Fréttablaðið - 24.02.2007, Side 85
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Leynivinavika hefur staðið yfir á
Alþingi undanfarna viku og hafa
hinir ýmsu alþingismenn tekið þátt
í henni. „Ég fór að fá sendingar frá
ágætum leynivini. Hann sendi mér
harðfiskpoka og myndarlegan
hraunmola með hlýlegri orðsend-
ingu,“ segir Steingrímur J. Sigfús-
son um þátttöku sína í leiknum.
Hafði hann enga hugmynd um
hver sendi honum þessar mætu
gjafir. „Hann var kannski að
höfða til minna tilfinninga
sem jarðfræðings og ég verð
að hrósa honum fyrir góðan
smekk.“ Steingrími var
úthlutað leynivini og var það Val-
gerður Sverrisdóttir. Var hún aftur
á móti farin til Afríku og lét hann
sér því nægja að hugsa hlýlega til
hennar.
Samtök félagsmiðstöðva á
Íslandi, Samfés, sendu tölvupóst á
alla þingmenn og var þeim útvegað-
ur einn leynivinur til að gleðja með
einhverjum hætti og tóku flestir
þeirra vel í hugmyndina. „Ég fóstr-
aði Ágúst Ólaf og það var ekkert
leiðinlegt, enda ljúfur strákur þar á
ferð,“ segir Ásta Möller. „Ég sendi
honum rauðvínsflösku í byrjun vik-
unnar, sérvalda úrvalsflösku. Síðan
keypti ég te í poka með tesíu svo
hann geti róað sig líka. Síðan var
bankað upp á hjá mér og þá fékk
ég
heilan túlípanavönd. Á öskudag var
mér síðan afhentur stór öskupoki
með bognum títuprjóni með grjón-
um.“ Hafði hún enga hugmynd um
hver átti hana sem leynivin.
Guðjón Hjörleifsson var leyni-
vinur Guðrúnar Ögmundsdóttur.
„Ég gaf mínum leynivini ljóðabók
Elísabetar Jökulsdóttur um konuna
í húsinu,“ segir Guðrún. „Svo sendi
ég honum mikið af fallegum mynd-
um og gaf honum alls konar orð-
færi, sem hann getur notað við
ræðuhöld. Ég er sjálf búin að fá
uppskrift af karríýsu og ljóð og líka
bók um hvernig fer fyrir manni
þegar maður verður miðaldra,“
segir Guðrún, en maðurinn á bak
við þær sendingar var Hjálmar
Árnason.
Túlípanar, ljóð og rauðvín á Alþingi
„Þegar menn segjast vera miklir
veiðimenn er það svona svipað
eins og þegar kylfingar telja sjálfa
sig vera góða í golfi. Þá liggur oft
ekki mikið að baki slíkum orðum,“
segir Jón Sigurðsson, forstjóri
stoðtækjafyrirtækisins Össurar.
Jón var staddur í hlýjunni í Kali-
forníu þegar Fréttablaðið náði tali
af honum en þar verður hann
næstu misserin. Jón var reyndar
hugsi yfir því að tjá sig um veiði-
mennsku sína á villtum dýrum
enda væru Bandaríkjamenn ákaf-
lega viðkvæmir fyrir slíku og eru
frægir fyrir andstöðu sína gegn
hvalveiðum.
Jón er annálaður veiðiáhuga-
maður og hefur gert það að venju
að fara til Suður-Afríku þar sem
hann skýtur villtar skepnur, dýr
sem hvergi eru sjáanleg á Íslandi.
„Ég hef aðallega verið að skjóta
antílópur en ekki lagt út í það að
skjóta ljón eða fíla,“ segir Jón enda
er misjafnt hvað sé löglegt á
hverju svæði fyrir sig. Jón segist í
flestum tilvikum gefa innfæddum
skrokkana og þá sé líka hefð fyrir
því að éta kjötið utan af skepnun-
um eftir velheppnaða veiðiferð.
En Jón fer þó ekki alltaf alls-
laus heim. Á heimili hans má sjá
höfuð þeirra dýra sem forstjórinn
hefur skotið á ferðum sínum. Jón
viðurkennir reyndar að hann sé
ekkert að flagga þeim og þau séu
hvorki inni í stofu né fyrir ofan
hjónarúmið. „Konan hefur verið
með í ráðum og fær að velja þessa
staði,“ segir Jón og hlær.
Dýrin sem skotin eru í Suður-
Afríku eru ólík þeim sem finnast
hér á Íslandi og flestir Íslendingar
hafa eflaust eingöngu séð þau í
dýralífsþáttum Davids Attenbor-
ough og dýragörðum úti í heimi.
„Þetta er ótrúlega gaman þegar
maður er í þessu af lífi og sál,“
segir Jón sem hefur stundað skot-
veiði frá unga aldri. „Ég hafði ekki
efni á laxveiðinni á yngri árum og
það er kannski fyrst núna sem
maður getur leyft sér slíkan
lúxus,“ bætir hann við en ef marka
má orð forstjórans þá sinnir Jón
veiðinni hér heima af miklum
þrótti, skýtur rjúpur, hreindýr og
gæsir. Reyndar segist Jón vera
mikill útivistarmaður almennt og
njóti þess að vera úti í guðsgrænni
náttúrunni.
Einhver frægasta sýning Bandaríkjanna á ís, Ice
Capades, hefur gert samstarfssamning við Icelandics
on Ice um sýningar í öllum stærstu borgum Banda-
ríkjanna. Um er að ræða gríðarlega landkynningu
fyrir Ísland og ekki síður íslenska hestinn en reiknað
er með að rúmlega 800 þúsund komi til með að berja
sýninguna augum. Ráðgert er að senda út til Banda-
ríkjanna tíu knapa og hestastóð en frægasti knapinn
verður sennilega Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, fyrr-
um alheimsfegurðardrottning. „Já, ég tek þátt í völd-
um sýningum, aðstoða við markaðssetningu og tek
þátt í hestaatriði sem verður mjög flott. Verð svona
andlit íslenska hestsins út á við og sýningarinnar,“
segir Unnur Birna. Um er að ræða hundrað sýningar
en Unnur mun aðeins taka þátt í þeim stærstu, þar á
meðal frumsýningunni sem verður í New York og
stórri hestaveislu í Los Angeles.
Annars sagðist Unnur Birna vera að einbeita sér
að laganáminu í HR en vildi lítið tjá sig um kvik-
myndatilboð frá Bollywood á Indlandi en sögusagnir
um það hafa lengi verið á kreiki. „Þetta er á algjöru
byrjunarstigi,“ segir Unnur.
Björn Ólafsson, forsvarsmaður Icelandics On Ice,
sagði þetta vera einhverja mestu landkynningu sem
Ísland hefði fengið í Bandaríkjunum um langt skeið.
„Við reiknum með að koma fram í spjallþætti á borð
við Good Morning America og svo mætti lengi telja,“
segir Björn en morgunþátturinn er einn sá vinsælasti
í bandarísku sjónvarpi. Þá gætu spjallþáttastjórnend-
ur á borð við Jay Leno og David Letterman sýnt þessu
einhvern áhuga. „Þetta er kynning í mjög miklu návígi
og mikið markaðssett,“ bætir Björn við sem var að
vonum ánægður með liðstyrkinn í Unni Birnu.
Unnur andlit íslenska hestsins
Hrönn Greipsdóttir
„Njótið þess að horfa
á íslenska snilld“
Gagnrýni / Baggalútur.is
20% afsláttur ef greitt er með korti frá Kaupþingi
Sýnd í Smárabíói og Regnboganum
FYRSTUR
MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is