Fréttablaðið - 16.02.2007, Page 71
Bikarúrslitaleikur kvenna
í Laugardalshöll kl. 14 á laugardaginn
Frímiðar á leikinn í boði Actavis!
Styðjum stelpurnar!
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
8
4
3
2
Þýski landsliðsmaður-
inn Markus Baur verður ekki í
herbúðum þýska liðsins Lemgo á
næstu leiktíð. Samningur þessa
36 ára gamla miðjumanns rennur
út í sumar og Lemgo hefur
ákveðið að framlengja ekki
samning sinn við Baur, sem var
keyptur til félagsins árið 2001.
Baur á að baki glæstan feril í
þýsku deildinni sem og með
þýska landsliðinu. Hann varð að
sjálfsögðu heimsmeistari með
landsliðinu á dögunum sem og
Evrópumeistari árið 2004. Hann
var einnig í silfurliði Þjóðverja á
HM 2003 og á ólympíuleikunum
2004.
Á leiðinni frá
Lemgo
Forkeppni fyrir aðalkeppni í
svigi karla var haldin á HM í
alpagreinum í Åre í Svíþjóð í gær.
Ísland átti þrjá fulltrúa og komst
einn þeirra, Björgvin Björgvins-
son, áfram í aðalkeppnina.
Björgvin var með rásnúmer 3
og lenti í ellefta sæti. 25 efstu
komust áfram í aðalkeppnina.
Gísli Rafn Guðmundsson lenti í
31. sæti en hann var einnig
nálægt því að komast í aðalkeppni
stórsvigsins. Þorsteinn Ingason
féll úr leik í fyrri umferð.
Aðalkeppnin í svigi karla
verður á morgun en í dag verður
keppt í svigi kvenna.
Komst áfram í
svigkeppnina
Belgíski knattspyrnu-
maðurinn Emile Mpenza hefur
greint frá því að hann sé hárs-
breidd frá því að ganga til liðs við
Manchester City. Hann hefur sagt
upp samningi sínum við Al-
Rayyan í Katar.
Samningurinn við City mun
vera til fjögurra mánaða með
þeim möguleika að framlengja til
næstu þriggja ára ef hann
stendur undir væntingum.
Mpenza er 28 ára gamall.
Á leið til City
Keflavík og Haukar
mætast í bikarúrslitaleik kvenna á
laugardaginn og ætli Keflavíkur-
konur sér sigur í leiknum þurfa
þær að gera eitthvað sem þær
hafa ekki afrekað í einn og hálfan
áratug. Þær hafa ekki unnið
úrslitaleik án Önnu Maríu Sveins-
dóttur í 14 ár, eða síðan veturinn
1992-93. Keflavík var þá með yfir-
burðalið og vann alla 18 leiki sína.
Síðan þá hefur Keflavík aðeins
unnið titil ef Anna María var með.
Keflavík tapaði án Önnu Maríu
í bikarúrslitunum 2001, hefur
tapað öllum úrslitaleikjum sínum í
Fyrirtækjabikar KKÍ án hennar
og þá hafa allir sex leikir liðsins í
lokaúrslitunum Íslandsmótsins
tapast þegar Keflavíkurkonur
hafa ekki getað leitað til Önnu
Maríu inni á vellinum.
Anna María Sveinsdóttir vann
tólf Íslandsmeistaratitla og tíu
bikarmeistaratitla með Keflavík,
þar af lék hún 13 bikarúrslitaleiki.
Anna María skoraði 201 stig í
leikjunum þrettán og er stiga-
hæsti leikmaður bikarúrslitaleiks
karla og kvenna frá upphafi.
Anna María hefur alls tekið
þátt í 25 úrslitaleikjum eða úrslita-
einvígum og unnið 20 þeirra. Það
má segja að Helena Sverrisdóttir
hafi tekið við krúnunni af Önnu
Maríu því Haukar hafa unnið alla
úrslitaleiki sína með hana innan-
borðs. Helena hefur leikið frábær-
lega í úrslitaleikjum sínum. Hún
var með 22 stig, 11 stoðsendingar
og 9 fráköst í bikarúrslitaleiknum
2005, skoraði 20 stig, tók 14 frák-
öst og gaf 7 stoðsendingar í úrslita-
leik Powerade-bikarsins 2005, var
með 18 stig, 13 fráköst og 9,3 stoð-
sendingar að meðaltali í lokaúr-
slitum Íslandsmótsins 2006 og í
eina úrslitaleik tímabilsins til
þessa, úrslitaleik Powerade-
bikarsins, skoraði hún 33 stig og
gaf 12 stoðsendingar.
Hafa ekki unnið án Önnu Maríu í 14 ár