Fréttablaðið - 24.02.2007, Page 71
Hinn ómótstæðilegi hey
Jude Law kom til
Íslands, fór í sund,
fannst það frábært, hitti
Höllu, hún fór í Sun og
hann heim. Köttur úti í
mýri...
Skipuleggjanda ferð-
ar hey Jude fannst frábært að hann
var að mestu látinn í friði, af öllum
nema Höllu auðvitað, og sagði það
mikilvægt fyrir stórstjörnur að upp-
lifa frið og ró á friðsæla Íslandi.
Hann fékk að spranga um á sundskýl-
unni í Laugardalnum án þess að
nokkur pirraði hann. Svo afskipta-
laus var hann að klippa þurfti mynd
af honum inn á aðra mynd úr Laug-
ardalslaug til að fréttin gerði sig í
Fréttablaðinu. Margir hafa eflaust
spurt sig hvað í ósköpunum hann var
að gera með þessa kylfu á myndinni,
hvort hún væri til að berja frá æsta
aðdáendur, eða hvort hann væri með
Gumma í Byrginu í einhverjum
sadó-masó-leik?
Ég efast um að ég myndi þekkja
hey Jude í pottinum. Kannski myndi
ég segja sæll og takk fyrir síðast því
ég væri viss um að ég þekkti hann en
myndi ekki hvaðan. Það gerði ég að
minnsta kosti þegar Julia Stiles gekk
framhjá mér á Laugaveginum og
horfði á mig með „enn einn geðveik-
ur aðdáandi“ augunum þegar ég
kastaði kveðju á hana.
Það er bara ein fræg manneskja
sem fyllir mig lotningu þegar ég
hitti hana og engin hætta er á að ég
taki ekki eftir henni. Ég verð algjör-
lega stjörnunuminn og er tilbúinn að
hleypa henni fram fyrir í röðinni, lít
í kringum mig hvort einhver sé að
gera sig líklegan til að ógna henni,
og er tilbúinn að deyja hetjulegum,
og um leið Hollywood-legum, dauð-
daga fyrir hana. Það er ókrýnd
eilífðardrottning Íslands: Vigdís
Finnbogadóttir. Fyrirgefðu Óli, þú
ert fínn en það er bara ein Vigdís.
Að lokum langar mig að varpa
fram smá hugleiðingu. Hvar voru
börnin hans hey Jude þegar hann
var að dansa við hina síbrosandi
Höllu? Voru þau bara heima á 101
hóteli að horfa á Stundina okkar?
Fékk hann Helgu Steff eða Afa til að
passa í eigin persónu, eða kannski
íþróttaálfinn? Svör óskast í næsta
hefti af Séðu og heyrðu.
Ótrúlegt en
það finnst fólk
sem trúir því
að það hafi
lifað öðrum
lífum.
Það er líka til
fólk sem trúir
því að Elvis sé
á lífi og vinni
á almennings-
salerni í
Milwaukee!
En það væri nú
reyndar alveg
fjandi fínt ef
maður ætti mörg
líf. Svona eins og
í tölvuleikjum að
fá þrjú líf í staðinn
fyrir bara eitt
Jafnvel
kosningu
eins í
raunveru-
leikaþáttum.
Hver fær að
vera og hver
fer?
Það er líka
örugglega hægt að
hafa eitthvað kerfi
á þessu, þeir sem
hafa gert eitthvað
slæmt fá tildæmis
straff.
Hvað gæti
maður
svosem
hafa gert í
fyrra lífi?
Þú gætir t.d. hafa farið
í stríð við Evrópu,
gætir hafa staðið fyrir
mestu þjáningum
aldarinnar ...
Kannski
er ágætt
að vita
ekki hvað
maður
gerði af
sér.
Palli Viltu bíða
aðeins
Ég vil að þú
vitir að ég trúi
ekki einu orði af
orðróminum sem
gengur um þig.
Hvaða
orðróm?
Því miður Palli ég er ekki
ein af þeim sem er að
dreifa slúðri. Takk
kærlega,
það er gott
að heyra
að einhver
styður ...
Þú verður bara að
fara á heimasíðuna
mína eins og allir
aðrir
... mig
Hæ elskan,
það var alveg
gríðarlegt stuð í
þessu partý hjá
Jóa Tattoo.
Pabbi má
ég sitja hjá
þér?
Auðvitað
máttu það.
Hvað veldur því að pabbi er
verlaunaður svona?
Mér er illt
í bakinu
FERMINGARFÖT
Á FLOTTA STRÁKA
TOPMAN
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI