Fréttablaðið - 16.02.2007, Page 22
[Hlutabréf]
Pelle Törnberg, forstjóri sænsku
fríblaðaútgáfunnar Metro Inter-
national, hefur ákveðið að láta af
störfum í lok sumars. Törnberg er
frumkvöðull á sviði dagblaða-
útgáfu en hann, ásamt öðrum, ýtti
fríblaðinu Metro úr vör á götum
Stokkhólms árið 1995.
Metro International er með
stærstu dagblaðaútgáfum í heimi
og gefur út dagblöð í um 20 lönd-
um sem ná til 22,8 milljóna les-
enda á degi hverjum. Útgáfufé-
lagið hefur frá upphafi skilað
hallarekstri, sem skrifast að
mestu á mikinn vöxt blaðaútgáf-
unnar.
Reksturinn hefur batnað eftir
því sem hægt hefur á vextinum og
var síðasta ár í plús. Hagnaðurinn
þá nam 13 milljónum bandaríkja-
dala, jafnvirði rúmlega 888 millj-
óna íslenskra króna, samanborið
við 7 milljóna dala, 478 milljóna
króna, tap árið á undan. Þá námu
tekjur félagsins 416,5 milljóna
dala, jafnvirði 32,6 milljarða
íslenskra króna, sem er 16 pró-
senta aukning á milli ára.
Breska dagblaðið International
Herald Tribune hefur eftir Törn-
berg, sem er fimmtugur að aldri,
að þegar útgáfa Metro hófst hafi
hann ákveðið að stíga frá borði
útgáfufélagsins um leið og gott
stjórnendateymi væri komið að
blaðaútgáfunni. Það sé raunin og
því hafi hann ákveðið að snúa sér
að öðrum störfum, að sögn dag-
blaðsins.
Forstjórinn hættir í sumar
Þegar markaðsvirði Straums-
Burðaráss fór yfir 200 milljarða
króna í vikunni eru sjö Kauphallar-
félög í fyrsta skipti metin á 200
milljarða króna eða meira. Auk
Straums eru þetta Kaupþing, Glitn-
ir, Landsbankinn, Exista, FL Group
og Actavis. Aðeins Actavis flokk-
ast utan þess að vera skilgreint
sem fjármála- eða fjárfestingafé-
lag.
Þá hefur það gerst í fyrsta skipti
að fjögur fyrirtæki eru komin yfir
300 milljarða króna að markaðs-
virði eftir að Exista fór yfir 300
milljarða múrinn í vikunni.
Frá áramótum hefur Úrvalsvísi-
talan hækkað um fjórtán prósent,
en það eru fyrst og fremst fjár-
málafyrirtæki og fjárfestingafélög
sem hafa dregið vagninn. Exista,
FL Group og Landsbankinn hafa öll
hækkað um meira en fimmtung í
virði það sem af er ári. Hækkun á
gengi stærstu félaganna hefur því
valdið mikilli verðmætaaukningu
stærstu fyrirtækjanna.
Langverðmætasta fyrirtækið í
Kauphöll Íslands er Kaupþing sem
metið var á 729 milljarða í gær.
Bankinn er nærri tvöfalt verðmæt-
ari en næsta félag í röðinni sem er
Glitnir, metinn á 379 milljarða
króna.
Til marks um þann vöxt sem
hefur orðið á íslensku stórfyrir-
tækjunum á skömmum tíma þá var
Pharmaco, forveri Actavis, verð-
mætasta fyrirtækið í Kauphöllinni
fyrir tæpum fjórum árum. Mark-
aðsvirðið var þá rétt undir fimmtíu
milljörðum króna.
Kaupþing varð fyrsta fyrirtækið
til að rjúfa 200 milljarða múrinn en
það gerðist eftir að bankinn eignað-
ist FIH í Danmörku um mitt ár
2004.
Markaðsvirði stærsta fyrirtækisins er tæplega tvöfalt meira en þess næst-
stærsta. Kaupþing rauf fyrst fyrirtækja 200 milljarða múrinn árið 2004.
Fjárfestingafélagið Atorka Group
(móðurfélag) skilaði 6.739 milljóna
króna hagnaði í fyrra, þar af um
1.312 milljónum króna á fjórða árs-
fjórðungi. Hagnaður jókst um 352
prósent á milli ára og nam arðsemi
eigin fjár 69,2 prósentum.
Afkoma síðasta ársfjórðungs er
töluvert yfir meðaltalsspá greining-
ardeilda Glitnis og Landsbankans
sem var upp á 628 milljónir króna.
Móðurfélagið færir fjárfesting-
ar í dótturfélögum á gangvirði en
tekur ekki tillit til rekstrar hvers og
eins félags.
Samstæða Atorku skilaði hins
vegar 486 milljóna króna tapi eftir
skatta en í þeim hluta uppgjörsins
er beitt hlutdeildaraðferð þar sem
rekstrarleg afkoma hvers og eins
dótturfélags og afkoma móður-
félags, án endurmats á dótturfélög-
um, er lögð saman. Velta samstæð-
unnar var 31,6 milljarðar.
Heildareignir móðurfélags námu
43 milljörðum króna í árslok og
eigið fé stóð í 17,2 milljörðum.
Meðal dótturfélaga eru Jarðbor-
anir og Promens sem stefnt er að
verði skráð á þessu ári.
Lagt er til að greiddur verði 45
prósenta arður af nafnverði hluta-
fjár fyrir síðasta ár sem svarar
fimmtungi af hagnaði ársins.
Atorka Group langt
yfir væntingum
Tap fjarskipta- og upplýsingatækni-
fyrirtækisins Teymis nam 1.253
milljónum króna á fjórða ársfjórð-
ungi síðasta árs. Félagið birti upp-
gjör í gær. Tapið er langt yfir spá
Landsbankans upp á 93 milljóna
króna tap.
Teymi segir að gengistap vegna
langtímaskulda skýri 927 milljónir
króna af tapinu og bendir á að miðað
við núverandi gengi krónunnar séu
þau áhrif gengin til baka.
„Sala félagsins fyrir fjórða árs-
fjórðung var 5.401 m.kr. sem er
nokkuð yfir væntingum okkar.
Hagnaður fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði (EBITDA) var 1.542
m.kr. eða 28,6 prósent af tekjum
fjórðungsins. Innifalið í þessum
tölum er söluhagnaður fasteigna,
en án hans nam EBITDA framlegð
807 m.kr. eða 15 prósentum af
tekjum,“ sagði í Vegvísi Lands-
bankans í gær.
Gengistap tæpur milljarður
Teymi birti uppgjör fjórða ársfjórðungs í gær.
- úrval af ferskum fiski og
tilbúnum fiskréttum
Er matarboð
um helgina?
Peningaskápurinn ...