Fréttablaðið - 29.03.2007, Blaðsíða 65
á við föðurlega miðlun meistara
náttúrulífsmyndanna en sá fyrr-
nefndi er mun brjálaðri til augn-
anna og orðfærið býsna vogað
og grafískt. „The Pervert Guide
to Cinema“ er þannig óvenjulegt
fræðslumyndband í alla staði en
afar lærdómsríkt á að horfa.
Sýningin verður í Norræna
húsinu í kvöld kl. 19 en aðgangur
er ókeypis og öllum opinn. Næst-
komandi laugardag býður RDW
síðan upp á ókeypis námskeið þar
sem Fiennes ræðir um heimilda-
myndaformið.
Blaðamenn Hollywood Reporter halda því fram að útgáfa á
3D- útgáfunni á hinni kunnu költ-mynd Tims Burton, Mar-
tröð fyrir jólin, hafi gerbreytt stöðu þessa forna forms í sýn-
ingu kvikmynda. Fyrir þann tíma var 3D-tæknin helst notuð
til að sýna þær fáu og fáfengilegu kvikmyndir sem Holly-
wood hafði gert með þessari framköllunar- og sýningar-
tækni sem útheimtir sérstök sýningartæki. Fyrirbærið
er kennt við þriðju víddina og gefur dýptartilfinningu í
augum áhorfenda.
Í nýrri verkum var það Disney sem reið á vaðið:
„Chicken Little“ kom út í nóvember 2005. Monster House
fylgdi á eftir í júlí í fyrra og þá voru þeir James Cameron
og Robert Zemeckis komnir á bragðið. Svo kom endurút-
gáfan af mynd Burtons í 168 bíóhúsum og allir græddu
8,7 milljónir dala. Þá var ekki að sökum að spyrja.
Ameríski kvikmyndaiðnaðurinn er í krísu:
krakkarnir hafa ekki lengur áhuga á öllu því sem
miðaldra kaupsýslumenn framleiða í sínum gler-
höllum. Því er gríðarlegum fúlgum nú eytt í að
velvæða bíóhúsin fyrir nýja tækni og Samfilm hér á Íslandi
hafa hoppað á þann vagn. Nýja tæknin byggist á stafrænu
formati og hefur hrint fram endurnýjun í kvikmyndahús-
um um Bandaríkin: 2000 salir af fjörutíu og þrjú þúsund eru
orðnir stafrænir. Og þá kemur inn samkeppnin. Menn eru
ekki búnir að koma upp staðli svo stærstu keðjurnar
eru að setja upp mismunandi tæki – sem ekki tala
saman. Og fleira kemur til greina í endurvarpi um
hin stafrænu kerfi: íþróttaviðburðir og tónleik-
ar verða líka í boði. Tilraunir eru þegar hafnar
með dreifingu á NBA-leikjum í beinni í hinni nýju
tækni á Los Angeles svæðinu. Þá er þegar ákveðið
að á næsta ári verði dreift konsert með U2
á þessu nýja formati og náttúrulífsefni frá
National Geographic.
Burton býður upp á meiri dýpt
Kvikmyndin Miss Potter verður
frumsýnd í Sambíóunum um helg-
ina en hún segir frá ævi og ástum
barnabókarhöfundarins Beatrix
Potter. Potter hefur glatt börn úti
um allan heim en neyddist til að
halda ástarlífi sínu fyrir sjálfa sig.
Potter þótti með eindæmum hæfi-
leikarík og skömmu eftir að hún
gaf út sína fyrstu bók féll rithöf-
undurinn fyrir útgefanda sínum,
Norman Warner. En velgengni
Potter þýddi að hún varð sjálfkrafa
meðlimur hjá fína fólkinu í London
og foreldrar hennar kröfðust þess
að hún myndi segja skilið við unn-
usta sinn. Potter lét sannfærast og
fluttist út á land og var sannfærð
um að sá tími myndi færa henni
innri ró. Þess í stað upplifði hún
einsemd og sorgir en tókst engu
að síður að byggja mikinn og stór-
an búgarð sem átti hug hennar og
hjarta eftir að rithöfundarferlinum
lauk árið 1913. Miss Potter er leik-
stýrt af Chris Noonan og með aðal-
hlutverkin fara þau Renée Zellweg-
er og Ewan McGregor auk Emily
Watson.
Ástir og örlög
frú Potter
HÚS OG HÍBÝLI
Hús og h
íbýli
– tryggð
u þér
eintak!