Fréttablaðið - 24.02.2007, Síða 18

Fréttablaðið - 24.02.2007, Síða 18
Alkunna er að Árni nokkur John-sen var sakfelldur af dómstól- um og sagði af sér þingmennsku fyrir fáeinum árum. Hefði almenn- ingur fengið að ráða, hefði nefnd- um Árna verið dýft í tjöru, hann makaður fiðri og settur í gapastokk á Austurvelli. Árna var úthúðað af almenningi sem hinum versta ódrætti. Þessi sami almenningur komst að þeirri niðurstöðu nú fyrir skömmu, að Árni þessi sé slíkur afbragðsmaður að hann skuli setj- ast á sjálft Alþingi Íslendinga á nýjan leik hið fyrsta. Framangreint er dæmi- gert fyrir afstöðu almenn- ings til sakamála hérlendis. Fyrst krefjast menn þyngstu refsingar en vilja svo jafn- vel sýkna viðkomandi, þegar mesti móðurinn rennur af þeim. Það er nákvæmlega af þessum sökum sem réttar- vitund almennings er ekki gild réttarheimild hérlendis. Dómstól- ar eiga ekki, og mega ekki dæma eftir upphlaupi almennings eða fjölmiðlafári. Afleiðing af slíku yrði eins og ef grínfígúran Ragnar Reykás væri við dómstörf. Það er grundvallaratriði í réttarríki að samkvæmni sé í dómum. Stórslysauppsláttur Morgunblaðsins á forsíðu 2. febrúar sl. með myndum af fimm af dómurum Hæsta- réttar er því í raun stórslys fyrir Morgunblaðið sjálft og langt fyrir neðan virðingu blaðsins en tilefnið var mild- un dóms í samræmi við fyrri dómaframkvæmd. Nákvæm- lega það sem dómararnir áttu að gera miðað við óbreytt lög og aðstæður. Það er svo allt annað mál hvað mönnum finnst um refsi- pólitík í einstökum brotaflokkum. Óskum um breytingar á refsing- um á að beina til Alþingis en ekki dómstóla. Höfundur er löggiltur fasteignasali. Dómstóll götunnar A llir viðmæl- endur Frétta- blaðsins vegna manns vikunnar að þessu sinni eru á einu máli um að ef einhver maður er réttur maður á réttum stað nú um stundir, þá er það Arngrímur Ísberg, dómari við Héraðsdóm Reykja- víkur. Arngrímur þykir hafa farið á kostum sem dómsformaður í Baugsmálum hinum síðari, sem nú standa yfir í héraðsdómi. Bæði þykir hann sýna festu og röggsemi eins og við var að búast en sömuleiðis hefur hinn lunkni húmor sem hann býr yfir fengið að njóta sín. Flestir viðmæl- enda segja reyndar að Arngrímur fari allt of sparlega með þann næma og skemmti- lega húmor sem honum er í blóð borinn. Faðir hans, Jón Ísberg, sýslumað- ur á Blönduósi, þótti með eindæmum skemmtilegt yfirvald þar nyrðra á sínum tíma og Arngrímur á því ekki skopskynið langt að sækja. Hann er sagður orðheppinn og kemur vel fyrir sig orði, rökfastur og skýr í framsetningu; allt kostir sem prýða mega góðan dómara. Og það segir sitt um það traust sem á Arngrími ríkir sem dómara að honum eru falin hin stóru og flóknu dómsmál; þannig var hann einn af þremur dómurum í Hafskipsmálinu sællar minningar. Arngrímur er alinn upp norður á Blöndu- ósi, kominn af lög- mönnum og sýslu- mönnum í ættir fram, og er sagður hafa tekið stefnuna á lögmennsku ungur að árum. Hann var bókgefinn í æsku, rólegur og yfirvegað- ur; hafði eiginlega á sér fas embættis- mannsins sem hann síðar varð frá unga aldri. Hann gekk í Menntaskólann á Akureyri á þeim árum sem hippamenningin reis hvað hæst með tilheyrandi uppreisn æskunnar. Arngrímur tók hins vegar aldrei þátt í neinu slíku, né eltist hann við tísku tíðarandans. Safnaði ekki hári, gekk ekki í lopapeysum né blúnduskyrtum og átti aldrei alpahúfu svo eitthvað sé nefnt af því sem einkenndi tískuna á árunum kringum 1970. Námið átti hug hans allan, en hann var þó fjarri því einhver mannafæla og gat verið manna hressast- ur ef því var að skipta í góðra vina hópi. Það fór þó aldrei úr böndunum eins og einn viðmælenda orðaði það. Laganám tók við hjá Arngrími eftir stúdentspróf og hann tók námið strax föstum tökum og þótti mönnum sýnt að hann stefndi beint á dómarastörf eins og síðar kom á daginn. Eðli sínu trúr hafði Arngrímur sig lítt í frammi á háskóla- árum; skólafélagar lýsa honum einmitt sem frekar dulum öndvegisdreng og kurteisum mann- kostamanni, traustum félaga, sem hafði markað sér braut í lífinu. Samt er hann alls ekki talinn framapotari, öll þau ábyrgðarstörf sem honum hafa verið falin eru tilkomin vegna þeirra kosta sem hann býr yfir. Eftir lögmanns- próf 1977 hélt Arngrímur til Noregs og lagði þar stund á framhaldsnám í sjórétti og síðar lá leiðin til Þýskalands að nema réttarsögu. Eftir að hann kom aftur heim starfaði hann um skeið sem fulltrúi hjá föður sínum, sýslumannin- um á Blönduósi, og einnig hjá sýslumann- inum í Barðastrandar- sýslu og hjá lögregl- unni í Reykjavík. Dómaraferill Arngríms hófst svo 1986 er hann var skipaður sakadómari í Reykjavík og 1992 var hann skipaður dómari við Héraðs- dóm Reykjavíkur þegar hann tók til starfa. Arngrímur þykir hafa staðið sig vel sem dómari, verið farsæll í starfi og vel liðinn; er sagður heiðarlegur, fastur fyrir og einn af stærstu kostum hans þykir sá að hann fer aldrei í manngreinar- álit, fyrir honum eru allir jafnir. Arngrímur er sagður farsæll maður í einkalífi, konu sinni Leu Marjöttu, kennara og þýðanda frá Finnlandi, kynntist hann á námsárum í háskóla og eiga þau þrjú uppkomin börn. Í tómstundum sinnir Arngrímur hestamennsku en áhugi hans á hestum og dýrum ku hafa fylgt honum frá blautu barns- beini og hann er mikill dýravinur. Hann er líka áhugamaður um útivist og hefur gaman af að ganga á fjöll. Þau hjónin ferðast líka talsvert til útlanda og er Finnland ofarlega á blaði eins og nærri má geta. Allt sem prýða má dómara „Ekki verður deilt við dómarann, Jón Gerald fer út.“ „Hann var harðari sjálfstæðismaður en ég í þá daga.“ Fræðslufundaröð SPRON Fræðslufundir SPRON um fjármál einstaklinga og heimila Undanfarnar vikur hefur SPRON boðið viðskiptavinum sínum til fræðslufunda um fjármál heimilanna og sparnað og fjárfestingar. Nú eru fram undan fundir um lífeyrismál og skattaskil á Hótel Nordica. Lífeyrismál 27. febrúar kl. 17–19 Skattaskil 13. mars kl. 17–19 Nánari upplýsingar og skráning á spron.is eða í þjónustuveri í síma 550 1400. A RG U S 07 -0 09 2
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.