Fréttablaðið - 24.02.2007, Page 48
heimaerbest
Hann situr í notalegu horni á kaffihúsinu
Gráa kettinum á spjalli við nokkra kunningja
þegar blaðamann ber að garði. Myndlistar-
maðurinn og húsgagnasmiðurinn Daníel
Magnússon er hér heimavanur enda fasta-
gestur.
„Mamma lagaði allt heima hjá mér með
buffhamri og ég fékk að hjálpa til þegar
þurfti,“ segir Daníel og útskýrir þannig grunn
sinn í húsgagnasmíðinni. „Svo eignaðist ég
verkfæri á fermingaraldri og fór að smíða
mér hluti. Á þessum tíma fékk ég gamalt búr
til að búa í og fékk að innrétta það sjálfur, lag-
aði gólfið og smíðaði mér rúm og stóla. Þetta
var svona fyrsta „projectið“ mitt,“ segir Dan-
íel og glottir. „Ég bjó í þessu herbergi í tvö,
þrjú ár og svo tók bróðir minn við og þessar
mublur dugðu vel,“ segir Daníel en segja má
að þarna hafi strax verið farið að mótast það
sjónarmið sem hann miðar við í dag við hús-
gagnahönnun sína. „Ending er ákveðið
sjónarmið hjá mér, en þó ekki á kostnað fagur-
fræðinnar. Það er númer eitt, tvö og þrjú að
hlutir séu ekki búnir til úr vondu „materíali“
eða illa samsettir,“ segir Daníel en á húsgögn-
um hans er svo gott sem lífstíðarábyrgð þar
sem hann lagar þau ávallt strax ef þau bila.
„Þetta er nokkurs konar „statement“ gegn
þessari fjöldaframleiðslu sem við eigum kost
á að eignast í dag. Ég vil að hægt verði að
finna húsgögnin mín í Góða hirðinum eftir
200 ár og þá í góðu lagi,“ segir hann og hlær.
Daníel segir húsgögn sín selja sig sjálf.
„Þar sem þau hafa lent hafa þau smitað út frá
sér,“ segir Daníel, sem hefur smíðað húsgögn
frá árinu 1994. Ekki hefur þó verið
mikið að gera fyrr en núna síð-
ustu mánuði.
Daníel selur munina sjálfur,
hann prófaði að vera með þá í versl-
un um tíma en fannst það ekki henta þar
sem álagningin er svo mikil og við það
verði hlutirnir of dýrir.
Inntur eftir því hvort allt á heim-
ili hans sé eftir hann sjálfan svarar
Daníel: „Ég á húsgögnin mín voða-
lega stutt, ef einhvern vantar
eitthvað í gjöf eða annað tek ég
hann út af heimilinu mínu. Í dag
á ég tvo stóla og það getur vel
verið að þeir þurfi að fara að
heiman einhvern daginn,“
segir Daníel kíminn og
bætir við að hann hafi
meira að segja einu sinni
selt undan sér rúmið sitt. „Ég
hef bara ekki efni á sjálfum
mér,“ útskýrir hann glott-
andi.
solveig@frettabladid.is
Frá buffhamri í
húsgagnahönnun
Myndlistarmaðurinn Daníel Magnússon smíðar og hannar húsgögn í aukavinnu.
Daníel með stól sem hann
hannaði og smíðaði sjálfur.
„Þessi er kallaður Lazy-girl og
er hannaður út frá fullkomnu
burðarþoli,“ segir Daníel um
stólinn, sem þjónar gestum
Gráa kattarins í Hverfisgötu.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Rúmið Garmur er allsérstætt í útliti.
MYNDIR/GUÐMUNDUR INGÓLFSSON
Stóllinn Hex sem hægt er að
hækka og lækka.
Parabola heitir
þessi stóll en
Daníel notar jöfnur
fyrir fullkomið
burðarþol til að
smíða fætur stóla
sinna og gerir þá þannig
endingarbetri.
Daníel hannar ekki
bara húsgögn, hér
er sushi-sett úr
smiðju hans.
Útsala
20-50% afsláttur
Langholtsvegi 111, 104 Rvk. Sími 568 7900
Opið virka daga 11-18, laugardaga 11-16
30% afsláttur af rúmum
Nýtt kortatímabil
Baðsloppar
20% afsláttur
Handklæði
30% afsláttur
Rúmteppasett
20-40% afsláttur
Sængurfatnaður
20% afsláttur
rafstillanleg og hefðbundin.
L O K A D A G A R
24. FEBRÚAR 2007 LAUGARDAGUR12