Fréttablaðið - 16.02.2007, Page 31
Það er nóg að gera hjá Orra
Hugin Ágústssyni leikara en
hann leikur nú í þremur sýn-
ingum, jafnvel öllum á sama
deginum. Þess vegna hefur
hann lítinn tíma fyrir DVD-
safnið sitt sem nú safnar ryki.
Síðasta sunnudag vann Orri það
afrek að leika í þremur sýningum á
sama deginum. „Ég byrjaði á Ronju
uppi í Borgarleikhúsi, fór svo beint
á frumsýningu á nýja barnaleikrit-
inu hans Dr. Gunna, Abbababb, og
endaði svo aftur uppi í Borgarleik-
húsi á Eilífri hamingju, en þar er á
ferð fyrsta íslenska millistjórn-
endadramað,“ segir Orri. „Það var
strembið, en á sama tíma mjög
gaman því það er gaman að leika í
öllum þessum sýningum.“
Öll þessi vinna gerir það að
verkum að Orri hefur lítinn tíma
fyrir DVD-safnið sitt. „Ég er dug-
legur að kaupa myndir sem mig
langar að sjá eða held að séu áhuga-
verðar að eiga,“ segir Orri. „Vanda-
málið er að ég fæ fá fríkvöld og
þegar þau koma þá nota ég þau
heldur í að eyða tíma með kærust-
unni.“
Orri segir að það heilli kærust-
una takmarkað að setjast niður og
horfa á þrjár gamlar listrænar
myndir í röð og því sé yfirleitt eitt-
hvað annað gert. „Samt læri ég
aldrei og held áfram að kaupa.
Þetta eru orðnar svo margar mynd-
ir að ég er hættur að telja þær sem
ég hef ekki horft á í titlum og er
farinn að telja í hillumetrum,“
segir Orri og bætir við að þetta sé
ákveðin fíkn en þar sem hún sé
mun skárri en margar aðrar þá
hafi hann litlar áhyggjur. „Þegar
ég verð veikur er ég líka einkar vel
staddur hvað varðar afþreyingu.“
DVD-myndirnar eru sem sagt
verstu kaupin hans Orra en hver
eru þau bestu? „Svona í seinni tíð
þá er það úlpan mín. Hún er hálf-
gerð brynja, liggur við að hún sé
skósíð,“ segir Orri. Úlpuna fékk
Orri á fyrsta virkilega kalda degi
vetrarins en eins og íslenskum
eðaltöffurum er von og vísa var
hann alls ekki viðbúinn vetrinum
og einungis klæddur í stuttan
jakka.
„Ég var gjörsamlega að drepast
úr kulda þennan dag. Ég fór inn í
G-Star á Laugaveginum, sá úlpuna
og keypti hana án þess að hugsa
mig um,“ segir Orri. „Hún hefur
gert góða hluti í vetur og margir
sem hafa horft á mig öfundaraug-
um í kuldanum.“
Horfir aldrei á list-
rænu myndirnar
15 til 40 prósenta afsláttur er af jeppadekkjum hjá Arctic
Trucks. Úrvalið er eitt það mesta á landinu.
Arctic Trucks auglýsir þessa dagana dekk á útsöluverði. Dekkin eru
af ýmsum toga, fyrir breytta og óbreytta bíla, og af ýmsum stærðum.
Afslátturinn er 15 til 40 prósent.
Öll dekk, nema AT 405, eru á útsölu. „Dekkin eru af tegundunum
Chaparal, Procomp, og Cepek,“ segie Skúli K. Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Arctic Trucks. „Þau eru öll á útsölu og þar ættu flestir
jeppaeigendur að finna eitthvað við sitt hæfi.
Skúli segir að móttökurnar við afslættinum hafi verið góðar og
þegar veðraskot komi taki salan kipp. „Ég vil benda öllum þeim sem
hafa áhuga á að kaupa sér dekk að skoða heimasíðuna okkar, jeppar.
is eða arctictrucks.is. Þar eru öll dekkin og upplýsingar um þau og
svo er bara að koma eða hringja í okkur til að komast að því hversu
mikill afslátturinn er.“
Jeppadekk á útsölu
Útsala stendur yfir í Rúmco.
Tuttugu til fimmtíu prósenta
afsláttur er veittur á vörum í
versluninni Rúmco við Langholts-
veg 111 í Reykjavík. Til að mynda
er 30 prósenta afsláttur af rúmum,
bæði rafstillanlegum og hefbundn-
um. Tuttugu prósenta afsláttur er
veittur af baðsloppum og sængur-
fatnaði. 30 prósenta afsláttur er af
handklæðum og 20-40 prósent af
rúmteppasettum.
Rúmco er opið virka daga frá
11-18 og laugardaga frá 11-16.
Baðsloppar
og rúm
Hjá versluninni Svar tækni er
risaútsala þar sem bæði LCD
sjónvörp og tölvur eru á góðu
verði en í takmörkuðu magni.
Fartölvur frá Acer fást nú með
40 prósenta afslætti, á krónur
59.900, en í takmörkuðu magni
þar sem aðeins 8 tölvur eru í boði
fyrir þá sem fyrstir koma.
Heimilistölvur frá Acer ásamt
skjá er á 59.900 kr. og eru einnig
í takmörkuðu magni en aðeins
tíu tölvur eru í boði fyrir þá sem
koma fyrstir.
LCD-sjónvörp eru einnig í
takmörkuðu magni þar sem
Viewpia 32 tommu er á 89.000 kr.
og Viewpia 40 tommu er á
179.9000 kr. en í boði eru aðeins
fimm stykki af hvoru tæki.
Viewia LCD 37 tommu er á
149.000 kr. en þar eru aðeins þrjú
tæki í boði. Fjöldi annarra til-
boða er í gangi, takmarkað magn.
Svar tækni er til húsa í Síðumúla
37.
Fyrstur kemur, fyrstur fær
FYRSTUR MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is