Fréttablaðið - 16.02.2007, Qupperneq 46
| sirkus | 16. FEBRÚAR 2007BLS. 14
EUROVISION-SÉRFRÆÐINGURINN PÁLL ÓSKAR HRIFINN AF RAUÐHÆRÐUM Í ÁR
VILL DR. GUNNA EÐA
EIRÍK TIL HELSINKI
Við mælum með
„Ég mæli með söngleiknum Abbabbabb
sem sýndur er í Hafnarfjarðarleikhúsinu.
Ég fór með börnin um síðustu helgi og ég
grenjaði úr hlátri og börnin voru í
skýjunum. Svona fær mann til að þykja
vænt aftur um leikhús. Það var greinilegt
að þessu fólki þótti gaman í vinnunni og
það skilaði sér til áhorfenda.“
Björk Jakobsdóttir leikkona
„Ég mæli með Tony Robbins-námskeiði í
sumar. „Unleash The Power Within“ fyrir
þá sem leiðist mikið
með sjálfan sig,
nánar um það á
englar.is. Síðan
mæli ég með því
að fólk drekki
mikið grænt te, spili
á trommur og
mölvi
eitthvað
annað
slagið.“
Gunnlaugur Briem tónlistarmaður
„Ég mæli með því að fólk taki þátt í Food
& Fun-hátíðinni, fari út og fái sér gott að
borða. Ég mæli líka með að fólk taki sér
vetrarfrí í stað sumarfrís og fari til útlanda
í janúar og febrúar en ekki yfir eina tímann
þegar almennilegt veður er á Íslandi. Ég
mæli einnig með nýju hljómsveitinni Esju,
með Daníel Ágústi og Krumma, og ef fólk
er ekki búið að kynna sér fatabúðina
Liborius þá er það nauðsynlegt.“
Dóra Takefusa athafnakona
„Ég mæli með
bókunum eftir
bandarískan
blaðamann sem
heitir Mitch Albom.
Bækurnar eru
skemmtileg
blanda af
skáldsögu og
heimspeki.
Þetta eru þrjár
bækur sem
enginn
áhugamaður
um bókmenntir og lífið sjálft ætti að láta
fram hjá sér fara. Ég er nýbúin með þær
og hafði virkilega gaman af.“
Hanna Birna Kristjánsdóttir borgar-
fulltrúi
É g er einhvern veginn svona „torn between two lovers, feeling like a fool“ yfir tveimur atriðum í Eurovision þetta árið. Annars vegar
eru það Dr. Gunni og Heiða og hins vegar Eiríkur
Hauksson. Bæði þessi atriði myndu sóma sér vel í
Helsinki,“ segir Eurovision-sérfræðingurinn Páll
Óskar Hjálmtýsson spurður um það hvaða flytjanda
hann vilji sjá í Eurovision í Helsinki í maí og útskýrir
síðan nánar af hverju hann geti ekki valið á milli
þessara tveggja atriða sem keppa ásamt sjö öðrum
á morgun, laugardagskvöld, um að vera framlag
Íslendinga til Eurovision þetta árið.
„Dr Gunni og Heiða er með alveg frábært lag, „Ég
og heilinn minn“. Það er eitt alskemmtilegasta lag
sem Dr. Gunni hefur samið og mest grípandi. Það
minnir á Beach Boys og það eru ekki slök meðmæli.
Það væri líka skemmtilegt ef jaðarsena íslensks
popps fengi að njóta sín í Eurovision,“ segir Páll
Óskar og bætir við að ekki skipti flutningur Heiðu
minna máli. „Hún er laus við alla tilgerð, mjög
örugg og ég treysti þeim til að vera brjálæðislega
skemmtilegir fulltrúar fyrir Íslands hönd í
Helsinki.“
Páll Óskar er líka hrifinn af rauðhærða
rokkhundinum Eiríki Haukssyni. „Hann
hefur auðvitað farið tvisvar áður en þetta er
í fyrsta sinn sem hann er í þessari keppni á
eigin forsendum með lag sem er í takt við
hans karakter. Það skín í gegn í þessu lagi
hversu mikill afburðarokksöngvari
Eiríkur er og ekki skemmir fyrir að
lagið er mjög gott. Eiríkur er líka afar
viðkunnanlegur, eiginlega svona
auðmjúkur töffari og slíkir menn
vaxa ekki á trjánum,“ segir Páll
Óskar sem stendur einnig fyrir
Eurovision-partíi á NASA að
lokinni sjónvarpsútsendingu frá
úrslitunum.
„Það verður hörkustuð. Ég
lofa því. Það geta allir komið
sem vilja og verður
miðasala við innganginn.
