Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.02.2007, Qupperneq 71

Fréttablaðið - 24.02.2007, Qupperneq 71
Hinn ómótstæðilegi hey Jude Law kom til Íslands, fór í sund, fannst það frábært, hitti Höllu, hún fór í Sun og hann heim. Köttur úti í mýri... Skipuleggjanda ferð- ar hey Jude fannst frábært að hann var að mestu látinn í friði, af öllum nema Höllu auðvitað, og sagði það mikilvægt fyrir stórstjörnur að upp- lifa frið og ró á friðsæla Íslandi. Hann fékk að spranga um á sundskýl- unni í Laugardalnum án þess að nokkur pirraði hann. Svo afskipta- laus var hann að klippa þurfti mynd af honum inn á aðra mynd úr Laug- ardalslaug til að fréttin gerði sig í Fréttablaðinu. Margir hafa eflaust spurt sig hvað í ósköpunum hann var að gera með þessa kylfu á myndinni, hvort hún væri til að berja frá æsta aðdáendur, eða hvort hann væri með Gumma í Byrginu í einhverjum sadó-masó-leik? Ég efast um að ég myndi þekkja hey Jude í pottinum. Kannski myndi ég segja sæll og takk fyrir síðast því ég væri viss um að ég þekkti hann en myndi ekki hvaðan. Það gerði ég að minnsta kosti þegar Julia Stiles gekk framhjá mér á Laugaveginum og horfði á mig með „enn einn geðveik- ur aðdáandi“ augunum þegar ég kastaði kveðju á hana. Það er bara ein fræg manneskja sem fyllir mig lotningu þegar ég hitti hana og engin hætta er á að ég taki ekki eftir henni. Ég verð algjör- lega stjörnunuminn og er tilbúinn að hleypa henni fram fyrir í röðinni, lít í kringum mig hvort einhver sé að gera sig líklegan til að ógna henni, og er tilbúinn að deyja hetjulegum, og um leið Hollywood-legum, dauð- daga fyrir hana. Það er ókrýnd eilífðardrottning Íslands: Vigdís Finnbogadóttir. Fyrirgefðu Óli, þú ert fínn en það er bara ein Vigdís. Að lokum langar mig að varpa fram smá hugleiðingu. Hvar voru börnin hans hey Jude þegar hann var að dansa við hina síbrosandi Höllu? Voru þau bara heima á 101 hóteli að horfa á Stundina okkar? Fékk hann Helgu Steff eða Afa til að passa í eigin persónu, eða kannski íþróttaálfinn? Svör óskast í næsta hefti af Séðu og heyrðu. Ótrúlegt en það finnst fólk sem trúir því að það hafi lifað öðrum lífum. Það er líka til fólk sem trúir því að Elvis sé á lífi og vinni á almennings- salerni í Milwaukee! En það væri nú reyndar alveg fjandi fínt ef maður ætti mörg líf. Svona eins og í tölvuleikjum að fá þrjú líf í staðinn fyrir bara eitt Jafnvel kosningu eins í raunveru- leikaþáttum. Hver fær að vera og hver fer? Það er líka örugglega hægt að hafa eitthvað kerfi á þessu, þeir sem hafa gert eitthvað slæmt fá tildæmis straff. Hvað gæti maður svosem hafa gert í fyrra lífi? Þú gætir t.d. hafa farið í stríð við Evrópu, gætir hafa staðið fyrir mestu þjáningum aldarinnar ... Kannski er ágætt að vita ekki hvað maður gerði af sér. Palli Viltu bíða aðeins Ég vil að þú vitir að ég trúi ekki einu orði af orðróminum sem gengur um þig. Hvaða orðróm? Því miður Palli ég er ekki ein af þeim sem er að dreifa slúðri. Takk kærlega, það er gott að heyra að einhver styður ... Þú verður bara að fara á heimasíðuna mína eins og allir aðrir ... mig Hæ elskan, það var alveg gríðarlegt stuð í þessu partý hjá Jóa Tattoo. Pabbi má ég sitja hjá þér? Auðvitað máttu það. Hvað veldur því að pabbi er verlaunaður svona? Mér er illt í bakinu FERMINGARFÖT Á FLOTTA STRÁKA TOPMAN 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.