Fréttablaðið - 24.02.2007, Page 30
Tíunda kynslóð Toyota Cor-
olla er komin á götuna. Þessi
rúmlega 50 ára gamla bílteg-
und hefur tapað nokkru af
aðdráttaraflinu en á enn nóg
inni til að heilla fjölmarga
Toyota-unnendur hérlendis.
Fyrsta Corollan kom á markað
árið 1966 og eftir 30 ár í fram-
leiðslu náði hún því marki að
verða mest seldi bíll heims. Áreið-
anleiki, lágur rekstrarkostnaður,
og almenn gæði urðu til þess að
aðdáendurnir sópuðust að (eða
það sem skiptir meira máli: kaup-
endurnir). Corolla hefur alltaf
verið öruggt val. Kaupandinn veit
að hverju hann gengur, veit hvað
hann fær, og veit að hann getur
selt það aftur án teljandi vand-
ræða.
Það sama er upp á teningnum
hjá tíundu kynslóð Toyota Corolla.
Þarna er á ferð traustur bíll sem
segir fyrst og fremst: enga vit-
leysu, ég kem þér þangað sem þú
þarft að fara. Þetta er hans helsti
kostur, og um leið helsti galli.
Tökum sem dæmi ytra útlitið. Sá
sem horfir á Corolla hugsar án efa
að þarna sé á ferð snotur bíll. Tíu
mínútum síðar er hann búinn að
gleyma hvernig bíllinn leit út.
Hann er einfaldlega svo venjuleg-
ur.
Að innan er Corolla örlítið
meira spennandi. Smá áhætta er
tekin í mælaborðinu og kemur það
ágætlega út. Útvarp og miðstöð
eru sett upp á klassískan hátt, og
kveikjuhnappurinn ásamt flipa-
skiptingu í stýrinu (sé hún fyrir
hendi) lífga upp á útlitið og láta
mann vita að kannski búi meiri
kraftur í bílnum en gefið er upp.
Corolla er þægilegur í akstri og
auðvelt er að ráða við hann. 1,6
lítra bensínvélin er spræk, þó ekki
sé hægt að segja að hún sé að
springa af afli. Hún er líka afar
hljóðlát og í lausagangi er varla
hægt að heyra í henni.
Hægt er að fá bílinn með svo-
kallaðri MM-skiptingu, en hún á
að sameina það besta úr sjálf-
skiptingu og beinskiptingu. Ekki
er um eiginlega sjálfskiptingu að
ræða heldur tölvustýrða bein-
skiptingu þannig að ekki þarf að
skipta um gír og ekki þarf að ýta á
kúplingu. Nóg er að létta örlítið á
bensíngjöfinni þegar vélin er á
háum snúningi og þá skiptir kass-
inn. Þannig næst betri nýting en á
beinskiptum bíl (hann eyðir
minna) á næstum sjálfskiptum
bíl.
Á pappírnum lítur þetta allt
saman vel út, en raunin er önnur.
Þá rúmu tvo daga sem undirritað-
ur keyrði bílinn gerði skiptingin
alls konar vitleysu. Stundum
skipti hún ekki um gír þegar stig-
ið var af bensíngjöfinni því kass-
anum fannst vélin ekki vera á
nógu miklum snúningi, í öðrum
tilfellum skipti hún um gír áður
en tækifæri gafst til að létta á
gjöfinni og þá heggur bíllinn.
Höggið er lítið, en nóg til að fara í
taugarnar á ökumanni.
Sá fyrirvari skal hafður á að
kannski tekur bara tíma að venj-
ast skiptingunni. Kannski ekki.
Getur það verið að Toyota sé í
fyrsta sinn í langan tíma að stíga
feilspor?
Hvað sem því líður er Corolla
ágætis bíll. Hann er bara svo
venjulegur, svo hversdagslegur,
að hann vantar sál. Hann vantar
þetta eitthvað sem fær mann til að
langa að taka aukakrók áður en
maður leggur bílnum í innkeyrsl-
unni heima.
Traust tíunda kynslóð
Toyota Corolla
Sími 564 0400
BÍLARAF
Auðbrekku 20,
P
R
E
N
T
S
N
IÐ
HEILDARLAUSNIR
Í DRIFSKÖFTUM
Landsins mesta úrval
af hjöruliðum og
drifskaftsvörum
Jafnvægisstillingar
Vagnhöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 517 5000