Fréttablaðið - 24.02.2007, Síða 87
FYRSTUR MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is
Ég er ekkert sérstaklega hrifinn af því – svo vægt sé til orða
tekið - að stjórnmálaflokkar á
Alþingi og í borgarstjórn skuli
álykta sérstaklega um það hvaða
hópar þeir telji að séu velkomnir
til landsins og hverjir ekki, eins og
gerðist nú í vikunni í tilviki boð-
aðrar ráðstefnu fólks í klámiðnaði.
Ég sé því ekki betur en að ég, á
mínum fyrstu metrum í pólitík, sé
þar með ósammála í afmörkuðu
máli öllum flokkum á Alþingi, því
hér myndaðist jú þverpólitísk
samstaða.
er e.t.v. full bratt fyrir ungan
mann, en hvað um það. Ég er þeirr-
ar skoðunar að ef klámráðstefnan
hefði farið fram hér á landi hefði
verið eðlilegt, lýðræðislegt og
sjálfsagt að fólk stæði fyrir skipu-
lögðum mótmælum og léti vel í sér
heyra. Að sama skapi hefði ég líka
haft áhuga á því að heyra mál-
svörn ráðstefnugesta. Rökræða
milli tiltekins Scotts Hjorleifsson-
ar eða Cristinu Pong – þeirra sem
einna helst hafa verið í málsvari
fyrir ráðstefnugesti - og íslenskra
femínista í Kastljósi hefði til
dæmis getað farið fram af þessu
tilefni.
lít svo á að ég búi í opnu samfé-
lagi. Þannig vil ég hafa það. Það
þýðir, að mínu viti, að stofnanir
eins og Alþingi og borgarstjórn
eiga ekki að láta uppi skoðanir á
því hvort þær telji einhverja hópa,
umfram aðra, óæskilega sem gesti
á hótelum hér á landi. Aðeins lög-
reglan á að taka afstöðu til slíks, og
þá á grundvelli laga. Ég tek undir
áhyggjur fólks í ferðamannaiðnaði
af þessu tilefni. Það biður nú um
lista frá borgaryfirvöldum þar sem
tilgreint er hvaða hópar eru óæski-
legir og hverjir ekki.
hér eftir tekin opinber
afstaða til þess hvort hópar sem
hingað stefna séu óæskilegir
miðað við ákveðnar pólitískar og
siðferðislegar röksemdir? Hvað ef
hópur eins og National Rifle Ass-
ociation (NRA) boðar komu sína
hér í skemmtiferð, þjóðernisflokk-
ur Le Pens eða samtök hvítrar
kynþáttahyggju? Hvað gera bænd-
ur þá?
fólks á ráðstefnunni er
ákaflega skiljanleg. Klám er sóða-
legur iðnaður með margar viður-
styggilegar skuggahliðar. Af
mínum sjónarhóli hefur hins vegar
háværasta andstaðan við ráðstefn-
una byggst á þeirri tegund femín-
isma sem ég get ekki fyllilega
skrifað undir. Ég hef lært um fem-
ínisma og skrifað um þá stefnu rit-
gerðir í heimspekinámi. Ég álít
mig gallharðan jafnréttissinna.
verður hins vegar ekki fram-
hjá því litið að femínísk umræða
t.d. í Bandaríkjunum er mun marg-
slungnari en hér er boðið upp á. Til
að mynda er það heitt deiluefni
femínista þar í landi hvaða áhrif
kynlífsbyltingin upp úr 1970, með
tilheyrandi afþreyingariðnaði,
hafði á stöðu kvenna. Atburðarás-
in í liðinni viku lýsti ekki þeirri
yfirvegun sem ég myndi vilja sjá,
af hendi grundvallarstofnana
landsins, í opnu og frjálsu samfé-
lagi gagnvart þannig viðfangsefni,
hvað sem mér og öðrum kann per-
sónulega að finnast um Scott Hjor-
leifsson og hans iðju.
Um Scott
©
In
te
r I
KE
A
Sy
ste
m
s B
.V
.2
00
7
www.IKEA.is
Opið virka daga
Opið laugardaga
Opið sunnudaga
10.00 - 20.00
10.00 - 18.00
12.00 - 18.00
Morgunmatur
195,-
IKEA Restaurant & CaféIKEA Restaurant & Café
með graslaukssósu, kúskús
og grænmeti
frá kl. 9:00 - 11:00
mánudaga - laugardaga
Veitingastaður opnaður klukkutíma fyrr en verslun
... í barnaherberginu
290,-
Grænmetisbuff
1.490,-
MINNEN fjársjóðskista L62xB40xH29 cm
NÖJE vegghirsla
3 stk. Ø23/Ø25Ø30
dýpt 25 cm
GLIS barnaborð
m/geymsluplássi
Ø45 H45 cm 995,-
MAMMUT kollur
B35xH30 cm
ýmsir litir 795,-
KORALL BUBBLOR hengi
L250xB90 cm 1.490,-
NÖJE rúmfatageymsla
L58xB58xH16 cm 695,-
VESSLA geymslukassi á hjólum
L39xB39xH28 cm ýmsir litir 595,-
BARNSLIG smáhirsla
L31xB15xH31 cm 395,-
GLIS kassar m/loki
3 stk. L17xB10xH8 cm
KORALL STJÄRNA leikfangahirsla
L120xB120 cm ýmsir litir 295,-/stk.
MINNEN skjóða L24xB20 cm
ýmsir litir 295,-/stk.
MAMMUT vegghilla
L33xB21xH33 cm
ýmsir litir 495,-/stk.
NÖJE veggkarfa m/loki
L34xB40xH50 cm
TROFAST hirsla L100xB44xH94 cm 5.690,-
TROFAST kassi L42xB30xH10 cm 295,-/stk.
TROFAST kassi L42xB30xH36 cm 495,-/stk.
695,-
795,-
295,-
Skpiulag