Fréttablaðið - 29.03.2007, Blaðsíða 64
Í myndinni „The Pervert
Guide to Cinema“ sem fé-
lagsskapurinn Reykjavík
Documentary Workshop
sýnir í kvöld má fá skyndi-
kúrs í því hvernig hvatalíf
mannsins brýst út í sköpun-
arverkum hvíta tjaldsins.
Látið ekki titilinn blekkja
ykkur.
Leiðsögumaður í mynd banda-
ríska leikstjórans Sophie Fienn-
es er slóvenski heimspekingur-
inn Slavoj Zizek sem þar skautar
um hinar ýmsu senur margra af
frægustu kvikmyndum sögunnar
og veltir fyrir sér sambandi þráa
mannskepnanna og fantasíunn-
ar sem þær skapa. Zizek þessi er
goðsögn í menningarfræði nútím-
ans, sumir segja poppstjarna, og
kenna hann við Elvis heimspek-
innar, en hann er á leið hingað til
lands ásamt leikstjóranum sem
verður viðstödd sýninguna í kvöld
og svarar spurningum að henni
lokinni.
Meðal þeirra mynda sem hinn
óforskammaði spekingur greinir
eru The Excorcist og teiknimynd-
in um Lísu í Undralandi, The Mat-
rix og Fight Club. Myndir leik-
stjóra á borð við Hitchcock, Tark-
ovsky, Lynch og Chaplin verða
einnig uppspretta vangaveltna
Zizeks um kvikmyndaformið en
hann afkóðar hvatalífið í senum
þeirra og rekur saman við kenn-
ingar sálgreinendanna Freuds
og Lacans á einkar aðgengileg-
an hátt. Hverjum hefði svo sem
dottið í hug að tengja hlutverka-
skipti Marx-bræðra við kenningar
Freuds um Id, Ego og Superego?
Markmið Zizeks er á vissan
hátt að sýna áhorfendum hvað
kvikmyndir geta sagt okkur um
okkur sjálf en að hans mati er
kvikmyndalistin hin sanna list öf-
uguggans: „Hún sýnir þér ekki
það sem þú þráir heldur segir þér
hvernig á að þrá.“ Hann kemur
inn á tengsl fantasíunnar og raun-
veruleikans, gægjuhneigðir, efn-
ishyggju, huglægni og kynferði en
eitt meginstefjanna hjá Zizek er
að fantasían sé átakasvæði kynj-
anna. Þannig reynir Zizek að opna
augu áhorfenda fyrir því sem
býr að baki sögum og aðstæðum
sem birtast okkur í kvikmyndum
og hvernig við metum þær. Þess
má geta að það er haft eftir leik-
stjóranum að hún sé ekki leng-
ur viss um hvort konur og karlar
horfi og hlusti eins á kvikmyndir
eftir reynslu sína af gerð þessar-
ar myndar.
Leikstjórinn Sophie Fiennes er
sjálfmenntuð í kvikmyndagerð
en hefur til að mynda unnið sem
læringur hjá leikstjóranum Peter
Greenaway. Í þessari mynd fer
hún einkar frumlegar og áhrifa-
miklar leiðir til að koma fræði-
legri kvikmyndagreiningu Zizeks
á framfæri á aðgengilegan hátt.
Myndinni er skipt í þrjá kafla
en formið er afar opið. Fienn-
es vefur þennan undarlega sjar-
merandi heimspeking saman við
senur kvikmyndanna og ljóst er
að töluverð vinna hefur farið í að
endurgera sviðsmyndir og áferð
gamalla mynda því þótt brellur
þær séu ekki aðalatriðið eru áhrif-
in mikil.
Í myndinni minnir Zizek á köfl-
um á kókaðan David Attenbor-
ough, smitandi áhugi og ákefð hans
og óvenjuleg staðsetning „inni í“
kvikmyndunum sjálfum kallast
Kvikmyndin School for Scound-
rels segir frá Roger, ungum New
York-búa, sem hefur lítið sjálfs-
traust og þjáist af ofsakvíða. Til
að komast yfir þessa veikleika
sína er Roger skráður í leynilegan
skóla þar sem Dr. P ræður ríkjum.
Sá beitir heldur óhefðbundnum
aðferðum til að lækna sjúklinga
sína. School for Scoundrels er
endurgerð á samnefndri breskri
gamanmynd frá árinu 1960. Þeir
Todd Philipps og Scot Armstrong,
sem áttu heiðurinn af hinni ofur-
vinsælu Starsky&Hutch og Old
School, skrifa handritið og leik-
stýra en með helstu hlutverk fara
þeir Billy Bob Thornton og Jon
Heder.
Skóli fyrir aumingja
Grænu ofurskjaldbökurnar sem
sigruðu heiminn fyrir tæpum
tveimur áratugum eru mættar
aftur en nýjasta myndin verður
frumsýnd nú um helgina. Margt
hefur breyst síðan skjaldbök-
urnar birtust síðast á hvíta tjald-
inu. Hópurinn hefur tvístrast.
Rottan og lærimeistari þeirra
þarf hins vegar á hjálp þeirra að
halda þegar hann kemst á snoð-
ir um ráðabrugg hins illa Maxim-
illian J. Winters sem hefur notað
alla sína þekkingu til þess eins að
búa til mikla óvætti. Hetjurnar
úr skólpræsum New York-borg-
ar verða því að sameinast á ný og
beita öllum sínum ninja-brögðum
til að ráða að niðurlögum hins nýja
óvinar.
Ólíkt fyrstu myndinni um skjald-
bökurnar eru leikarar víðs fjarri.
Hér er einungis notast við tölvu-
teikningar. Meðal þeirra sem ljá
persónunum rödd sína má nefna
Patrick Stewart, .
Snúa bökum saman
Afskaplega hrifin af Christian Bale
Kvikmyndin Hot Fuzz verð-
ur frumsýnd í Laugarásbíói og
Sambíóunum Álfabakka um helg-
ina en hún er gerð af þeim sömu
og stóðu að baki grínhrollvekjunni
Shaun of the Dead sem sló í gegn
fyrir þremur árum.
Nicholas Angel rannsóknarlög-
reglumaður er svo góður í sínu
starfi að allir aðrir í kringum hann
líta út fyrir að vera aumingjar. Og
spilling innan lögreglunnar verð-
ur til þess að Angel er fluttur úr
stórborginni yfir í hið rólega út-
hverfi í Sandford. Þar kemst hann í
kynni við Danny Butterman sem á
sér þann draum heitastan að verða
eins og Mel Gibson en nágranna-
erjur bjóða ekki beint upp á bílaelt-
ingarleiki og skotbardaga. En ekki
er allt sem sýnist í þessum smábæ
og eins og hendi sé veifað hefur
glæpagengi skotið rótum. Sem
fyrr eru þeir Simon Pegg og Nick
Frost í aðalhlutverkum en þeir eru
dyggilega studdir af Bond-leikar-
anum Timothy Dalton, Nonna og
Manna-stjörnunni Scott Wilson og
Martin Freeman úr The Office.
Löggugrín