Fréttablaðið - 16.02.2007, Page 34

Fréttablaðið - 16.02.2007, Page 34
Jónsi byrjar á námskeiði Tónlistarmaðurinn Jónsi sem er nú aðeins hársbreidd frá því að verða flugþjónn hjá Icelandair, byrjar á hinu fjögurra vikna langa skyldunámskeiði verðandi flugfreyja og -þjóna í næstu viku. Í samtali við Sirkus í síðustu viku var Jónsi eitthvað stressaður yfir því að komast ekki í gegnum námskeiðið en Sirkus trúir ekki á slíkt. Við erum viss um að Jónsi flýgur í gegnum námskeiðið og mun svífa á milli farþega í vélum Icelandair í sumar með bros á vör. Gulllimman selst ekki Ekkert virðist ganga hjá athafnamannin- um Ásgeiri Þór Davíðssyni, einatt kenndum við Goldfinger, að selja Hummer-limmu sína sem hann flutti inn í fyrra. Þessi 17 manna gula glæsibifreið er til sölu fyrir rétt verð en svo virðist sem orstír bílsins komi ef til vill í veg fyrir áhuga mögulegra kaupenda. Sjálfsagt verður bíllinn alltaf tengdur við dansmeyjar og súlustaði á meðan hann er gulur en þó er ekki loku fyrir það skotið að láta sprauta hann, til dæmis svartan. Þá er tengingin við Goldfinger horfin. Aftur í fatabransann Hjónin Gunnar Hilmarsson og Kolbrún Petrea Gunnarsdóttir, sem ráku fataverslunina GK áður en þau seldu hana til Írisar Bjarkar Jónsdóttur, ætla sér að koma aftur inn af krafti á fatamarkaðinn. Heyrst hefur að öflugur fjárfestir sé á bak við þau en það er enginn annar en Eiríkur Sigurðsson, sem seldi verslunar- keðjuna 10/11 til Baugs á sínum tíma fyrir fúlgur fjár og hefur efnast mikið síðan. Þ egar mikið er að gera og fara þarf á marga staði getur verið óþægilegt að þurfa að leita að stæðum í Reykjavík. Íslenskir milljarðamæringar beita sömu brögðum og ráðherrar landsins, eru með einkabílstjóra í fullri vinnu sem sjá um að aka þeim, starfsmönnum fyrirtækjanna og oft erlendum gestum um Reykjavík og nágrenni á sannkölluðum glæsivögnum. Þannig verður biðin sem styst enda er glataður tími tapað fé í viðskipta- heiminum. Vinirnir og viðskiptafélagarnir Sigurður Bollason og Magnús Ármann eiga einn Audi A8 6.0 bíl sem er árgerð 2004. Sá bíll er ekkert slor og kostar nýr um tíu milljónir króna. Þessir bílar eru með 450 hestafla vél og ekki nema 5,2 sekúndur að komast upp í 100 km/ klst. Bíllinn er hinn glæsilegasti bæði að innan sem utan enda maður í fullri vinnu við að aka og hugsa um hann. Bakkabræðurnir Lýður og Ágúst Guðmundssynir eiga svipaðan bíl og Sigurður og Magnús nema hvað bíll bræðranna er ívið lengri. Það sást meðal annars til Brynjólfs Bjarnasonar, forstjóra Símans, stíga upp í þann bíl eftir hluthafafund Símans ekki alls fyrir löngu. Hannes Smárason, forstjóri og aðaleigandi FL Group, notast við nýlegan BMW 760 Li sem er flaggskip BMW. Nýr slíkur bíll kostar yfir 15 milljónir króna og er með 438 hestafla vél. Hannes notar bílinn sjálfur auk þess sem starfsfólk FL Group og gestir fyrirtækisins fá afnot af honum þegar þurfa þykir. Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs og stjórnarformaður 365, sem gefur meðal annars út Sirkus, er mikill Range Rover-maður. Hann ferðast yfirleitt um á Range Rover Superchar- ger en auk þess eiga bæði Baugur Group sem og unnusta hans, Ingibjörg Pálmadóttir, slíka bíla sem starfsmenn og erlendir gestir notast við. Sögusagnir ganga um að einhverjir af þessum milljarðamæringum hafi nú ákveðið að bæta í bílasafnið sitt og kaupa einn flottasta Benz sem sést hefur á götum Reykjavíkur. Sá bíll er glæný útgáfa í E-línu Benz, E65 AMG sem er með 503 hestafla vél og öllum þeim mögulegu og ómögulegu aukahlutum sem hugurinn girnist. Heimildarmenn Sirkus telja að verðið á slíkum bíl sé ekki undir 30 milljónum króna. oskar@ frettabladid. is | sirkus | 16. FEBRÚAR 2007BLS. 2 MILLJARÐAMÆRINGARNIR ÞURFA EKKI AÐ HAFA ÁHYGGJUR AF STÖÐUMÆLASEKTUM Auðkýfingar með einka- bílstjóra í fullri vinnu BRÆÐUR BJÓÐA Í BÍLTÚR Bakkabræðurnir Lýður og Ágúst Guðmundssynir notast við 450 hestafla Audi- bifreið þegar þarf að aka æðstu mönnum fyrirtækja þeirra um bæinn. AÐEINS FLAGGSKIPIÐ DUGAR Hannes býður ekki upp á neitt minna en flaggskip BMW-flotans með einkabílstjóra. VILL BARA BRESKT Jón Ásgeir Jóhannesson er með einfaldan smekk og kýst helst að ferðast um í Range Rover. KLASSAKERRA Það er óhætt að segja að Audi-inn sem Sigurður og Magnús sem og Bakkabræður notast við sé ekkert slor. VINIRNIR DEILA BÍL Vinirnir og viðskiptafé- lagarnir Sigurður Bollason og Magnús Ármann nota sama einkabílstjórann. ENGAR STÖÐUMÆLA- SEKTIR Hannes Smárason þarf ekki að hafa áhyggjur af því að borga í stöðumæla eða leita að stæðum. Umbo›s- og sölua›ili Birkiaska ehf. sími: 551 9239 www.birkiaska.is Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi Minnistöflur Umbo›s- og sölua›ili Birkiaska ehf. sími: 551 9239 www.birkiaska.is Birkiaska Heyrst hefur

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.