Fréttablaðið - 24.02.2007, Síða 1
hús&heimiliLAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2007
DANÍEL MAGNÚSSONEndingargóðir stólar með fullkomnu burðarþoliÍ VEISLUNA
Draumurinn um mótor-
hjólið varð að veruleika
MENNING / PÓLITÍK / VIÐSKIPTI / FÓLK
15.02 0́7
KRONIKAN.IS
Neytendur
kvarta undan
ósamþykktum
rukkunum í
heimabanka.
NEYTENDAÚTTEKT
Sonur Jóns
Páls Sigmars-
sonar heitins
fær einkaleyfi
á „Ekkert mál
fyrir Jón Pál!“
RÚSÍNAN
22.02.07
KRONIKAN.IS
02#
Krónikan VERÐ 650 kr.-
9 771670 721403
HEIMILIN Í HÖNDUM
SPÁKAUPMANNA
ÓMAR RAGNARSSON
Segist vera réttu
megin í stríðinu um
Ísland.
2. TÖLUBLAÐ
ER KOMIÐ ÚT
KRONIKAN.IS
Humarveisla
499
Jóhannes Gunnars-
son, formaður Neytendasamtak-
anna, kallar eftir því að Samkeppn-
iseftirlitið rannsaki Reiknistofu
bankanna og samstarfsfundi sem
fulltrúar frá bönkum, sparisjóðum
og kortafyrirtækjum halda reglu-
lega í húsnæði Reiknistofu í Seðla-
banka Íslands.
„Ég tel að þetta sé atriði sem
samkeppnisyfirvöld eigi að skoða.
Er þetta vettvangur sem myndi auð-
velda að bankarnir hefðu með sér
samráð? Ef svo er þarf að knýja á
um að breytingar verði gerðar á
eignarhaldi Reiknistofu bankanna
til að tryggja virka samkeppni á
fjármálamarkaði,“ segir Jóhannes.
Jóhanna Sigðurðardóttir, þing-
maður Samfylkingarinnar, sagði á
Alþingi í síðustu viku að sameigin-
legt eignarhald bankanna á Reikni-
stofu gæti skapað grundvöll fyrir
það að bankarnir hefðu með sér
samráð, meðal annars þegar þeir
ákveða vexti og þjónustugjöld.
Helgi H. Steingrímsson, for-
stjóri Reiknistofu bankanna, hefur
neitað að afhenda Fréttablaðinu
fundargerðir frá fundunum. Frétta-
blaðið hefur sent Helga bréf þar
sem farið er fram á að blaðið fái
fundargerðirnar. Ef ekki verður
orðið við þeirri ósk verður neitunin
kærð til úrskurðarnefndar um upp-
lýsingamál. Stjórn Samtaka fjár-
málafyrirtækja hefur einnig neitað
að afhenda Fréttablaðinu fundar-
gerðir sínar.
Að sögn Jóhannesar er Sam-
keppniseftirlitið eina opinbera
stofnunin sem hefur skilyrðislaus-
an rétt á að fá að sjá fundargerðirn-
ar og þurfi þess vegna að hefja
rannsóknina til að tryggja eðlilega
samkeppni á markaði.
Gísli Tryggvason, talsmaður
neytenda, vill ekki taka afstöðu um
hvort Samkeppniseftirlitið eigi að
hefja rannsókn á Reiknistofu bank-
anna en segir að ef upp kemst að
brotið hafi verið á hagsmunum
neytenda þá muni hann láta til sín
taka.
Gísli segir að hann rannsaki nú
hvort há útskriftar- og seðilgjöld
bankanna tengist Reiknistofu bank-
anna. Hann segist hafa fengið fjöl-
margar ábendingar frá neytendum
um að gjöldin séu of há og að neyt-
endur hafi lýst yfir efasemdum
sínum um að gjöldin hafi verið
ákveðin með löglegum hætti. Hann
segist eiga von á að beina erindi til
Reiknistofu bankanna út af þessum
gjöldum.
Samkeppnisyfirvöld
rannsaki bankana
Formaður Neytendasamtakanna vill að Samkeppniseftirlitið rannsaki Reikni-
stofu bankanna. Talsmaður neytenda bregst við hafi verið brotið á neytendum.
Sir Tom Hunter, sem sagður er auðugasti
maður Skotlands, eignaðist í gær í það minnsta
tveggja prósenta hlut í Glitni fyrir um átta milljarða
króna. FL Group, stærsti hluthafinn í Glitni, keypti á
sama tíma hlutabréf í bankanum fyrir 10,5 milljarða
króna og ræður nú yfir tæpum þriðjungi hlutafjár.
Hunter er náinn viðskiptafélagi Baugs Group og
hefur auður hans byggst upp á fjárfestingum í versl-
unargeiranum og fasteignaviðskiptum. Á síðasta ári
tók Weast Coast Capital, fjárfestingafélag Skotans,
þátt í kaupunum á House of Fraser ásamt Baugi, FL
Group og fleirum. Félagið og Baugur voru einnig
meðal kaupenda að Wyevale Garden Centres.
Sir Hunter annar erlendi milljarðamæringurinn
sem gengur í raðir íslenskra fjármálafyrirtækja á
skömmum tíma. Fyrir nokkrum vikum bættist Robert
Tchenguiz í eigendahóp Existu þegar hann eignaðist
fimm prósenta hlut í félaginu sem er um fimmtán
milljarða virði.
Hlutabréf í Glitni hækkuðu um 1,11 prósent í gær
í 29 milljarða króna veltu. Frá ársbyrjun hefur gengi
bréfanna hækkað um fimmtung.
Ríkasti Skotinn kaupir í Glitni
Smáauglýsingasími550 5000
Mótorhjólið kemur Sævari Guðmundssyni
kvikmyndaleikstjóra vel þessa dagana.Hann vinnur hörðum höndui
Suzuki Vi-Strom árgerð 2006 sér nú
ferðir Sævars þ
Endingargóðir
stólar
Um 25 þúsund
fyrrum meðlimir íslamskra
baráttusveita söfnuðust saman á
fjöldafundi í Kabúl, höfuðborg
Afganistan, í gær. Tilefni fundar-
ins var að sýna stuðning við
ályktun sem afganska þingið hefur
samþykkt um að Afganar sem eru
grunaðir um stríðsglæpi fái
sakaruppgjöf.
Sumir kölluðu eftir dauða
þeirra sem krefjast réttarhalda
yfir stríðsherrum sem leiddu
andspyrnuna gegn Sovétríkjunum
á níunda áratugnum. Borgara-
styrjöld sem braust út í kjölfarið í
kostaði tugi þúsunda lífa.
Vill sakarupp-
gjöf stríðsglæpa
Þegar barnaníð-
ingar, sem haldnir eru barna-
girnd á háu stigi, eru hundeltir í
samfélaginu hafa þeir engu að
tapa og sjá engan tilgang í að
halda aftur af sér. Ef þeim er
gert ófært að búa í samfélaginu
er næsta víst að þeir brjóta
aftur af sér. Þetta er mat Braga
Guðbrandssonar, forstjóra
Barnaverndarstofu.
Barnaníðingar fá sálfræði-
meðferð á vegum Fangelsismála-
stofnunar ef þeir vilja. Erlendis
tíðkast að dæma menn til
eftirlits eftir að afplánun lýkur,
jafnvel að bera GPS-staðsetning-
artæki um fótinn og sums staðar
tíðkast að dæma menn til
efnafræðilegrar vönunar. Þetta
tíðkast ekki hér. Lyfjavönun
kemur þó til greina ef viðkom-
andi óskar.
Lyfjavönun
tíðkast ekki hér