Fréttablaðið - 24.02.2007, Síða 32
Árlega fer fram könnun meðal
lesenda Top Gear. Á síðasta ári
náði Skoda að rjúfa einokun
japanskra bílaframleiðanda
á toppnum, en enginn virðist
geta hróflað við Frökkunum á
botninum.
Top Gear er ekki bara einn vinsæl-
asti bílaþáttur heims, heldur einn-
ig eitt víðlesnasta bílatímaritið.
Árlega velja lesendur þess bíla og
framleiðendur ársins í ýmsum
flokkum og nú hafa úrslit ársins
2006 verið kunngjörð. Helstu tíð-
indin eru að Skoda veltir Lexus úr
fyrsta sæti í keppni bílaframleið-
enda en þar hafði Lexus einokun-
arstöðu síðustu ár. Í þriðja og
fjórða sæti eru svo Honda og
Mazda þannig að Japanir geta
unað við sitt.
Bíll ársins var valinn Honda
S2000 þriðja árið í röð. Í öðru sæti
kom svo Honda Jazz, en í þriðja og
fjórða sæti komu Skoda Octavia
og Fabia, en velgengni þessara
tveggja tegunda á stóran þátt í
heildarsigri Skoda. Í valinu er
einnig sérstök athygli vakin á Fiat
Panda í áttunda sæti listans en
Panda markar endurkomu Fiat á
smábílamarkaðinn svo um munar.
Slæmur árangur franskra bíla-
framleiðenda er ekki nýr af nál-
inni í augum lesenda Top Gear.
Árangurinn er þó einkar slakur í
ár og á flestum listum reka Ren-
ault, Citroën, og Peugoet lestina.
Árangurinn er sýnu verstur í
áreiðanleikakönnuninni en þar eru
átta af tíu verstu bílunum fransk-
ir. Þess ber þó að geta að án efa er
könnunin eitthvað lituð af hinum
klassíska og ódrepandi ensk-
franska ríg sem getið hefur af sér
margar styrjaldir.
Niðurstöður könnunarinnar í
heild má sjá á slóðinni http://www.
topgear.com/content/carsurvey/2006
Skoda valið
bílamerki ársins
Ný kynslóð BMW X5 er komin
til landsins, fyrr en ráðgert
var.
„Ætli við getum ekki sagt að þetta
sé nokkurs konar kynning fyrir
frumkynninguna,“ segir Helga
Guðrún Jónasdóttir, kynningar-
stjóri B&L, en fyrsta bifreiðin af
nýju BMW X5 kynslóðinni er
nýkomin til B&L, nokkru áður en
frumkynning hennar var ráðgerð.
Nýju kynslóðina bar fyrst fyrir
augu almennings á hinni árlegu
Detroit-bílasýningu í Bandaríkj-
unum í janúar, en Evrópufrum-
kynningin var ekki á dagskrá fyrr
en í vor (og eins og frómir menn
vita er Ísland í Evrópu). „Mikill
áhugi er fyrir nýju kynslóðinni og
það er því sannkallað ánægjuefni
að geta kynnt hana fyrr en áætlað
var,“ segir Helga Guðrún.
Um einn bíl er að ræða en hann
er með nýja 3,0 lítra 272 hestafla
bensínvél, en auk hennar verða í
boði 3,0 lítra 231 hestafla og 540
Nm díselvél annars vegar og V8
4,8 lítra 355 hestafla vél hins
vegar, sem skilar bílnum í 100
km/klst. á aðeins 6,5 sek.
Um verulegar breytingar er að
ræða milli kynslóða að sögn
Helgu Guðrúnar. „Meira rými,
aukin gæði og enn meiri þægindi
lýsa kynslóðaskiptunum kannski
best. Margs konar nýjungar eru
jafnframt á ferð og má þar auk
vélarkostsins meðal annars benda
á iDrive-búnaðinn og enn betra
xDrive-aldrifskerfi, sem hefur
nú upp á enn fleiri kosti að
bjóða.“
Önnur kynslóð BMW X5 komin
KIA cee‘d verður frumsýndur
um helgina í KIA umboðið,
Laugavegi 172. Cee‘d er fjöl-
skyldubíll með sjö ára ábyrgð.
Komið er að því að frumsýna KIA
cee‘d en hann hefur vakið mikla
athygli fyrir þær sakir að honum
fylgir sjö ára ábyrgð. Í fréttatil-
kynningu frá KIA umboðinu er
bílnum lýst sem nettum og rúm-
góðum fjölskyldubíl sem mætir
ýtrustu kröfum markaðarins. Enn-
fremur segir að bíllinn sé sérhann-
aður fyrir evrópskar aðstæður,
enda framleiddur í bílaverksmiðj-
um KIA í Zilina í Slóveníu.
Er cee‘d var reynsluekið af
blaðamanni Fréttablaðisns hafði
hann meðal annars þetta að segja:
„Cee‘d er vel útlítandi bíll, virð-
ist vel byggður, með góða aksturs-
eiginleika og sjö ára ábyrgð. Eini
raunverulegi gallinn, fyrir utan
illa heppnað fölappelsínugult ljós í
mælaborði, er hversu þungur bíll-
inn er. Á móti kemur að í sínum
flokki er hann meðal þeirra
stærstu og rúmbestu.
Kia cee´d er í flokki svokall-
aðra C-bíla og keppir þar við teg-
undir eins og Volkswagen Golf,
Ford Focus og Toyota Corolla.
Hann á eftir að standa sig vel í
þeirri samkeppni enda um vel
heppnaðan bíl að ræða.“
KIA cee‘d
frumsýndur
SMUR- BÓN OG DEKKJAÞJÓNUSTAN
SÆTÚNI 4 • SÍMI 562 6066
SUMARDEKK
HEILSÁRSDEKK
OLÍS SMURSTÖÐ
BÓN OG ÞVOTTUR
HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
RAGEYMAÞJÓNUSTA
BREMSUKLOSSAR
PÚSTÞJÓNUSTA
Höfum til afhendingar strax
Bílexport ehf.
www.bilexport.dk • boas@bilexport.dk
Upplýsingar gefur Bóas Eðvaldsson s. 0049 1752711783
Mercedes Benz 2660 EURO 5
MAN 35.480 8x6HBB EURO 4
Vagnhöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 517 5000
FJAÐRIR OG GORMAR
Í FLESTAR GERÐIR
JEPPA
Japan/U.S.A.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI