Fréttablaðið - 16.02.2007, Blaðsíða 66
Dagana 7. til 11. mars
verður haldin í Reykjavík
mikil klámráðstefna en
150 manns eru á leið til
landsins þar sem þeir munu
ræða eitt og annað sem við
kemur klámbransanum. Og
skemmta sér rækilega.
„This event aranged by Freeones
worlds largest babesite will be a
B2B event and I ‘m going to prom-
ote them together with 2 of my
hottest friends Eve Angel (she’s so
hot!) and Daisy Rock (suck that
c*ck Diva ;) !!)....... Love ya xxxxx,
Sandy”
Svo ritar klámmódelið Sandy
Cage á síðu sína og hlakkar til að
hitta vini sína úr klámgeiranum á
mikilli ráðstefnu sem til stendur
að halda í Reykjavík dagana 7. til
11. mars komandi. Hún verður
ásamt Eve Angel og Daisy Rock
helsta skrautfjöðurin í litríkum
150 manna hópi sem hefur bókað
gistingu á Hótel Sögu. En til
stendur að ræða eitt og annað
sem við kemur klámgeiran-
um auk þess sem ráðstefnu-
gestir ætla sér að láta til sín
taka í „illræmdu” næturlífi
Reykjavíkurborgar. Þeir
sem standa að ráðstefnunni
eru aðstandendur vefsíð-
unnar freeones.com en
þegar þangað er komið
ber fyrir augu eitt og
annað ósiðlegt. En ítarlega er
greint frá komandi atburði á síð-
unni snowgathering.com
Femínistanum og stjórnmála-
fræðingnum Silju Báru Ómars-
dóttur er verulega brugðið við tíð-
indin og segir þetta skelfilega
tilhugsun.
„Ég er ekki hlynnt klámi í neinu
formi og vil frekar beina viðskipt-
um mínum annað en þangað sem
sá iðnaður beinir sínum pening-
um.”
Viðbrögð Silju Báru eru sem
sagt þau að hún ætlar að „boyc-
otta” Hótel Sögu fyrir að hýsa hóp-
inn. Hún tekur það fram að hún
tali ekki fyrir hönd Femínista-
félagsins en fastlega má gera ráð
fyrir því að fleiri úr þeim hópi
muni mótmæla og þá með sama
hætti.
„Væntanlegir eru aðstandend-
ur freeones.com, voðalega huggu-
leg síða eða hitt þó heldur en þetta
er eitthvað klámfyrirtæki. Ég vil
ekki styrkja klámiðnað og niður-
greiða hann,” segir Silja
Bára.
Hrönn Greipsdóttur
hótelstýra segir hótelið
blóraböggul femínista.
Og skilur ekki viðbrögðin
og segir þau vanhugsuð en hópur-
inn, sem hefur bókað 150 herbergi,
er fyrir henni sem hver annar
hópur túrista. Ekki sé venjan að
spyrja fólk sem bókar herbergi
hvað það geri.
„Hótelið er í eigu siðprúðra
bænda og menn geta rétt ímyndað
sér hvort hótelið sé að standa fyrir
einhverri klámráðstefnu! Ég kom
af fjöllum. Og er hissa á femínist-
um að kanna ekki
málið betur,“ segir
Hrönn.
Britney Spears virðist ekkert ætla
að hægja á ferðinni með drykkju
sinni og lífernið er að verða villt-
ara og villtara með hverjum deg-
inum. Breska götublaðið The Sun
birti myndir af söngkonunni í ann-
arlegu ástandi á New York Club
One þar sem hún skellti nokkrum
velvöldum tekílastaupum í sig.
Fyrrum eiginmaður hennar, K-
Fed, hefur ljóstrað því upp við
fjölmiðla að undanförnu að Spears
hafi mikinn áhuga á líkamlegu
samneyti við konur og gaf Britney
þeim sögusögnum byr
undir báða vængi þetta
kvöld. Söngkonan
dansaði á mjög
eggjandi hátt við kven-
kyns dansara, fékk að
máta ansi efnislítinn
fatnað nýjustu
„vinkonu“ sinnar
og hurfu þær
síðan inn í glæsi-
bifreið þegar
nóttin var enn
ung.
Britney í
heitum leik
Lager Indriða klæðskera heitins
er á leið til landsins frá Kaup-
mannahöfn og verður til sölu í
tvær vikur, frá næstkomandi
sunnudegi til 3. mars, í Saltfélag-
inu við Grandagarð 2.
Verslun Indriða var áður á
Skólavörðustígnum eða þar til
hann flutti verslun sína til Kaup-
mannahafnar í apríl í fyrra. Styrm-
ir Goðason var Indriða innan hand-
ar við rekstur verslanana, bæði
hér heima og í Danmörku og hann
ætlar að vera til staðar í Saltfélag-
inu þessar tvær vikur. Styrmir
segir að lagerinn sé ekki stór en
eitthvað er til af öllu. „Eins og
áður verður áherslan lögð á að
leysa vandamál þeirra sem leggja
leið sína til okkar en ég lærði sitt-
hvað um lausnir vandamála af
Indriða sjálfum. Kannski reyni ég
að pranga inn á fólk ljótum slauf-
um í leiðinni, það er nóg til af
þeim,“ segir Styrmir, sem telur að
nokkur hundruð skyrtur og um
sextíu jakkaföt verði til sölu.
Styrmir segir að töluvert hafi
verið um að fólk hafi nálgast hann
með fyrirspurnir um hvernig
hægt sé að nálgast Indriða-skyrt-
ur og þetta sé viðleitni til að koma
til móts við þá. „Það hefur fullt af
fólki haft samband og spurt hvort
það verði eitthvað meira. Ég býst
ekki við því að það verði haldið
áfram að framleiða undir hans
merkjum. Það eru fáir sem treysta
sér í að halda áfram því sem hans
fagmennska hafði upp á að bjóða,“
segir hann. Indriði klæðskeri lést í
Kaupmannahöfn í lok síðasta árs,
langt fyrir aldur fram.
Lager Indriða til sölu
Mannréttindasamtökin Amnesty
International hafa heiðrað leik- og
söngkonuna Jennifer Lopez vegna
nýjustu kvikmyndar hennar,
Bordertown.
Lopez er framleiðandi og aðal-
leikkona myndarinnar, sem fjallar
um rannsóknarblaðamann sem
greinir frá raðmorðum á ungum
konum. Gerist myndin í mexíkóska
bænum Ciudad Juarez, þar sem
mikið hefur verið um nauðganir og
morð á konum frá árinu 1993. Til
þessa hefur enginn sökudólgur
fundist en talið er að morðin séu
orðin nálægt 400 talsins.
Lopez tók við verðlaununum á
kvikmyndahátíðinni í Berlín af
mikilli auðmýkt og sagði ástandið
í Ciudad Juarez vera skelfilegt og
raðmorðin mætti flokka sem glæpi
gegn mannkyninu.
Antonio Banderas og Martin
Sheen fara með önnur aðalhlut-
verk í myndinni.
J-Lo heiðruð af Amnesty International
Jesús bjargaði sveindómnum