Fréttablaðið - 16.02.2007, Síða 60
Kl. 09.00
Sýning á bókverkum Sigurborgar
Stefánsdóttur stendur yfir í Þjóðar-
bókhlöðunni. Á sýningunni Spari
bækur eru myndverk í formi bóka.
Verkin á sýningunni eru um það bil
30 talsins en hún stendur út febrúar-
mánuð.
Skáldið Jón Laxdal
Ljóðskáldið Jón Laxdal Halldórs-
son er ef til vill betur þekkt fyrir
myndlist sína en skáldskap en á
því verður gerð bragarbót í
kvöld. Norður á Akureyri eru
haldin bókmenntakvöld á vegum
menningarsmiðjunnar Populus
Tremula en smiðja sú starfar í
Listagilinu þar í bæ.
Sigurður Ólafsson heimspek-
ingur mun í kvöld fjalla um
skáldið Jón Laxdal sem sjálft
mun lesa upp úr verkum sínum.
Af sama tilefni kemur út á vegum
Populus Tremula ljóðakver með
úrvali kvæða eftir höfundinn.
Bókin er gefin út í hundrað tölu-
settum og árituðum eintökum og
verður til sölu á staðnum fyrir
litlar þúsund krónur. Er þetta í
fyrsta sinn sem Populus tremula
gefur út slíkt rit en stefnt er að
því að gefa út þrjú önnur rit til
vors.
Dagskráin í kvöld hefst kl. 21,
aðgangur er ókeypis og eru mal-
pokar leyfðir.
! Ást, kynlíf, dauði, guð og allt hitt sem skiptir máli
er viðfangsefni gjörninga-
leikhúsverks Ingibjargar
Magnadóttur og Kristínar
Eiríksdóttur sem sanna hið
fornkveðna að fæstir eru
spámenn í eigin föðurlandi.
Undirvitundargjörningar þeirra
Kristínar og Ingibjargar vöktu
talsverða athygli á sýningunni
Pakkhúsi postulanna í Hafnarhús-
inu í haust og nú hafa þær stöllur
söðlað um og setja upp verkið „I‘m
crying everyones tears – King of
Sorrow“ í hinu sænska Teater
Lilith í Malmö og verður verkið
frumsýnt á morgun.
Kristín og Ingibjörg eru báðar
menntaðir myndlistarmenn og
hafa fengist við skriftir en sam-
starf þeirra á sviði gjörningalist-
arinnar hefur verið farsælt í tæp
tvö ár. Sýningin nú er þó hin viða-
mesta til þessa og þegar þær hafa
lagt Svíaríki undir sig er komið að
meginlandi Evrópu því næsta
verkefni verður sett upp í Berlín
á mars.
„Þetta er verk um lífið, ástina,
kynlífið, dauðann og guð, um það
að draga andann,“ útskýrir Ingi-
björg. „Það er um alla þessa ynd-
islegu þætti og það mætti segja að
þetta væri klassískt verk sem end-
ist vel því þótt við vitum auðvitað
ekki hvort þessir þættir eigi eftir
að halda áfram að skipta öllu máli
þá treystum á það.“ Ingibjörg
útskýrir að auðvelt sé að rekja
verk þetta saman við þeirra fyrri
sýningar en þetta sé þó sígildasta
verk þeirra hingað til.
Þær Ingibjörg og Kristín
kynntust aðstandendum Lilith-
leikhússins á myndlistarhátíðinni
Sequences í október og fá nú þann
heiður að setja upp fyrstu gjörn-
ingaleikhússýningu þeirra á nýju
sviði sem sérstaklega er ætlað
fyrir það listform. Teater Lilith
var stofnað árið 2001 og starfar á
vettvangi bæði leik- og myndlist-
ar en nú gefst erlendum lista-
mönnum kostur á að nýta sér
æfinga- og sýningaraðstöðu húss-
ins sem teljast verður sjaldgæft
tækifæri fyrir listafólk. Teater
Lilith er jafnframt vettvangur
fyrir myndlistarsýningar, fyrir-
lestrahald, tónleika og aðrar
uppákomur.
Ingibjörg útskýrir að þær
Kristín eigi því ekki að venjast að
fá svo mikla hjálp við listsköpun
sína en Teater Lilith framleiðir
sýninguna og sér um alla umgjörð
hennar. „Við höfum vanalega
fengið vini og kunningja til þess
að taka þátt í sýningunum okkar
en nú vorum við bara með áheyrn-
arprufur,“ útskýrir Ingibjörg.
Sautján leikarar taka þátt í upp-
færslunni auk höfundanna tveggja
og Ásmundar Ásmundssonar
myndlistarmanns sem endurskap-
ar vídeóverk sitt á rauntíma á
sviðinu og leikur nokkur auka-
hlutverk.
Svíar hafa tekið þeim stöllum
opnum örmum og hafa þarlendir
fjölmiðlar til dæmis sýnt þeim
mikinn áhuga að undanförnu.
Ingibjörg útskýrir að þær vonist
til þess að geta sýnt verkið hér
heima en til þess þyrftu þær öfl-
ugt liðsinni því ekki sé hlaupið að
því að koma uppfærslu sem þess-
ari á hvaða fjalir sem er. Þær
skora því á forsvarsmenn og leik-
húsáhugafólk hér heima að kynna
sér verkefnið og rýma húsakynni
sín fyrir þessari nýju og óvenju-
legu leikhúsreynslu.
F
A
B
R
IK
A
N
2
0
0
7