Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.02.2007, Qupperneq 42

Fréttablaðið - 16.02.2007, Qupperneq 42
| sirkus | 16. FEBRÚAR 2007BLS. 10 umtalaðasta í Hollywood. Barnfóstran blaðrar Í júlí 2005 steig barnfóstra Sadie Frost og Jude Law fram og lýsti frá mánaðar- löngu ástarsambandi sínu við hjartaknúsarann meðan tökum á myndinni All The King’s Men stóð yfir. Daisy Wright, barnfóstra þeirra hjóna, sagðist vera yfir sig ástfangin af Jude en Sadie Frost rak hana er hún komst að ástarsambandi hennar við Jude. Ekki var þetta í fyrsta sinn sem Jude hélt framhjá. Maðurinn er fullur af ástríðu. Það er alveg á hreinu. Hann lætur hana kannski stjórna sér aðeins of mikið. Daisy Wright var sögð ætla að koma fram í bandarískum spjallþætti og segja frá sambandi sínu, en við erum enn að bíða eftir þessu viðtali. Þvílíkt sjokk fyrir Siennu Miller. Maðurinn hennar hélt framhjá henni og það með barnfóstrunni sinni. Jude bað Siennu opinberlega afsökunar, en skömmin var of mikil fyrir hana og stuttu seinna hætti hún með Jude eftir átta mánaða trúlofun og þriggja ára samband. Börnin mikilvægust Ekki gerði framhjáhald hans ferlinum gott, því allar þær konur sem dýrkuðu hann og dáðu hér áður fyrr höfðu fengið alveg nóg af honum. Ekki bætti það úr skák að í mörgum af hans nýjustu myndum lék hann flagara og framhjáhaldara. Þar á meðal í kvikmyndinni Alfie og Closer. Síðan Jude og Sienna hættu saman í fyrsta sinn hafa þau hætt og byrjað saman oftar en flestallir Íslendingar til samans. Þetta stóð yfir í tæpt ár eða þangað til í nóvember á síðasta ári er Jude fékk yfir sig nóg af partístandi litlu Siennu og ákvað að það sem skipti hann mestu máli væru börnin hans þrjú, Rafferty, Iris og Rudy. Hvað varðar kvikmyndaferil hans hefur Jude eins og sagt var frá áður ekki staðið undir þeim væntingum sem til hans hafa verið gerðar í Hollywood og er hann þekktari fyrir útlit sitt og einkalíf heldur en leiklistarferilinn. Næst fáum við að sjá Jude í kvikmyndinni Breaking and Entering sem er einmitt leikstýrð af Anthony Minghella. Jude er í miklu uppáhaldi hjá leikstjóranum og segja gagnrýnendur þetta vera hans besta hlutverk síðan hann lék í kvikmynd- inni The Talented Mr. Ripley. J ude Law fæddist í vesturhluta London árið 1972. Hann skipti oft um skóla sem krakki og var eitt sinn færður til vegna hrikalegs eineltis. Á táningsaldri hóf hann leikferil sinn með National Youth Music Theatre. Það var þá er hann hætti alfarið í skóla til að einbeita sér að leiklistinni. Um tíma stundi Jude leiklist við hinn þekkta Guildhall School of Music and Drama en hætti eftir stuttan tíma til að reyna að meika það á eigin spýtur. Það er greinilegt að þessi ungi og metnaða- fulli leikari þráði frægð og frama strax frá unga aldri. Örlög ástarinnar Það er erfitt að fá stóra tækifærið og Jude sá að auðveldasta leiðin til að ná athygli leikstjóra og framleiðenda var í gegnum leikhúsið. Hans fyrsta stóra verk var sem villtur táningur í The Fastest Clock in the Universe eftir Philip Ridley og fljótlega eftir það lék hann í Indiscretion sem byggt er á Les Parents Teribles eftir Jean Cocteau. Nokkrum árum seinna lék hann þetta sama hlutverk á Broad- way á móti Kathleen Turner, en það var á því sviði er Jude vakti athygli Steven Spielberg á breska sjarmörn- um. Eftir nokkur leikrit og misheppn- aðar sjónvarpsseríur sló hann til og tók að sér það verkefni að leika í kvikmynd sem bar heitið Shopping. Það var við tökur á þeirri mynd sem líf hans breyttist til frambúðar, en þar kynntist hann tilvonandi eiginkonu sinni, Sadie Frost. Sadie var á þeim tíma gift söngvaranum Gary Kemp úr 80s hljómsveitinni Spandau Ballet. Mynd- in Shopping fékk ekki góða dóma en þessu ástfangna pari gæti ekki hafa verið meira sama. Árið 1997 sótti Sadie um skilnað við rokkarann og aðeins nokkrum mánuðum seinna giftist hún Jude Law. Það hefur aldrei komið fram að Sadie hélt framhjá eiginmanni sínum til þess að vera með Jude, en ef marka má tímasetn- ingarnar á skilnaði hennar er það ekki ólíklegt. Heppinn í Hollywood Loksins var komið að Jude að slá í gegn og hann gerði það í kvikmynd- inni Wilde frá árinu 1997 sem skartar Stephen Fry í hlutverki ljóðskáldsins Oscar Wilde, en þar lék Jude elskhuga hans, Lord Alfred Douglas. Hlutinir voru loksins byrjaðir að rúlla fyrir manninn sem þráði ekkert meira en að slá í gegn. En á meðan Jude vann hörðum höndum að frama sínum hafði eiginkona hans Sadie lagt feril