamiðill og fæ
leiðbeiningar í gegnum mig sem
hjálpa mér að ráða í framtíðina.
Þessar leiðbeiningar koma í vísna-
formi og svo þarf ég að ráða í þess-
ar vísur og túlka þær. Það er þræl-
skemmtilegt og öll þau skilaboð
sem ég hef fengið hafa gengið
eftir,“ segir Hreiðar sannfærandi.
„Það er þetta sama sem hjálpar
mér að ráða krossgáturnar, það
gerist reyndar ekki í formi vísna
en ég finn að hjálpin kemur
þaðan,“ segir Hreiðar.
Fær stundum hjálp að handan
Fleiri skrímsli á leiðinni
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Helmingurinn eftir Ekkert sár
Mikil þörf á
úrbótum
Höldum óhreinindum
á mottunni
R
V
62
17
A
Rekstrarvörur
1982–200725ára
Sigþóra Gunnarsdóttir
Sölumaður í verslun RV
…fjarlægir óhreinindi og vætu af skóm
…hindrar að gólfið innandyra verði hált
…heldur anddyrinu hreinu og snyrtilegu
gólfmottukerfið
Úti- og innimottur
fyrir íslenskar aðstæður