Fréttablaðið - 24.02.2007, Page 10
Læknafélag
Íslands telur efnahags- og við-
skiptanefnd ganga erinda trygg-
ingafélaganna. Þetta kemur fram í
umsögn sem félagið sendi frá sér í
gær vegna nýs frumvarps um
breytingu á lögum um vátrygg-
ingasamninga. Gunnar Ármanns-
son, framkvæmdastjóri Læknafé-
lagsins, segir það fyrst og fremst
gera athugasemdir við tvennt í
frumvarpinu. „Annars vegar er
heimild sem verið er að setja í
lögin sem heimilar einstaklingum
að leggja fram staðfestingu á því
að þeir séu ekki haldnir tilteknum
sjúkdómi. Við teljum hana mjög
varasama því þá er hægt að skipta
fólki í tvo hópa, þá sem eru stað-
festir sjúkdómsfríir og svo hina,
sem eru ekki endilega haldnir
neinum sjúkdómum.“
Einnig er gerð athugasemd við
að það skuli verða heimilt að krefja
vátryggingataka um heilsufars-
upplýsingar skyldmenna án þess
að þau gefi samþykki fyrir því.
Gunnar segir þetta í beinni and-
stöðu við lögin eins og þau eru.
„Þar segir að það eigi að gefa rétt-
ar og tæmandi upplýsingar. Ef
samþykki þess sem upplýsingarn-
ar eru um liggur hins vegar ekki
fyrir er engin trygging fyrir því að
þær séu réttar og tæmandi.“
Læknafélagið lagði tillögur
fyrir efnahags- og viðskiptanefnd
um breytingar á þeirri upplýs-
ingagjöf en fékk lítinn hljóm-
grunn. „Þeim tillögum var eigin-
lega tekið með grjótkasti. Það var
ekkert tillit tekið til þess sem við
vorum að leita eftir heldur þvert á
móti farið eftir tillögum vátrygg-
ingafélaganna.“
Valgeir Pálsson, stjórnarmaður
í Samtökum fjármálafyrirtækja,
segir þessar ásakanir læknafé-
lagsins koma sér á óvart og sýna
ekki fullan skilning á málinu.
Hann hafnar því algerlega að
nefndin gangi erinda tryggingafé-
laganna. „Tryggingafélögin eru
ekki að fara fram á þessa staðfest-
ingu sem læknafélagið talar um,
né ætlum að nýta þá heimild með
þessum hætti. Þá værum við að
skipta viðskiptavinum okkar í tvo
hópa og við höfum engan hug á
því, enda gæti það einfaldlega
ekki gengið upp.“
Hann segir að upplýsinga um
heilsufar skyldmenna hafi verið
aflað um áratugaskeið og hafi ekki
valdið neinum ágreiningi hingað
til. Það sé því ekki verið að rýmka
neinar heimildir heldur verið að
skýra betur út hvað löggjafinn
eigi við í eldri lögum.
Læknar gera
aðfinnslur
við frumvarp
Læknar segja efnahags- og viðskiptanefnd ganga
erinda tryggingafélaga í nýju frumvarpi. Trygginga-
félögin hafna ásökunum og segja þær koma á óvart.
Bandarískur her-
dómstóll dæmdi í gær Paul E. Cort-
ez, 24 ára bandarískan hermann, í
100 ára fangelsi fyrir að hafa í
mars á síðasta ári, ásamt fjórum
félögum sínum, nauðgað 14 ára
íraskri stúlku og síðan myrt bæði
hana og fjölskyldu hennar.
Einn félaga hans og jafnaldri,
James Barker, hefur áður hlotið 90
ára fangelsi fyrir sinn hlut í glæp-
unum, sem þykir eitt versta voða-
verkið sem bandarískir hermenn
hafa framið í Írak. Hvorugur
þeirra segist þó hafa framið morð-
in, heldur hafi þriðji hermaðurinn,
Steven D. Green, skotið bæði stúlk-
una, systur hennar og foreldra á
heimili þeirra í Mahmoudiya.
Að ódæðinu loknu reyndu þeir
að brenna lík stúlkunnar. Þeir
brenndu síðan sín eigin föt og hentu
morðvopninu í skurð.
Tárin streymdu niður vanga
Cortez þegar hann játaði sekt sína
fyrir dómi og baðst afsökunar á
gerðum sínum, sem hann sagðist
ekki hafa neina skýringu á.
Fram kom í réttarhöldunum að
hermennirnir hefðu verið úrvinda
af þreytu og undir gífurlegu álagi.
