Fréttablaðið - 24.02.2007, Side 31

Fréttablaðið - 24.02.2007, Side 31
Í dag er frumsýning á nýrri kynslóð Porsche Cayenne í Bílabúð Benna. Bíllinn er kraftmeiri en áður þótt hann eyði minna. Porsche Cayenne setti ný viðmið er hann kom fyrst út. Aldrei áður hafði tekist að sameina kosti sport- bíla og jeppa á jafn áhrifaríkan hátt. Nú virðist hann setja viðmið- in enn hærra. Bein innspýting í brunahólf tryggir 15 prósent minni eyðslu samfara meiri krafti, tölvustýrð fjöðrun dregur úr hlið- arhalla í beygjum, nýtt bremsu- kerfi gerir bílinn afar stöðugan (og rífur upp malbik sé nauðheml- að á miklum hraða), og VarioCam Plus kambás tryggir aukið tog á öllum snúningum og aukna snerpu (allt of flókið að útskýra en virkar afskaplega vel). Cayenne er fáanlegur í þremur útfærslum: Cayenne sem er kraft- mikill, Cayenne S sem er kraft- meiri, og Cayenne Turbo sem er ekki þessa heims. Cayenne er 290 hö, 385 Nm og kemur til með að kosta 6.985.000, Cayenne S er 385 hö og togar 500 Nm og kostar 8.785.000, og Turbo er ótrúleg 500 hestöfl, togar 700 Nm og kostar í takt við það. Ný kynslóð Cayenne verður frumsýnd almenningi í dag í Bíla- búð Benna, Vagnhöfða 23. Heimsfrumsýning á nýjum Cayenne 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.