Fréttablaðið - 29.03.2007, Blaðsíða 70
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
MIÐASALA Í SMÁRABÍÓ OG REGNBOGANN Á
MIÐASALA Í BORGARBÍÓ Á
SCHOOL FOR SCOUNDRELS kl. 5.45, 8 og 10.15
THE ILLUSIONIST kl. 5.45, 8 og 10.15
THE HITCHER kl. 6, 8 og 10 B.I. 16 ÁRA
VENUS kl. 6 og 8 B.I. 12 ÁRA
THE LAST KING OF SCOTLAND kl. 10 B.I. 16 ÁRA
SCHOOL FOR SCOUNDRELS kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.15
SCHOOL FOR SC. SÝND Í LÚXUS kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.15
THE HITCHER kl. 4, 6, 8 og 10 B.I. 16 ÁRA
EPIC MOVIE kl. 4, 6, 8 og 10 B.I. 7 ÁRA
THE NUMBER 23 kl. 8 og 10.15 B.I. 16 ÁRA
NIGHT AT THE MUSEUM kl. 5.40
THE HITCHER kl. 8 og 10.15 B.I. 16 ÁRA
EPIC MOVIE kl. 6 og 10 * B.I. 7 ÁRA
NORBIT kl. 6
HOT FUZZ MASTERCARD SÝNING kl. 8
* SÝÐASTA SÝNING
FRÁ FRAMLEIÐENDUM
TEXAS CHAINSAW
MASSACRE OG THE
AMITYVILLE HORROR
MEÐ SOPHIA BUSH ÚR ONE
TREE HILL OG SEAN BEAN
(NATIONAL TREASURE
& LORD OF THE RINGS).
„FRÁBÆR LEIKUR OG
EFTIRMINNILEG MYND!“
- B.S., FRÉTTABLAÐIÐ
STRANGLEGA BÖNNUÐ
INNAN 16 ÁRA
2
fyrir
1
Óskarsverðlaunaleikarinn Denzel Washington mun
framleiða og hugsanlega fara með aðalhlutverk í
kvikmyndinni Journal For Jordan. Myndin er byggð
á grein í New York Times sem fjallaði um dagbók sem
bandarískur hermaður í Írak skrifaði fyrir ungan son
sinn.
Hermaðurinn var drepinn í Bagdad í október í
fyrra, 48 ára ára gamall, einum mánuði áður en hann
átti að ljúka skyldustörfum sínum. Hafði hann farið
til Íraks áður en sonur hans fæddist.
Leikur í mynd um Írak
A Ð A L F U N D U R C C P h f .
12. apríl 2007
Aðalfundur CCP hf. verður haldinn fimmtudaginn 12. apríl 2007 á skrifstofu félagsins að
Grandagarði 8, Reykjavík og hefst kl. 17:00.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar félagsins um hag félagsins og rekstur þess á liðnu starfsári.
2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár, ásamt skýrslu endurskoðanda, lagður fram til samþykktar.
3. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar á reikningsárinu.
4. Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna.
5. Tillögur stjórnar um breytingar á samþykktum félagsins, þar sem helstu efnisbreytingar eru eftirfarandi:
a) Við bætist ný grein, 2.05, þar sem stjórn er heimilað að ákveða útgáfu hlutafjár félagsins í bandaríkjadölum í stað
íslenskra króna, sbr. heimild í 4. mgr. 1. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995.
b) Greinar 2.07 og 2.08, sem verða greinar 2.08 og 2.09, breytist þannig að hlutabréf í félaginu skuli gefin út með
rafrænum hætti í verðbréfamiðstöð. Gagnvart félaginu skoðist útskrift frá verðbréfamiðstöð sem full sönnun fyrir
eignarrétti að hlutum í félaginu. Arður á hverjum tíma, og tilkynningar allar, sendast til þess lögaðila sem skráður er
eigandi viðkomandi hlutabréfa hjá verðbréfamiðstöð. Sá sem eignast hluti í félaginu getur ekki beitt réttindum sínum
sem hluthafi nema nafn hans hafi verið skráð í hlutaskrá verðbréfamiðstöðvar eða hann hafi tilkynnt og fært sönnur á
eign sína á hlutnum.
c) Grein 4.05 breytist þannig að hluthafafundur er lögmætur, ef til hans er löglega boðað. Ákvæði um að fundur sé eigi
lögmætur nema fulltrúar er hafa yfir að ráða helmingi hlutafjárins hið minnsta sæki hann, falli brott.
d) Í grein 4.07 um dagskrá aðalfundar bætist nýr stafliður f) um tillögu stjórnar um starfskjarastefnu félagsins.
e) Í grein 4.09 falli brott stafliðir c) og d) um að samþykki allra hluthafa þurfi til að breyta tilgangi félagsins að verulegu
leyti, eða breyta ákvæðum samþykktanna um hlutdeild manna í félaginu eða jafnrétti þeirra á milli.
f) Grein 4.10 falli brott, en í henni er tiltekið að 2/3 hluta greiddra atkvæða svo og samþykki hluthafa sem ráða yfir minnst
2/3 hlutum þess hlutafjár sem farið er með atkvæði fyrir á hluthafafundi þurfi til að samþykkja samruna, hækkun eða
lækkun hlutafjár; samninga við starfsmenn varðandi kaup á hlutabréfum í félaginu; slit á félaginu; breytingar á
samþykktum; verulega úthlutun verðmæta í félaginu; og sölu á verðmætum eignum sem félagið á hverju sinni.
Þá hafa samþykktir félagsins verið þýddar á ensku og eru nú settar fram á tveimur tungumálum, þó þannig
að komi upp ágreiningur um túlkun, ræður íslenska útgáfan. Að öðru leyti eru breytingartillögur stjórnar
minniháttar og varða einkum orðalag.
6. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins.
7. Kosning stjórnar.
8. Kosning endurskoðanda.
9. Önnur mál, sem löglega eru upp borin.
Sérstaklega er bent á að þeir sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn CCP hf. skulu tilkynna það skriflega
til stjórnar félagsins eigi síðar en 5 sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar, sbr. 63. gr. (a) hlutafélagalaga nr.
2/1995. Þeir einir eru kjörgengir sem þannig hafa gefið kost á sér.
Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til
sýnis sjö dögum fyrir aðalfund.
Aðalfundarstörf munu fara fram á ensku.
Reykjavík, 27. mars 2007
Stjórn CCP hf.
Hot Fuzz er drepfyndin spennumynd frá þeim sömu og gerðu
grínhrollinn Shaun of the Dead. Ofur-löggan Nicholas Angel
er óvænt fluttur frá stórborginni London til svefnbæjarins
Sandford. Smábæjarlífið býður ekki upp á alveg sömu spennu
og London, en Angel fer fljótlega að gruna að maðkur sé í
mysunni. Hann hefur ásamt þykkum en velviljuðum félaga
sínum rannsókn á fjölda dauðaslysa sem orðið hafa í bænum
og verður brátt sannfærður um að bærinn sé ekki eins friðsæll
og hann virtist vera í upphafi.
Sérstök MasterCard forsýning verður í kvöld kl. 20 í
Laugarásbíói, Sambíóunum Álfabakka og Borgarbíói,
Akureyri og fá MasterCard korthafar 2 miða á verði eins
greiði þeir með kortinu.
Myndin verður frumsýnd 30. mars.
Meira á www.kreditkort.is/klubbar
2 fyrir 1
í kvöld, kl. 20.00