Fréttablaðið - 16.02.2007, Blaðsíða 38
| sirkus | 16. FEBRÚAR 2007BLS. 6
Hverjir voru hvar?
Þ að var fullt út úr dyrum þegar klipparinn Böddi hélt upp á það
að hann hefur tekið við rekstri
hárgreiðslustofunnar vinsælu Jóa og
félögum á Skólavörðustígnum af
Simba. Bæði Böddi og Simbi hafa
notið mikilla vinsælda á meðal
Reykvíkinga á undanförnum árum og
miðað við mætinguna á laugardag-
inn má búast við því að biðraðir
myndist á degi hverjum eftir því að
setjast í stólinn hjá Bödda og hans
mönnum. Eigandinn var að sögn
hæstánægður með opnunarteitið
enda var stöðugur gestagangur þá
tvo tíma sem opnunin stóð yfir.
FLOTT HJÓN Böddi klippari og eiginkona hans Harpa voru sæl og sátt við opnunina á
laugardaginn. SIRKUSMYND/DANÍEL
BARN Á LEIÐINNI Fitness-frömuðurinn
Arnar Grant brosti út að eyrum með
konu sinni henni Tinnu. Þau eiga von á
sínu fyrsta barni saman í sumar.
SIRKUSMYND/DANÍEL
Þ að var áhugaverður hópur kvenna samankominn á
Seltjarnarnesinu, nánar tiltekið á
heimili Elínrósar Líndal, eiginkonu
Steinþórs Gunnarssonar, forstöðu-
manns verðbréfamiðlunar Lands-
bankans, á föstudagskvöldið þar
sem skálað var í kampavíni og
málefni líðandi stundar voru rædd.
Jafnrétti, femínismi, viðskipti,
verðbréf, blaðamennska, hönnun og
tíska voru á meðal umræðuefnis en
þarna komu konur saman á sínum
eigin forsendum, til þess m.a. að efla
tengsl kvenna í samfélaginu. Yfir 50
konur sóttu boðið og ræddu stöðu
sína og framtíðaráætlanir.
Kampavín og konur
á Seltjarnarnesi
FLOTTAR Þær Kittý Johansen, Sigríður
Ólafsson og Guðrún Ólöf Gunnarsdóttir
mættu í boðið. SIRKUSMYND/DANÍEL
GESTGJAFINN Elínrós Líndal, gestgjafi boðsins, sést hér lengst til vinstri á myndinni.
Með henni á myndinni eru Ingibjörg Arnljótsdóttir, Anna Margrét Björnsson,
blaðamaður á Fréttablaðinu, og ljósmyndarinn Silja Magg. SIRKUSMYND/DANÍEL
MÆTTAR Þær Sólveig Haraldsdóttir, Guðný Magnúsdóttir og Margrét K. Sigurðar-
dóttir létu sig ekki vanta á Seltjarnarnesið á föstudaginn. SIRKUSMYND/DANÍEL
MITT Á MILLI Fyrirsætan fyrrverandi Díana Bjarnadóttir var ekki í slæmum
félagsskap við opnunina. Hér sést hún á milli athafnamannanna Fjölnis Þorgeirs-
sonar og Andrésar Péturs Rúnarssonar. SIRKUSMYND/DANÍEL
Fjölmiðlamógullinn
Sigurður G.
Guðjónsson sást
ásamt eiginkonu
sinni, Láru
Lúðvígsdóttur, á
Hótel 101 þar
sem þau snæddu rómantískan kvöldverð
á laugardagskvöldið.
Það var að vanda fjölmenni
á Boston um helgina en
staðurinn virðist
algjörlega vera að slá
í gegn. Leikkonan
Brynhildur
Guðjónsdóttir var
á staðnum sem og
sjónvarpsdrottning-
in fyrrverandi
Eyrún Magnúsdótt-
ir. Fréttamaðurinn
Guðfinnur
Sigurvinsson leit
við ásamt félaga sínum og Kastljóskóng-
urinn Helgi Seljan, sem er orðin eins og
hver önnur mubla á staðnum, stimplaði
sig að sjálfsögðu inn. Tónlistarmaðurinn
Daníel Ágúst Haraldsson heiðraði einn-
ig staðinn með nærveru sinni.
Trausti Hafliðason,
ritstjóri Blaðsins, og
Janus Sigurjónsson,
einn eigenda hins
nýstofnaða
útgáfufélags DV, voru
venju samkvæmt á
Ölstofunni þar sem
þeir fóru yfir málefni liðinnar viku.
BÖDDI TEKUR VIÐ
JÓA OG FÉLÖGUM
OPIÐ
FRÁ KL 20
ALLA DAGA
VIKUNNAR
BÓHEM
Grensásvegi 5-7