Fréttablaðið - 24.02.2007, Síða 8

Fréttablaðið - 24.02.2007, Síða 8
www.lysi.is Omega-3 F I S K I O L Í A Gjöf náttúrunnar til þín Má taka með lýsi. Omega-3 fiskiolía byggir upp ónæmiskerfið á marga vegu og hefur jákvæð áhrif á: Omega-3 fiskiolía inniheldur hátt hlutfall Omega-3 fitusýra, einkum EPA og DHA sem eru okkur lífsnauðsynlegar. Fjöldi rannsókna víða um heim hafa sýnt fram á jákvæða eiginleika þeirra fyrir heilsuna. sjón hjarta og æðakerfi blóðþrýsting kólesteról í blóði liði rakastig húðarinnar minni andlega líðan námsárangur þroska heila og miðtaugakerfis á meðgöngu Fi to n/ S ÍA „Bíðið þið bara, við erum rétt að byrja,“ sagði Stein- grímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, við andstæðinga flokksins í lok setningarræðu sinn- ar á landsþingi VG sem hófst á Grand hóteli í gær. „Við erum tilbú- in, við bjóðum fram krafta okkar, þið vitið hvar þið hafið okkur,“ sagði hann og beindi orðunum til þjóðarinnar. Hann sagði bullandi stemningu í samfélaginu fyrir að fella ríkis- stjórnina. „Þjóðin vill breytingar og forsendan fyrir þeim er að fella ríkisstjórnina. Án þess að koma rík- isstjórninni frá verður engin sú stefnubreyting á sviði velferðar- mála, umhverfismála, utanríkis- mála, jafnréttismála og svo fram- vegis, sem við þurfum svo sárlega á að halda.“ Hann nefndi hver helstu verk- efni flokksins yrðu á fyrstu þremur til fjórum mánuðum sem hann væri við völd ef umskipti verða í stjórn- málum landsins. Bar þar helst að nefna svokallað stjóriðjustopp, sjö milljarða króna árlega fjárveitingu til heildarsamtaka aldraðra og öryrkja, og úrfellingu á lögum „sem að óbreyttu einkavæða vatnið í haust“. Einnig sagði hann að flokkurinn myndi færa þjóðinni aftur Ríkisút- varpið, þannig að í síðasta lagi um næstu áramót væri það aftur orðið að raunverulegu almenningsút- varpi. Fullt jafnræði karla og kvenna yrði þar að auki tryggt í ríkisstjórn. Steingrímur gerði trú- verðugleika og sjálfsvirðingu stjórnmálaflokka að umræðuefni í ræðunni sinni. „Stjórnmálahreyf- ing sem glatar sjálfsvirðingu sinni hefur um leið fyrirgert tilverurétti sínum. Ég trúi því staðfastlega að það sé eftirspurn eftir heiðarleika og málefnabundnum, skýrum áherslum í stjórnmálum líðandi stundar,“ sagði hann. „Við munum þess vegna halda okkar striki í kosningabaráttunni sem fram undan er, þora að nota okkar aðferðir, halda okkur við málefnin hvað sem öðru líður og hvað sem aðrir gera.“ Landsþingið, sem hófst í gær, stendur fram á sunnudag. Það er stærsta samkoma sem VG hefur staðið fyrir að sögn Steingríms. Segir þjóðina vilja breyta til „Þið vitið hvar þið hafið okkur,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon þegar hann setti landsþing VG í gær. Fyrstu verkefni flokksins í ríkisstjórn verða að stöðva stór- iðju og gera RÚV aftur að þjóðarútvarpi, sagði hann. Fimm hundruð leik- skólabörn sungu saman lagið Meistari Jakob á frönsku í íþróttamiðstöð Austurbergs Breiðholts í gær. Skemmtunin var liður í Vetrarhátíð sem nú stendur yfir í Reykjavík. Frú Vigdís Finnbogadóttir leiddi sönginn ásamt kór eldri borgara og Vilhjálmi Þ. Vil- hjálmssyni borgarstjóra. Sendi- herra Frakklands, Nicole Miche- langeli, var viðstaddur og hlýddi á flutning krakkanna. Börnin æfðu sönginn á frönsku í þrjár vikur. Þau létu þó ekki frönskuna duga því þau eru einnig búin að læra lagið á spænsku og ensku og hafa hug á að bæta kínversku útgáfunni við. Fjöldasöngur á frönsku Smail Tulja, 67 ára gamall maður sem handtekinn var í Svartfjallalandi, er grun- aður um að hafa myrt að minnsta kosti sjö konur í Belgíu, Bandaríkjunum og Albaníu. Tulja var handtekinn í síðustu viku á heimili sínu í Podgorica, höfuðborg Svartfjallalands. Hann er grunaður um að hafa myrt fimm konur í Belgíu á árunum 1996-97 og skilið líkamshluta þeirra eftir í ruslatunnum. Einnig er hann grunað- ur um morð á tveimur konum í Albaníu á síðasta ári. Þá er hann grunaður um að hafa myrt rúmlega sextuga konu í Bandaríkj- unum árið 1990 þegar hann bjó þar vestra.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.