sinn til hliðar til þess að vera heima með börnum þeirra hjóna, en þau voru ekkert að slaka á í þeim efnum og eignuðust þrjú börn meðan hjónaband þeirra stóð. Jude hélt áfram að leika lítil aukahlutverk, þar á meðal í kvik- myndinni Gattaca, Midnight in the Garden og Good and Evil þangað til leikstjórinn Anthony Minghella fékk Jude til að leika eitt af aðalhlutverk- unum í kvikmyndinni The Talented Mr. Ripley, en Jude var einum of sannfærandi sem hinn hrokafulli Dickie Greenleaf. Myndin naut mikillar velgengni um heim allan og sérstaklega meðal gagnrýnenda. Jude var orðin stjarna. Í kjölfarið á velgengni myndarinnar hreppti Jude hlutverk í myndum á borð við Artificial Intelligence eftir Steven Spielberg. Myndin átti að vera mikill hittari en stóð ekki undir þeim væntingum sem til hennar voru gerðar. Það var ekki fyrr en Jude lék í kvikmyndinni Road to Perdition að hann náði að stimpla sig inn í Hollywood og það gerði hann með stæl. Kannski ekki svo mikið vegna leikhæfileika sinna heldur frekar fyrir stórkostlegt útlit. Honum hafði tekist það sem hann þráði svo lengi. Heillaður af stórstjörnu Með Hollwood nánast í vasanum var ekki mikill tími fyrir fjölskylduna sem bjó enn þá í London. Jude fékk hlutverk í kvikmyndinni The Cold Mountain á móti leikkonunni glæsilegu Nicole Kidman og um leið og tökur hófust á myndinni byrjuðu slúðurblöðin að skrifa um meint samband þeirra. Sadie Frost var nýbúin að fæða þriðja barn þeirra hjóna er sögu- sagnir um samband hans við Nicole Kidman náðu hámarki. Álagið reyndist henni of mikið og hún greindist með fæðingarþung- lyndi. Það var ekki gott á milli þeirra og sögðu margir að Jude og Sadie hefðu ekki gist í saman herbergi í marga mánuði. Nicole og Jude héldu þó í vinskap sinn og sáust oft saman í veislum og fleiri uppákomum í innilegum samræðum. Breska pressan fékk ekki nóg af Jude og Nicole, en það sama átti ekki við um Sadie sem sótti um skilnað frá eiginmanni sínum til sex ára síðla sumars 2003. Margir áttu bágt með að trúa því að eitt sætasta samband Bretlands væri lokið, en það kom öllum enn meira á óvart að Jude flutti strax inn með nýrri konu, hinni rúmlega tvítugu Siennu Miller, um sama leyti og skilnaðarpappírarnir voru undirritaðir. Jude og Sienna Enginn vissi hver Sienna Miller var og myndin Alfie var ekki komin í sýningar, en strax var hún orðin fræg og þá helst fyrir flottan fatastíl og að sjálfsögðu fyrir að vera kærasta eins kynþokkafyllsta leikara í Hollywood. Hvert sem þau fóru vöktu þau athygli. Kvikmyndaferill Jude var ekki næstum því jafn spennandi og ástarlíf hans og hafði Jude alls ekki staðið undir þeim væntingum sem gerðar voru til hans er hann fyrst kom til Hollywood. Mikil alvara var í sambandi hans og Siennu Miller og eftir aðeins tveggja ára samband voru þau búin að trúlofa sig og væntanlegt brúðkaup þessa myndarlega pars yrði án efa eitt það Það hefur sjálfsagt ekki farið framhjá neinum en breski leikarinn JUDE LAW er staddur hér á landi ásamt þremur börnum sínum og barnfóstru. Þau lentu á Keflavík- urflugvelli á mánudaginn, gista 101 Hótel og fóru meðal annars í Laugardalslaugina á þriðjudaginn. Hermt er að þau fari af landi brott næstkomandi mánudag. Sirkus skoðaði líf þessa breska hjartaknúsara sem oftar hefur komist í fréttirnar fyrir einkalífið heldur en frammistöðu á hvíta tjaldinu. SIRKUS-NÆRMYND AF JUDE LAW FRÆGARI FYRIR ÚTLITIÐ EN LEIKHÆFILEIKANA FALLEG FJÖLSKYLDA Sadie Frost og Jude Law eiga þrjú börn saman. Þau eru öll stödd hér á landi með honum. Sadie og Jude voru gift í sex ár. Þau gengu í gegnum erfiðan skilnað en í dag eru þau góðir vinir. nærmynd sirkus STÓRMYNDARLEGT PAR Sienna Miller og Jude Law voru „it“ parið. Ótrúlega myndarleg, flott til fara. Þau vöktu athygli hvert sem þau fóru. SKANDALL Jude Law hélt við barnfóstru hans og Sadie Frost við tökur á myndinni All The King’s Men. Ástarsambandið var ekki langlíft, en Daisy Wright steig fram og sagði sína sögu. Sienna Miller hætti með Jude í kjölfarið. HJARTAKNÚSARI Það er óhætt að segja að Jude Law sé fjallmyndarlegur maður sem veki eftirtekt hvar sem hann fer. Útsala 20-50% afsláttur Langholtsvegi 111, 104 Rvk. Sími 568 7900 Opið virka daga 11-18, laugardaga 11-16 30% afsláttur af rúmum Baðsloppar 20% afsláttur Handklæði 30% afsláttur Rúmteppasett 20-40% afsláttur Sængurfatnaður 20% afsláttur rafstillanleg og hefðbundin. Nýtt kortatímabil
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.