„Þetta er ekki einsdæmi. Við
höfum séð svona í öðrum stríðum,“
sagði sálfræðingur að nafni Charl-
es Figley, sem bar vitni sem sér-
fræðingur. Saksóknarar sögðu
álagið enga afsökun. Þrír hermann-
anna bíða enn réttarhalda.
Héraðsdómur Reykjaness
hefur fellt dóm yfir sexmenningun-
um í Árnesgenginu sem fór ráns-
hendi um landið síðastliðið haust.
Afbrotahrinu hópsins lauk um miðj-
an september árið 2006 þegar með-
limir hópsins voru handteknir eftir
að hafa brotist inn í félagsheimilið
Árnes í Gnúpverjahreppi. Í Árnes-
genginu eru þrír strákar, sem allir
hlutu óskilorðsbundna fangelsis-
dóma, og þrjár stúlkur.
Sigurbjörn Adam Baldvinsson,
sem er 22 ára, fékk átján mánaða
fangelsisdóm fyrir sex þjófnaðar-
brot. Hann var einnig fundinn
sekur um fjársvik og fíkniefnabrot
auk fleiri brota.
Davíð Þór Gunnarsson, sem er
19 ára, fékk fimmtán mánaða dóm
fyrir sex þjófnaðarbrot, nytjastuld
og fjársvik auk fleiri brota. Hann
rauf skilorð með brotum sínum.
Þriðji maðurinn, Jón Einar
Randversson, sem er 24 ára, fékk
sex mánaða dóm fyrir fjögur þjófn-
aðarbrot. Dómurinn bættist við
fjórtán mánaða dóm sem Jón fékk í
nóvember síðastliðnum vegna lík-
amsárása og fleiri brota. Hann
hefur fimm sinnum hlotið dóma frá
1998 vegna alls kyns brota.
Í öllum tilfellum voru dómarnir
þyngdir vegna þess að brotin voru
framin í félagi við aðra.
Stúlkurnar þrjár í Árnesgeng-
inu fengu allar skilorðsbundna
fangelsisdóma fyrir þátttöku sína í
hluta brotanna. Þær eru á aldrinum
sautján til 22 ára. Engin þeirra
hefur áður hlotið refsingu og var
horft til þess og ungs aldurs þeirra
þegar refsingin var ákveðin.
Fóru ránshendi um landið
Fjörutíu og sex ríki
samþykktu í gær yfirlýsingu um
bann við klasasprengjum. Í yfir-
lýsingunni er hvatt til þess að
alþjóðlegur sáttmáli um slíkt
bann verði gerður árið 2008 og
verði hann lagalega bindandi.
Yfirlýsingin er afrakstur ráð-
stefnu, sem boðað var til í Nor-
egi nú í vikunni. Alls sóttu full-
trúar 49 ríkja ráðstefnuna, en
þrjú þeirra samþykktu ekki loka-
yfirlýsinguna.
Sum helstu vopnaframleiðslu-
ríki heims, svo sem Bandaríkin,
Rússland, Ísrael og Kína, sáu
ekki ástæðu til að vera með á
ráðstefnunni.
Í bænum Buffalo í
New York-ríki gengur lausum hala
ógnvaldur mikill sem lögreglan
kallar „faðmlagaþrjótinn“. Þrjótur-
inn er reyndar kvenkyns og
stundar það að faðma fulla karla
að næturlagi og ræna þá veskinu í
leiðinni.
Hún situr fyrir þeim þegar þeir
koma út af knæpum og „passar sig
á því að þeir séu orðnir haugafull-
ir“, segir Tom Donovan lögreglu-
maður. Tugir manna segjast hafa
orðið fyrir barðinu á henni, en
lögreglan segist viss um að
fórnarlömbin séu enn fleiri. Sumir
skammist sín bara of mikið til að
viðurkenna það.
Faðmar þétt og
rænir veskjum
Norræni myndabankinn
Nordicphotos hefur verið kærður
til siðaráðs auglýsingageirans í
Svíþjóð vegna auglýsingar sem
hefur verið send til hönnuða og
auglýsingafólks. Í einni auglýs-
ingunni er mynd af karlmanni
sitjandi á bar með konur í bikiníi
við hvora hlið. Í Expressen segir
að um sænskan athafnamann og
vændiskonur í Taílandi sé að
ræða.
Arnaldur Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Nordicphotos,
segir að tíu kvartanir hafi borist
vegna auglýsingarinnar en hún
hafi verið send til mörg þúsund
manns. Myndin sé ekki af
sænskum athafnamanni. „Okkur
finnst þetta rosalega leiðinlegt og
erum búnir að biðjast afsökunar.
Þetta átti bara að vera góðlátlegt
grín og var ekki illa meint,“ segir
hann.
Kærður fyrir
auglýsingu