Fréttablaðið - 24.02.2007, Síða 81
Átta liða úrslit Meist-
aradeildar Evrópu hófust í gær-
kvöldi þegar þýska félagið Flens-
burg tók á móti spænska liðinu
Barcelona. Hinir þrír fyrri leik-
irnir í átta liða úrslitunum fara
síðan fram í dag. Þar eru tvö
Íslendingalið á ferðinni.
Ólafur Stefánsson og félagar í
Ciudad Real hafa titil að verja og
þeir mæta liðinu sem þeir mættu í
úrslitum í fyrra - Portland San
Antonio. Ciudad fór frekar illa
með Portland í úrslitunum í fyrra
og Portland, með Ivano Balic í
broddi fylkingar, ætlar sér örugg-
lega að hefna. Þessi leikur er í
beinni útsendingu á Sýn kl 15.
Ungverska liðið Veszprém
tekur síðan á móti þýska liðinu
Kiel og að lokum fer fram áhuga-
verður slagur á Spáni þar sem
Valladolid tekur á móti Alfreð
Gíslasyni og lærisveinum hans
hjá Gummersbach.
„Það er fín stemning í hópnum
og við mætum fullir sjáfstrausts
til leiks,“ sagði Guðjón Valur Sig-
urðsson, fyrirliði Gummersbach,
við Fréttablaðið í gær. Hann sat þá
í rútu á leið til Valladolid en liðið
flaug frá Köln til Madrid og keyrði
síðan áfram.
„Þó það hafi verið lítil hvíld
eftir HM þá er okkar lið í ágætis
standi enda tók Alfreð þá ákvörð-
un að gefa okkur frí nánast frá
lokum HM fram að fyrsta leik.
Það var góður leikur enda veitti
okkur ekki af fríinu. Við erum
ferskari núna fyrir vikið. Stefnan
er að ná hagstæðum úrslitum á
þessum erfiða útivelli en síðari
leikurinn fer fram í Kölnarena þar
sem verður stemning,“ sagði Guð-
jón Valur.
Tvö Íslendingalið í átta liða úrslitum
Meistaradeildarinnar í handbolta
Línumaðurinn sterki
Christian Schwarzer ætlar ekki
að leggja skóna á hilluna þó hann
fái ekki nýjan samning hjá Lemgo
líkt og félagi hans í landsliðinu,
Markus Baur.
Þessi 37 ára gamli kappi hefur
ákveðið að ganga í raðir Kronau
Östringen næsta tímabil.
Schwarzer er gríðarlega virtur
handboltamaður í Þýskalandi og
honum er að stóru leyti þakkaður
heimsmeistaratitillinn á dögunum
enda varð allt endanlega vitlaust í
Þýskalandi þegar hann ákvað að
snúa aftur í landsliðið í upphafi
móts.
Fer til Kronau
Östringen
Bandaríska hlaupa-
drottningin Marion Jones hefur
lagt hlaupaskóna á hilluna og
ætlar að snúa að sér að frekari
barneignum. Jones hefur mátt
þola orðsporsmissi vegna tengsla
sinna við ýmis umdeild lyfjamál
og í framhaldinu hefur hún ekki
fengið inni á evrópsku mótaröð-
inni í sumar. Jones vann þrjú gull
og tvö bronsverðlaun á Ólympíu-
leikunum í Sydney árið 2000 en
hefur síðan gengið illa að halda
sér á toppnum. Í sumar féll hún á
lyfjaprófi en það var dregið til
baka þegar b-sýnið greindist
neikvætt.
Hætt að hlaupa
Tékkneski miðjumaður-
inn Pavel Nedved greindi frá því í
gær að hann hefði hafnað
risatilboði frá Chelsea síðasta
sumar. Hann ákvað þess í stað að
leika áfram með Juventus í
ítölsku B-deildinni.
„Þetta er satt. Ég hefði grætt
verulega en eitthvað sagði mér að
fara ekki. Ég sé ekki eftir því að
hafa verið áfram í Tórínó. Þvert á
móti hefði ég aldrei fyrirgefið
mér hefði ég yfirgefið skipið,“
sagði Nedved.
Miðjumaðurinn snjalli er
orðinn 34 ára og ætlar að spila
með Juve í Serie A næsta tímabil
en leggur skóna væntanlega á
hilluna í kjölfarið.
Neitaði risaboði
frá ChelseaGömlu kartöflugeymslurnaröðlast nýtt líf
Gömlu kartöflugeymslurnar í Ártúnsbrekkunni breytast í sannkallaða listasmiðju á
Vetrarhátíð 2007. En þar verður boðið upp á mjög fjölbreytta dagskrá fyrir unga jafnt sem
aldna á föstudag og laugardag.
Föstudaginn 23. febrúar
17:00 Ólátagarður. Samsýning 10 listamanna sem er innblásin af Hip hop menningunni. Sýnd eru verk
á striga, fatnað, skúlptúra, videolistaverk og fleira. Lifandi tónlist.
Laugardaginn 24. febrúar
Dýrið í mér. Samsýning 6 listamanna sem búsettir eru á Héraði og hefur hver og einn listamaður unnið
að sérstöku verki sem túlkar titil sýningarinnar. Verkin á sýningunni eru margvísleg, málverk, innsetningar
og ljósmyndir.
Ólátagarður, samsýningin heldur áfram.
Reykjavík 1944. Árið 1944 tók Loftur Guðmundsson kvikmyndir í Reykjavík. Hann lauk aldrei við verkið
og verður afurðin sýnd á Vetrarhátíð á vatnstjaldi.
14:00 Listræn andlitsmálun og Blöðrufígúrulist. Ungt fólk frá “Fjölskyldan líknarfélag” verður með listræna
andlitsmálun og kynna listgreinina Blöðrufígúrulist sem er nýjung hérlendis.
20:00 Tíu ára afmæli Dansleikhúss með ekka.
Um þessar mundir heldur Dansleikhús með Ekka upp á 10 ára afmæli sitt. Á Vetrarhátíð ætlar Ekka að
bjóða áhorfendum á uppákomu tengda afmælinu. Margt hefur gerst í þessum geira á síðastliðnum tíu
árum og gefin verður innsýn í innviði og sögu leikhússins. Meðal þeirra sem fram koma eru: Kolbrún
Anna Björnsdóttir, Aino Freyja, Karen María Jónsdóttir o.fl.
Tónleikar - Flís Tríó og Steintryggur. Flís trióið leikur spunakennda tónlist sem ber lit af jafn ólíkum
stefnum og reggae dub, djassi, afrópoppi og elektrónísku barrokki. Steintryggur er samstarfsverkefni
þeirra slagverksmanna Sigtryggs Baldurssonar og Steingríms Guðmundssonar en þeir hafa nú fengið til
liðs við sig Ástralann Ben Frost. Búist er við rytmískum áflogum.
14:00 - 21:00
14:00 - 22:00
20:00 - 22:00
Kynntu þér dagskrána á www.vetrarhatid.is