Fréttablaðið - 16.02.2007, Síða 45

Fréttablaðið - 16.02.2007, Síða 45
Lagadeild Í lagadeild er boðið upp á viðskiptalögfræði sem samsett er úr greinum lögfræði, fjármála og viðskipta. Námið er afar hagnýtt og getur verið góður undirbúningur fyrir atvinnulífið eða frekara nám. Nemendur útskrifast með BS gráðu í viðskiptalögfræði. Viðskiptadeild Alhliða viðskiptanám sem ætlað er að búa nemendur undir ábyrgðar-, forystu- og stjórnunarstörf í innlendu og alþjóðlegu samkeppnisumhverfi. Í BS námi í viðskiptafræði eru kennd öll helstu svið stjórnunar, rekstrar og viðskipta. Félagsvísindadeild Deildin býður upp á grunnnám til BA í HHS (heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði). Grunnnám í HHS er traustur undirbúningur fyrir hvers kyns framhaldsnám á sviði hug- og félagsvísinda, til meistara- eða doktorsgráðu og fyrir störf á alþjóðlegum vinnumarkaði. Verið velkomin á kynningu okkar á Stóra háskóladeginum í Borgarleikhúsinu, laugardaginn 17. febrúar frá kl. 11:00-16:00. Stjórnenda- og leiðtogaskóli í 89 ár Háskólinn á Bifröst er eini „campus“-skólinn í félagsvísindum á Íslandi. Nemendur vinna raunhæf verkefni í gegnum allt námið. Nær helmingur nemenda dvelur eitt misseri erlendis t.d. í Kína. Háskólinn á Bifröst býður upp á mjög öflugt fjarnám. 70% útskrifaðra nemenda Háskólans á Bifröst eru komnir í stjórnunarstarf innan 5 ára að loknu námi.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.