Fréttablaðið - 16.02.2007, Page 78
„Ég hef verið að reyna að koma á
sambandi Mels Gibson og Bobby
Fischer í tengslum við fyrirhug-
aða mynd um Fischer og sögu
hans. Gibson er áhugasamur um
að framleiða slíka mynd og ég hef
sagt Bobby að ég muni skrifa
útlínur á eina síðu fyrir hann.
Hver veit nema Mel heimsæki
Fischer til Íslands fljótlega,“ segir
Raul Rodriguez.
Raul starfaði árum saman á
Íslandi sem einkaþjálfari og er vel
þekktur í þeim geira. Mikill vin-
skapur tókst með honum og skák-
snillingnum Bobby Fischer. Raul
starfar nú sem einkaþjálfari í Los
Angeles, á hinni þekktu Gold Gym
líkamsræktarstöð, og fer vegur
hans þar mjög vaxandi. En hann
hugsar stöðugt til Íslands, til sona
sinna tveggja og segist
sakna þeirra.
Þetta kemur
fram í bréfi
sem hann sendi
til vina sinna á
Íslandi.
„En á tveim-
ur mánuðum
hefur mér
tekist það
sem eng-
inn annar
einkaþjálf-
ari hér hefur
afrekað í
sögu Gold
Gym sem er að
slá metið hvað
varðar inn-
komu auk þess
að vera valinn
einkaþjálfari
mánaðarins
nú tvisvar í
röð,“ segir
Raul og skort-
ir ekki metn-
aðinn þar á
bæ. Hann segist þegar vera viður-
kenndur sem meðal þeirra bestu á
sínu sviði í LA en verður ekki
ánægður fyrr en hann verður tal-
inn sá besti.
„Leið mín á toppinn er svipuð
því og var á Íslandi. Ég byrjaði hjá
Magnúsi Scheving á Aerobic Sport
og endaði hjá Bjössa í World Class.
Listi A-viðskipta vina minna vex
og má nefna Shawn Hatosy sem
leikur nú í Alpha Dogs á móti Just-
in Timberlake en ég er að skera
hann niður fyrir hlutverk í mynd
sem verið er að gera og
heitir The Nobel
Son. Ég er einnig
að þjálfa Jerald-
ine Saunders sem
skapaði sjónvarps-
þættina Love Boat
en hún er gift hinum heimsþekkta
stjörnuspekingi Sydny Omar. Og
þá má nefna konung rómantíkur-
innar – tískumódelið Fabíó.“
Góður vinskapur hefur tekist
með Rodriguez og Fabíó sem er að
hugsa um að skella sér til Íslands
með Raul þegar hann kemur í
sumar til að heimsækja syni sína.
„Hann er enginn Fischer en
mjög skemmtilegur,“ segir Raul
Rodriguez og nefnir að síðustu en
ekki sístan af lista viðskiptavina
sinna Clay Adkins sem bað
Raul um að gera með
sér raunveruleika-
sjónvarpsþátt
um líkamsrækt.
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Ekki er einu sinni kominn titill á
bókina. Svo skammt er þetta á veg
komið. En vinnuheitið er Veiðisög-
ur Bubba,“ segir Egill Örn
Jóhannsson, framkvæmdastjóri
JPV útgáfu.
Egill Örn og hans fólk hjá JPV
er þegar farið að leggja drög að
næstu jólavertíð. Og nú er verið
að undirbúa bók sem byggð er á
veiðisögum sem Bubbi Morthens
hefur safnað í sarpinn undanfarin
ár. Bubbi er annálaður sögumaður
og veiðisögur er eitt form frásagn-
arlistarinnar sem seint verður
ofmetið. Sannleiksgildið er upp og
ofan en Bubbi, sem hefur staðið
við árbakkann árum saman og er
annálaður sögumaður, styðst þó
við raunverulega atburði.
Í samtali við blaðamann Frétta-
blaðsins segir Bubbi Morthens
kappnóg komið af veiðibókum
sem fjalla um hina fræðilegu hlið
stangveiða. Hins vegar sé þetta
brunnur sem fáir hafa leitað í. Og
Bubbi segir sögu, til sýnishorns,
af manni sem hann hitti á bökkum
ónefndrar laxveiðiár, sem hafi
verið aðframkominn af sígarettu-
reykingum – gat vart dregið and-
ann. Hann sagði Bubba hins vegar
að sá sem hefði þraukað sem hann
hefði minnstar áhyggjur af sígar-
ettum. Var þar þá kominn Pólverji
sem hafði lifað af helförina, öll
fjölskyldan hafði verið drepin í
Dachau en það vildi honum til lífs
að stjórnandi þar var eitthvert
drengjakórafrík og lét hann syngja
fyrir sig. Þegar Rússarnir komu
voru Pólverjarnir reknir til Síber-
íu þaðan sem okkar maður strauk.
Og sá þá á túndrunum lax og hafði
hann til marks um frelsið sjálft.
Og sór þess eið að myndi hann lifa
af og efnast yrðu laxveiðar það
sem hann myndi fást við.
„Magnað,“ segir Bubbi sem
leitar til vinkonu sinnar Silju Aðal-
steinsdóttur varðandi yfirlestur.
Jafnvel mun Tolli bróðir Bubba
skreyta bókina með teikningum
þegar þar að kemur.
Veiðisögur Bubba koma út í haust
„Hann kom mér fyrir sjónir eins
og venjulegur maður í fríi með
börnunum sínum,“ segir June
Clark í Skautahöllinni í Laugardal
sem tók á móti stórleikaranum
Jude Law á þriðjudag. Jude Law
eyddi um klukkustund á svellinu í
Laugardal með börnum sínum
þremur og barnfóstru, en eins og
Fréttablaðið hefur greint frá er
hann hér í vikulöngu fríi.
„Það þekkti hann enginn þegar
hann kom hingað og hann fékk
alveg að vera í friði. Það var líka
bara einn bekkur af skólakrökkum
hér,“ segir June Clark enn fremur.
Koma Jude Law hingað til lands
hefur vakið mikla athygli eftir að
Fréttablaðið sagði frá ferðum
hans. Law er þekktur kvennaljómi
og bjuggust margir við því að
hann myndi láta sjá sig á skemmti-
stöðum borgarinnar. Samkvæmt
upplýsingum Fréttablaðsins er
það þó ekki á döfinni, hér ætlar
hann bara að njóta lífsins í róleg-
heitum með börnum sínum.
June Clark segir leikarann hafa
komið vel fyrir en neitar því að
hann hafi heillað hana upp úr skón-
um. „Ég er nú bara kona á besta
aldri svo það var ekkert svoleiðis.
En þetta er myndardrengur.“
Jude Law á skautum í LaugardalGnoðavogi 44, s. 588 8686.
Opið alla laugardaga 11-14
SÚR HVALUR - SÚRT RENGI
HARÐFISKUR
...fær Siv Friðleifsdóttir, sem
er rífandi stolt af norskættuðu
nafni sínu og lætur það ekki
á sig fá að Mannanafnanefnd
hafi úrskurðað það ólöglegt.
FYRSTUR
MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is