Sigurvegarinn fyrr um
kvöldið mun troða upp auk
þess sem ég býst fastlega
við því að allir aðrir
keppendur muni slást um
að fá að fara á sviðið,“
segir Páll Óskar og hlær.
Rúmeninn Mihai, sem
átti hið geysivinsæla
lag „Torneo“ í
Eurovision í
fyrra, mun
einnig troða
upp á NASA
sem og
úrslitakeppn-
iskvöldinu
sjálfu.
oskar@
frettabladid.is
Útgáfufélag 365 prentmiðlar
Útgefandi Helgi Hermannsson, ábm.
Ritstjórn Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettabladid.is,
Indíana Ása Hreinsdóttir, indiana@
frettabladid.is Útlitshönnun Kristín
Agnarsdóttir kristina@frettabladid.is,
Sirkusblaðið Skaftahlíð 24
105 Rvk, sími 550 5000
Sölustjóri Gréta Karen Grétarsdóttir
550 5864 gretakaren@frett.is
sirkus
„Ég ætla að rifja upp atburði liðins árs
með því að kíkja á sýningu Blaðaljós-
myndarafélagsins í Gerðarsafni sem
verður opnuð á laugardag og fylgja því
svo eftir með því að sjá afhendingu
blaðamannaverðlaunanna seinna um
daginn en þar bind ég vonir við að vinur
minn og fyrrum vinnufélagi á Mogganum,
Davíð Logi Sigurðsson, vinni til
verðlauna. Þetta er í þriðja sinn sem
hann er tilnefndur og það er kominn tími
á að hann fái þessi eftirsóttu verðlaun.“
Eyrún Magnúsdóttir ráðgjafi
„Ég er að fara að spila með Val
gegn Víkingi í deildarbikarnum á
laugardaginn. Síðan ætlum við
Valsmenn að hittast, borða
saman og gera okkur glaðan
dag. Á sunnudaginn verð ég
síðan að vinna á Skjásport þar
sem boðið verður upp á
stórleik í ítalska boltanum.“
Guðmundur Benediktsson
knattspyrnumaður
„Ég held að ég verði
í sveitinni að sinni. Ég
verð að vinna um
helgina og njóta
sveitasælunnar. Ég
ætla síðan að heim-
sækja strákinn
minn til Noregs á
sunnudaginn.“
Fjölnir
Þorgeirs-
son
athafna-
maður
„Kærastinn minn
hringdi í mig og
sagði að ég mætti
ekki plana neitt um
helgina. Ég ætti að
vera tilbúin á
föstudagsmorgun og
gera ráð fyrir því að
koma heim á
mánudag. Meira
veit ég ekki. Ég
er að deyja úr
spenningi og á
örugglega ekki
eftir að sofna
nóttina fyrir. Ég
er mjög forvitin
týpa þannig að
óvissuferðir
fara alveg
sérstaklega illa
í mig.“
Birgitta
Haukdal
söngkona
Hvernig verður helgin?
Þ að hefur lengi verið þekkt staðreynd að flestar konur eru forfallnir skósjúklingar.
Skópör í tugatali fylla skápa margra heimila en
misjafnt er hversu lengi hvert og eitt par tollir í
tískunni. Til eru þó þeir skór í huga flestra
kvenna sem sleppa við allar vorhreingerningar
og tískubylgjur. Skórnir sem lenda alltaf aftur í
skápnum. Sirkus fékk Þórunni Lárusdóttur, leik-
og söngkonu, til að segja frá því hvaða skóm hún
myndi aldrei henda.
„Ég held ég geti sagt það með vissu að það séu
svaðalegir rauðir pinnahælar sem ég keypti fyrir
fimm árum. Þeir eru hárauðir og get ég lofað því
að þeir fara aldrei í ruslið. Ég nota þá ekki oft en
mér finnst ég alltaf vera rosaleg þegar ég fer í þá,“
segir Þórunn Lárusdóttir um rauðu háhæluðu
skóna sína sem munu ávallt verða hluti af
skósafni hennar.
Skórnir sem ekki má henda
HÆGT AÐ NOTA SEM VOPN Þórunn Lárusdóttir segir að hælarnir séu það langir og mjóir að auðveldlega
megi nota þá sem vopn.
SIRKUSMYND/VILHELM
EKKERT GRÍN Framlag Dr. Gunna og Heiðu er ekkert
djók heldur fúlasta alvara.
ROKKIÐ Á
MÖGULEIKA
Páll Óskar
segir tíma til
kominn að gefa
rokkinu
tækifæri í
Eurovision
þetta árið.
ALLTAF TÖFF Eiríkur Hauksson er alltaf
töff að sögn Páls Óskars, jafnvel þótt
hann syngi á norsku.