Fréttablaðið - 25.02.2007, Page 74
Á vegum ríkisskattstjóra eru haldin námskeið sem eru sérstaklega ætluð fyrir
einstaklinga sem eru að hefja sjálfstæðan atvinnurekstur.
Á námskeiðunum er farið yfir hagnýt atriði sem varða skattskil einstaklinga með
atvinnurekstur, svo sem skráningarskyldu, launagreiðanda í staðgreiðslu,
reiknað endurgjald, rekstrarkostnað, skattframtalið, reglur um tekjuskráningu
og reikningaútgáfu. Einnig er fjallað um virðisaukaskatt, útskatt og innskatt,
skattskyldu, undanþágur, skattverð o.þ.h.
Næsta námskeið verður haldið á Grand Hótel Reykjavík,
Sigtúni 38, þann 24. mars nk.
og stendur yfir frá kl. 12:45 til kl. 17:30.
Skráning og nánari
upplýsingar á
www.rsk.is
Ertu að hefja
atvinnurekstur?
- námskeiðin byrja aftur í mars
Enska úrvalsdeildin
DHL-deild karla
DHL-deild kvenna
Lengjubikarinn í fótbolta
Úrslitaleikur ensku
deildabikarkeppninnar fer fram í
dag en þá eigast við Lundúnaliðin
Chelsea og Arsenal. Þrátt fyrir
að hafa teflt fram kornungu liði í
keppninni hefur Arsenal komist
alla leið í úrslit og stjóri liðsins,
Arsene Wenger, segir að hann
muni áfram tefla fram ungu liði.
„Þetta hefur verið þeirra
keppni og hjálpað þeim mikið að
verða betri. Þeir hafa sannað sig
gegn sterkum liðum og þeir eiga
svo sannarlega skilið að spila
þennan úrslitaleik,“ sagði Martin
Keown, fyrrum leikmaður Ars-
enal, í viðtali í gær en þessi unga
sveit leikmanna hefur lagt Evert-
on, Liverpool og Tottenham að
velli á leið sinni. „Ég ætla að
finna réttu blönduna af ungum
leikmönnum og þeim sem eru
reynslumeiri. Ég ætla að verð-
launa þá leikmenn sem hafa
komið okkur í þennan úrslitaleik.
Aldrei áður hef ég haft svona
góðan hóp af ungum leikmönn-
um,“ sagði Wenger.
Skot hafa gengið á milli stjór-
anna í fjölmiðlum fyrir leikinn og
mun það ýta enn undir spennuna
sem verður í þessum leik í dag.
Varnarmaðurinn William Gall-
as sem yfirgaf Chelsea síðasta
sumar og fór til Arsenal er ákaf-
ur í að fá að byrja leikinn. „Ekki
af því að við erum að fara að
mæta Chelsea heldur vegna þess
að ég hef verið meiddur og lang-
ar mikið að fara að spila á ný,“
sagði Gallas.
Eiga skilið að spila þennan leik
Bjarni Þór Viðarsson
skoraði í gær sitt fyrsta mark í
ensku deildakeppninni. Hann
skoraði annað mark Bournemouth
sem vann óvæntan 2-1 sigur á
Oldham í 2. deildinni. Bjarni er
átján ára og var lánaður frá
úrvalsdeildarliðinu Everton til
Bournemouth en lánssamningur
hans við félagið rennur út eftir
viku. Þetta var aðeins annar
útisigur Bournemouth á leiktíð-
inni en liðið er í fjórða neðsta
sætinu. Mark Bjarna kom á 31.
mínútu eftir sendingu frá David
McGoldrick og kom Bourne-
mouth í 2-0 en Oldham minnkaði
muninn úr vítaspyrnu.
Bjarni skoraði
Íslandsmeistarar ÍBV í
kvennahandbolta fengu stóran
skell gegn Stjörnunni í Garðabæ í
gær. Stjarnan vann leikinn með
21 marks mun, 40-19, og er því
áfram með tveggja stiga forskot á
toppi DHL-deildar kvenna. Litlu
munaði að ÍBV hætti keppni í
vikunni en þær eru áfram með
þótt frammistaðan í gær hafi
ekki verið glæsileg en staðan var
23-7 í hálfleik. Annars voru engin
óvænt úrslit í umferðinni,
toppliðin unnu öll öruggan sigur
og HK vann síðan 30-26 sigur á
Fram í baráttunni um miðja deild.
Stór skellur ÍBV
West Ham fór illa út úr
Lundúna-fallslagnum gegn Charl-
ton og fall í 1. deild virðist vera
óumflýjanlegt fyrir Eggert Magn-
ússon og hans menn. Það er ekki
nóg með að liðið tapaði sínum
fjórða leik í röð og hafi ekki skor-
að í 283 mínútur heldur töpuðu
Hamrarnir 0-4 í leik upp á líf og
dauða í fallbaráttunni og það gegn
lærisveinum Alan Pardews sem
Eggert rak fyrr í vetur.
Stuðningsmenn West Ham
sungu líka „Það er aðeins einn
Alan Pardew“ á pöllunum. „Þetta
er búið að vera erfiður dagur og
erfið vika á undan honum. Ég
elska West Ham og þeirra frá-
bæru stuðningsmenn. Ég finn til
með liðinu en mitt starf snýst nú
um að halda Charlton í úrvals-
deildinni. Charlton er aðalatriðið,
ekki ég eða Alan Curbishley,“
sagði Pardew eftir leik.
Curbishley var niðurbrotinn.
„Það gengur ekkert upp. West
Ham var að tapa leikjum áður en
ég kom en mér hefur ekki tekist
að breyta gengi liðsins. Það eru tíu
leikir eftir og við verðum að fara
að ná í stig,“ sagði Curbishley eftir
leik. Með sigrinum komst Charl-
ton upp fyrir West Ham.
Cristiano Ronaldo tryggði
Manchester United níu stiga for-
skot á Chelsea á toppi deildarinn-
ar þegar hann skoraði sigurmark
liðsins gegn Fulham. Mark Ron-
aldo var af betri gerðinni, ein-
staklingsframtak og einleikur frá
miðju og hann hefur nú skorað 16
mörk í deildinni í vetur. Manchest-
er United getur náð 12 stiga for-
skoti um næstu helgi því liðið spil-
ar aftur áður en Chelsea á leik.
„Þetta var erfiðasti leikurinn
okkar á tímabilinu og mjög mikil-
vægur sigur. Við redduðum okkur
með tveimur frábærum mörkum
og þremur góðum vörslum frá
Edwin van der Sar. Ronaldo hélt
áfram allan tímann og var besti
maður vallarins,“ sagði Sir Alex
Ferguson, stjóri Man. Utd, og
bætti við: „Við erum í góðri stöðu
en fram undan eru erfiðir útileikir
þar á meðal á móti Liverpool í
næstu viku.“
Chris Coleman, stjóri Fulham,
vildi fá víti í lokin þegar hann vildi
meina að brotið hafi verið á Heið-
ari Helgusyni. „Dómarinn hefur
engar afsakanir því hann var í frá-
bærri aðstöðu og fór því líklega
bara á taugum,“ sagði Coleman
eftir leik.
Liverpool kórónaði frábæra
viku með 4-0 sigri á Sheffield
United þar sem Robbie Fowler
skoraði tvö fyrstu mörkin úr
vítum. Þetta var níundi heimaleik-
urinn í röð sem Liverpool heldur
hreinu í deildinni.
West Ham steinlá í Lundúna-botnslagnum gegn Charlton, Liverpool endaði frá-
bæra viku á stórsigri og Manchester náði 9 stiga forskoti í toppnum.