Fréttablaðið - 16.02.2007, Page 45
Lagadeild
Í lagadeild er boðið upp á viðskiptalögfræði
sem samsett er úr greinum lögfræði, fjármála
og viðskipta. Námið er afar hagnýtt og getur
verið góður undirbúningur fyrir atvinnulífið
eða frekara nám. Nemendur útskrifast með
BS gráðu í viðskiptalögfræði.
Viðskiptadeild
Alhliða viðskiptanám sem ætlað er að búa
nemendur undir ábyrgðar-, forystu- og
stjórnunarstörf í innlendu og alþjóðlegu
samkeppnisumhverfi. Í BS námi í
viðskiptafræði eru kennd öll helstu svið
stjórnunar, rekstrar og viðskipta.
Félagsvísindadeild
Deildin býður upp á grunnnám til BA í HHS
(heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði).
Grunnnám í HHS er traustur undirbúningur
fyrir hvers kyns framhaldsnám á sviði hug- og
félagsvísinda, til meistara- eða doktorsgráðu
og fyrir störf á alþjóðlegum vinnumarkaði.
Verið velkomin á kynningu okkar á Stóra háskóladeginum í Borgarleikhúsinu,
laugardaginn 17. febrúar frá kl. 11:00-16:00.
Stjórnenda- og leiðtogaskóli í 89 ár
Háskólinn á Bifröst er eini „campus“-skólinn
í félagsvísindum á Íslandi.
Nemendur vinna raunhæf verkefni
í gegnum allt námið.
Nær helmingur nemenda dvelur
eitt misseri erlendis t.d. í Kína.
Háskólinn á Bifröst býður upp á
mjög öflugt fjarnám.
70% útskrifaðra nemenda
Háskólans á Bifröst eru komnir í
stjórnunarstarf innan 5 ára
að loknu námi.